Herjólfur - 01.09.1940, Qupperneq 15
HERJÓLFtTR
13
um árum úti í Hull og við gerðum
okkur þar glaðan dag saman. —
Þetta er mesti fagnaðarfundur á báða
bóga.
— Veiztu, að það er ball á Ála-
fossi í kvöld? spyr Jón fyrirvara-
laust, áður en við höfum almennilega
heilsazt. Og svo, án þess að bíða
svars: — Við þangað!
Það varð úr, að við ákváðum að
skreppa upp að Álafossi og athuga
ganginn þar.
Fyrir utan bifreiðastöðina stóð 18-
manna bíll, næstum alskipaður fólki.
Þarna sitja tvær illa málaðar sveita-
stúlkur með pækilsaltaðar hendur á
la Laxness, önnur við aldur. Verzlun-
arfólk, slæpingjar, vinnukonur, sjó-
menn — nei, er sem mér sýnist? Já,
þarna situr Gvendur Páls í aftasta
sæti og brosir gleitt til okkar. Við
Jón hlömmum okkur niður hjá hon-
um, því vitanlega þekkjum við Gvend
Páls — þ. e. a. s. þeir Jón hafa að
vísu ekki sézt fyrri, en ég þekki hann
vel, og það gerir sama gagn.
Brátt eru öll sæti skipuð, og er þá
lagt af stað. Strax og komið er inn
fyrir bæinn, hefst söngur í hverju
horni. Sönghópamir eru ýmist tveir
eða þrír. Okkur þremenningunum
þykir skammarlega lítið tekið eftir
okkar ágæta tríói. Herðum við því
sönginn og kyrjum þríraddað, fyrst
á dönsku, til þess að slá hina út:
,,Jeg elsker dig, jeg elsker dig ..
aftur og aftur. Og svo: ,,Det var en
Lördag-aften, jeg sad og vented’ dig“
— fullum hálsi.
Gamlir og góðir kunningjar, eins
og t. d. „1 birkilaut —“, „Yfir kald-
an eyðisand“, Enginn grætur íslend-
ing“ o. s. frv., steinþögnuðu og drógu
sig í hlé með lítillæti Mörlandans
gagnvart því útlenzka.
Við þóttumst nú hafa unnið þann
sigur, að óhætt myndi að reyna eitt-
hvað íslenzkt. Fundum við eftir
nokkurt þras mátulega tóna og byrj-
uðum á „Eg elska hafið æst, er
stormur gnýr--------“.
En hvað haldið þið, að komi fyrir?
Við erum blátt áfram æptir niður af
einhverjum dóna, sem gerir alveg
óforsvaranlegan hávaða undir slíkum
kringumstæðum, og skipar okkur að
hætta þessum söng.
Trúlofunarhringar.
Ur og
Klukkur.
Borðbúnað og Skrautgripi.
Jón Sigmundsson gulismiður
Laugaveg 8. — Sírai 3383. — Reykjavík.
Povl Ammendrup
KLÆÐSKERI
Grettisgötu 2. — Sími 3311, heima 3896.
Efni tekid til saumaskapar.
Annast allskonar vidgerdir.
I. flokks klæðaverzlun 09 sanmastoía.