Heimili og skóli - 01.08.1946, Side 13

Heimili og skóli - 01.08.1946, Side 13
HEIMILI OG SKÖLl 83 fundizt það fulllangur tími. Nú ætlast nýju lögin til þess, að yngri deildin hafi að meðaltali 21 kennslustund á viku alls. Mun þá hugsað, að 7 ára börnin fái 18 st. á viku, 8 ára börnin 21 st. á viku og 9 ára börnin 24 st. á viku ,eða því sem næst, því að senni- lega verður þetta eitthvað jafnað til með vor- og haustskólum yngri deild- arinnar, þar sem kennsludagurinn verður eitthvað lengri. Þetta atriði í hinni nýju löggjöf er mjög athyglisvert fyrir foreldra og skóla, hvort sem mönnum líkar það nú betur eða verr. Því að það er sjáan- lega mjög nauðsynlegt að leggja hina mestu áherzlu á að gera börnin snemma næs, svo að þau komizt yfir þennan alvarlega þröskuld á veginum. Ekki svo mjög vegna þess, að þetta sé einhver stóridómur yfir hæfileikum þeirra og getu síðar meir, því að sum börn eru mjög seinþroska, eins og vit- að er, heldur miklu fremur vegna hættu á minnimáttarkennd, sem er bölvaldur á þroskaleið allrar æsku. —- Það getur því hér eftir haft hinar al- varlegustu afleiðingar að vanrækja nám barna innan 10 ára aldursins, en það hefur því miður oft verið gert, þegar börnin áttu ekki að koma í skóla fyrr en 10 ára gömul. Þetta er því ný og alvarleg áminn- ing til þeirra, sem eru með þessi mál enn í þeirri óreiðu, að geta ekki kom- ið heimilunum til hjálpar með lestr- arkennsluna fyrr en í ótíma. Þar verða heimilin sjálf að bjarga þessu í bili, en það mun að sjálfsögðu reynast mikil nauðsyn víðast hvar, eða alls staðar, að knýja fram það fyrirkomu- lag á þessum málum, sem ætla má að verði fært um að veita þá aðstoð1 við nám hinna yngri barna, sem nægi til að koma þeim yfir þennan þröskuld við 10 ára aldurinn. Og í bæjunum mun þetta verka þannig,. að undanþágur yngri barna frá vor- og haustskóla koma varla til greina héðan af. Þeim mun flestum ekki veita af sínum tima til þess að geta flotið inn í eldri deildina. Síðara atriðið, sem ég vil hér drepa á, er það, að börnin eiga nú að ljúka fullnaðarprófi úr barnaskóla á því ári, sem þau verða 13 ára í stað 14 ára áð- ur, og heitir þetta próf ekki lengur fullnaðarpróf, heldur barnapróf. Þetta próf mun sennilega verða svipað og fullnaðarprófin hafa áður verið, þótt það sé tekið einu ári fyrr, því að ætlað er, að börnin komi betur undirbúin í eldri deild skólans en áður, en það á prófið við 10 ára aldurinn að tryggja. Það má því með réttu segja, að veru- legt nám barna færist aftur um 1 ár, að börn við 13 ára aldur eigi að vera svipuð á vegi stödd og 14 ára börnin áður. — Aldursflokkar skólaskyldunn- ar því aðeins sex nú í stað 7 áður, því að 14. árið heyrir unglingadeildinni til. Þetta, að taka þannig ofan af barna- skólunum 14. árið, er réttlætt með því, að barnaskólinn spenni yfir of stórt þroskasvið, 7—14 ára, og að 14 ára börnin flest séu svo miklu þroskaðri en áður, að þau geti tæplega talist lengur börn og eigi fremur samleið með unglingum á 15. og 16. ári. Hefi ég áður bent á þetta í sambandi við þær mælingar á börnum, sem fram hafa farið á sl. áratug, og eru að mestu samhljóða reynslu annarra Norður-

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.