Herjólfur - 01.09.1940, Blaðsíða 17

Herjólfur - 01.09.1940, Blaðsíða 17
HERJÖLFTJR 15 fyrir mikil þyrping af fólki og bíl- um. Gátum við hvergi komið auga á vin okkar úr bílnum og förunaut hans. Var ég því satt að segja feg- inn, því að kvöldkulið hafði þau áhrif á mig, að ég kærði mig ekki um neinn hildarleik — enda er ég friðsemdarmaður, eins og þið vitið. Gvendur og Jón voru þess albúnir að hefja leit að piltinum, en mér tókst að fá þá ofan af því. Ballið var eins og þið þekkið: Harmonikumúsik í hviðum, eins og útsynningur eða ekkasog í gamal- menni. Allar hugsanlegar tegundir af fólki, klæðnaðurinn svo sundurleitur, sem verða má, og skótauið frá flat- botnuðum hælbandaskóm, upp í nokkra þumlunga prikhælaskó. Enn- fremur strigaskór og hnallar. Fjöl- margir ölvaðir, flestir syngjandi. Dansað í frökkum með höfuðföt, reyktir vindlingar í dansinum. Rekið út á hálftíma fresti. Á að gizka í 3. eða 4. hálftíma rakst ég á piltinn, sem verið hafði með hinum unga sjóhatara í bílnum. Hann var einn. — Hvað hefurðu gert af vini okk- ar? spyr ég. — Ég lagði hann til hjá kunningja mínum, sem vinnur hérna upp frá. Hann hefir gott af nokkurra stunda svefni. Við gengum saman út í nóttina, tylltum okkur á þúfnakolla og feng- um okkur einn lítinn. — Ég geri ráð fyrir, að ykkur hafi þótt kynleg framkoma hans í bílnum, en það er kannski ekki að ástæðulausu. — Ja, ég verð að segja, að mér þótti hann haga sér svona fremur naglalega, anzaði ég. — Já, en ég býst fastlega við, að þú munir finna honum nokkuð til af- sökunar, ef ég segi þér sögu hans. Ég segi ykkur söguna, eins og maðurinn sagði mér hana: Hann átti heima í sjávarþorpi hér sunnan lands. Faðir hans var formað- ur á litlum vélbát og elzti bróðir hans reri á sama bátnum. Þegar vinur okkar — hann heitir reyndar Adólf Pálsson — var tólf ára, fórst bátur- inn með allri áhöfn, rétt utan við lendinguna. Fjöldi fólks, og þar á Sláturfélag Suðurlands Reykjavík. - Sími 1249. Símnefni: Sláturfélag. c<2>íáíur/iús. EFri/sfífiúS. ‘áBjúgnagerð. ‘EBZíðursuðu- verksmíðja. EJEei/Æfiús. Landsins fullkomnasta úrval af innlendum matvörum. Heildsölubirgðir frá Eggjasölusamlagi Reykjavíkur

x

Herjólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Herjólfur
https://timarit.is/publication/1871

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.