Heimili og skóli - 01.08.1946, Síða 17

Heimili og skóli - 01.08.1946, Síða 17
HF.IMILI OG SKÓLI 87 , ,Já, hann var skammsýnn maður allan aldur og utar sínum verklrring sá ei hót, þau orð, sem áttu að hrífa hjartans rót, þau hurfu’ honum sem bjallnaglam og skvaldur. Þjóð, föðurland og allt, sem hátt er hafið. var honum jafnan þokuskýjum vafið. En auðmýktin var einkunn jressa manns, hann var sem höggvinn kvistur kirkju og ríki. Hann kunni ei vera þegn, en heima við í sinna hóp, — þar var hans verksvið — þar var hann góður, mikill, sjálfs síns líki. Á sína tóna hann lék í hverju Ijóði, hans líf var strengjaspil með deyfðu hljóði. í kyrrð var stríðið háð og fallið hljótt.“ Guðmundur Friðjónsson hefur líka lýst á fagran og eftirminnilegan hátt hinum þrönga verkahring konunnar í kvæðinu: „Ekkjan við ána“, þar sem þessi fagra vísa er: ,,Hún elskaði ekki landið, en aðeins jaennan blett. af ánni nokkra faðma og hraunið svart og grett. Er grannarnir sig fluttu á hnöttinn hinum megin, hún hristi bara kollinn og starði fram á veginn. Nei, það fer ekki eftir því, hvar er lifað, lieldur hvernig. — Gildi hins þrönga hrings, heimilisins, liggur þess vegna heldur ekki í því, að hann er þröngur, heldur í því, að hann skapar mönnunum ákveðin skilyrði, þar sem sumt af því, er þeir eiga bezt í sál sinni, nýtur sín og þroskast betur en annars staðar. Mun ég nú að síðustu reyna að draga fram í hverju þessi verðmæti heimil- isins eru fólgin, og hvers vegna okkur konunum ber að líta á stöðu okkar þar sem réttindi, er við eigum kröfu til að eignast, köllun, er við séum bornar til. — Þetta er auðvitað móður- réttindi konunnar með þeim skyldum, sem honum fylgja. — Ég hygg, að eng- in kona finni sjálfa sig til fulls fyrr en hún verður móðir. Með því eðli sínu hlýtur hún að standa í miklu nánara sambandi við lífið en karlmaðurinn. Hún situr eiginlega við uppsprettu þess og teygar af lindum þess. — Allt annað, sem bundið er við eðli kon- unnar sem móður, er frá þessu runnið og skilst aðeins gegnum þetta eina. Hún hefur drukkið lífsins vatn. Því hvaðan ætti annars að stafa þessi marg- lofsungni móðurkærleikur og fórnfýsi sú og þróttur, sem við þann eiginleika eru bundnir? Nú má segja, að þessi hlið hins kven- lega eðlis krefjist ekki heimilis. Kcnur geta átt börn, án þess að eiga heimili, og til þess ætlast þær þjóðmálastefnur og Jreir menn, sem amast við heimil- unum. En þeir sömu menn ætlast heldur ekki til, að mæðurnar ali upp börn sín, eins og ég hef áður minnst á. Vel má vera, að þessir menn hafi á réttu að standa um það, að undir eftir- liti ríkisins sé hægt að veita börnunum eins góða, og kannske oft betri, líkam- lega aðbúð og aðhlynningu, og frá sjónarmiði efnishyggjunnar er það nægilegt. — En hver sér um andlegu hliðina? — Ég á ekki við, að ríkið geti ekki séð munaðarlausum börnum fyr-

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.