Herjólfur - 01.09.1940, Síða 18

Herjólfur - 01.09.1940, Síða 18
16 HERJÓLFTJB Vélsmíði Rennismíði Málmsteypa Eldsmíði Smíðum: Togvindur í vélbáta. Sterkar, einfaldar og auðveldar í notkun. Smíðum einnig: Dragnótavindur, Afdráttarvélar o. fl. o. fl. meðal Adólf litli, horfði á þetta hörmulega slys, en enginn mannlegur máttur megnaði að hjálpa. Ég þekkti þetta fólk vel — ég er fæddur og uppalinn í sama þorpi — og ég ætla ekki að lýsa neitt hinum bágu ástæðum þess, eða hinum erfiðu árum, sem nú komu. Það rættist raunar úr fyrir þeim seinna. En ég ætla bara að segja þér annað atvik úr lífi þessa unga manns. Þegar hann var tvítugur — það eru nú rétt sjö ár síðan — var hann trúlofaður in- dælli stúlku. Á kvöldin, eftir vinnu, sigldu þau oft út fyrir höfnina á litl- um seglbát, sem hann átti, ofurlítilli kænu. Kvöld nokkurt, síðla sumars í bezta veðri, sáu menn á eftir bát- krílinu út fyrir hafnartangann. Morg- uninn eftir fannst Adólf örmagna og rænulítill á kili, — en hún var horfin. Hann gat aldrei sagt, hvernig slysið bar að, en menn töldu víst, að ein- hver hrinan úr fjallaskörðunum, sem stundum koma fyrirvaralaust í land- nyrðingi, hefði hvolft bátnum. — Svona var nú sagan. Mér fannst ég heyra fyrir eyrum mér hinn hjá- róma söng Gvendar Páls: „Ég elska hafið æst, er stormur gnýr, ég elska það, er kyrrð og ró þar býr-------“ Ég sat lengi á þúfnakollinum, þegj- andi og niðurlútur, og ég vissi ekk- ert, hvað ég átti að segja ... ÁbyrgSarmaður: Ragnar Magnússon.

x

Herjólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Herjólfur
https://timarit.is/publication/1871

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.