Heimili og skóli - 01.08.1946, Qupperneq 14

Heimili og skóli - 01.08.1946, Qupperneq 14
84 HEIMILI OG SKÖLl Legar iíða tekur að haustnóttum og skólastarf stendur fyrir dyrum, fara að landaþjóða. En það, sem hér veltur á að verulegu leyti, er það, að unglinga- deildirnar geti boðið upp á svipað nám og efsti bekkur barnaskólanna befur gert, og þó vitanlega heldur fyllra. Einkum er þetta nauðsynlegt að því er allt verklegt nám og líkamsrækt snertir, því að það er einmitt á þessum árum, sem fjöldinn allur, sennilega yf- ir 2/3 hlutar alls skarans, þarfnast fyrst og fremst handiðjunnar sér til þroskagjafa og sálubóta. Það er því höfuðnauðsyn, að hin lengda námskrá og fyllri skólaskylda gleymi ekki þessu í öllu bókaflóðinu. Og það má ekki framkvæma skyldu 15. ársins fyrr en séð er fyrir því, að verklega kennslan geti orðið einn af höfuðþáttum náms- ins. Annars tel eg verr farið en heima setið. rifjast upp ótal vanadmál frá síðasta vetri, og mun þá sú spurning ofarlega í huo- flestra kennara, hvernia; fara eigi að því að vekja námsáhuga barnanna, svo að þau leggi sig fram við námið, hæði í skólanum og heima og góðum árangri verði náð. Og svo þegar á hólminn er komið, er margt reynt með misjöfnum árangri, og vonir og von- brigði skiptast á. í íslenzkum skólum, sem hafa mun styttri námstíma en víðast hvar tíðkast í nágrannalöndunum, verður ekki hjá því komizt að ætla börnunum eitt- lrvert heimanám, en einmitt í sam- bandi við það eru einhverjir mestu örðugleikar skólanna. Vanræksla á þessu sviði skapar kennurunum ekki aðeins vonbrigði og óþægindi, heldur hefur hún fyrst og fremst alvarlegastar afleiðingar fyrir börnin sjálf. Þarna geta heimilin veitt mikilvæga aðstoð. í fyrsta lagi með því að fylgjast með

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.