Heimili og skóli - 01.08.1946, Síða 11

Heimili og skóli - 01.08.1946, Síða 11
HEIMILI OG SKÓLI 81 Elskandi brúðhjón! Við þetta tækifæri minnist ég und- urfagurrar líkingar, er postuli Krists hefur gefið oss um elskuna. Að íklæð- ast elskunni. Og þessi fagra líking um að gjöra elskuna að starfandi og áþreifanlegum mætti í lífi sínu, svo að hún verði eins augljós og verndi og veiti skjól eins og fötin, sem vér göng- um í, minnir mig á frásögn vinar míns. Sendiboði Guðs var á ferð á jörðunni. Hann átti að virða fyrir sér mannlífið, þessi engill hins almáttuga, og svo skýra frá, hvað hann sæi, frammi fyrir hástóli Guðs. ,,Eg sé,“ sagði engillinn, „að allir menn eru ófullokmnir. En innst í hjarta hvers og eins er hreinn og heilagur blettur, er þú hefur, Guð, umritað með fingri þínum. Þar vex jurt, sem aldrei fölnar og aldrei deyr. Á blöð hennar er ritað lögmálið um sælu og gleði, æðsta unað. — Þessi rós getur aldrei dáið, því að nafn hennar er kærleikur. Og nú er það óskin mín ykkur til handa, kæru brúðhjón, að þið í hjónabandi ykkar reynið sann- leika líkinganna. Að þið í daglegri umgengni íklæðist elskunni, sem er band algerleikans. Að þið sjáið hvort í öðru engil Guðs og hvort í annars hjarta rósina, sem aldrei deyr. Af því að hún heitir kærleikur — og í sál hvors annars sjáið þið þá björtu fram- tíðarmynd, sem þið kappkostið að líkj- ast. Hve unaðsríkt er það heimili, þar sem krleikurinn þannig stjórnar, eins og skáldið lýsir því: Hvar, sem ég lít, er ljósbrott eitt, í litlu stofunni er bjart og heitt, frá dagstriti hvílist þar höfuð þreytt í heimilisfriðarins ríki. Sem barnsaugu horfi inn í hjarta mér með himneskan unað í för með sér. Hvert smávægið ilríki og birtu ber í brjóst mér í engilslíki. Guð gefi ykkur náð til þess að njóta fórnandi kærleika hvors annars og gjöra heimili ykkar að himnaríki á jörð. Guði gefi ykkur náð til þess að finna hvort í annars kærleika boðskap- inn um lífið og ódauðleikann. Guð gefi ykkur náð til þess að vera honum vígð í allri ykkar sambúð og íklæðast elskunni í nafni Jesú Krists. — Verði heimili ykkar vináttunnar ríki. Skyldan sé þar drottning, bjart- sýnin blíð móðir og kærleikurinn kon- ungur. Verði heimili ykkar helgur friðar- staður. Ríki þar eining elskandi hjartna. Sigri þar máttur guðlegra gáfna. Blómgist þar allt, sem blessun veldur. Verði heimili ykkar helgur staður, þar sem Guð er allt í öllu. Frelsarinn Kristur verndar og vakir. Sannleikur ríkir sólu bjartari. Hugsjónir heilagar hefja lífið heilögum anda Guðs. — Amen. Fyrir nokkru birtist hér í blaðinu fermingarræða eftir séra Halldór Kol- beins, og nú kemur hér stutt hjóna- vígsluræða, en séra Halldór gefur aldr- ei svo saman hjón, að hann flytjí ekki ræðu, og tel ég það góðan sið. Brúð- kaupsdagurinn er og verður alltaf ein- hver merkasti viðburður í lífi hvers manns, því ber að gera þann dag virðulegan og hátíðlegan í senn. Það er annars eftirtektarvert og jafnframt

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.