Heimili og skóli - 01.08.1946, Blaðsíða 21

Heimili og skóli - 01.08.1946, Blaðsíða 21
HEIMILI OG SKÓLI 91 Kassinn á hillunni. Vinur minn nokkur var einn af átta syst- kinum, og faðir hans varð að horfa í hvem skilding, svo að laun hans hrykkju til. Þeg- ar eitthvert barnanna bað um peninga til að kaupa sér eitthvað, t.d. bolta eða háls- festi, tók faðir þeirra peningana upp úr buddunni. En hann rétti baminu þá ekki, hverjum flokki innan 9 mánaða ald- u rs. Tnla Dauðsf. Dauðsf. barna Tala % Alveg á brjósti 9749 15 0,15 A brjósti og pela 8605 59 0,7 Pelabörn 1707 144 8,4 Það dóu m. ö. o. 56 sinnum fleiri pelabörn en brjóstabörn. Þessi út- koma getur ekki verið tilviljun, staf- andi af því, að börnin hafi verið valin sérstaklega eða tala þeirra verið of lág. Rannsóknin tók yfir öll þau börn, sem komu á miðstöð ungbarnaverndarinn- ar („Infant Welfare Centre“) í Chica- go, og tala barnanna er ekkert smá- ræði, eða álíka og fæðast hér á landi á 8 árum. Mismunurinn á dánartölunni innan flokkanna hlýtur því að liafa ákveðnar orsakir og sannar betur en langar prédikanir þýðingu þess, að börnunum sé gefin hin eina rétta ung- barnafæða, sem þau eiga heimtingu á, móðurmjólkin. Þessar tölur sýna enn- fremur, að þrátt fyrir hinn lága ung- barnadauða hér á landi, fara mörg líf forgörðum, sem auðvelt væri að bjarga, ef allar mæður gerðu skyldu sína. („Nýjar leiðir“). heldur sagði: „Eg ætla að setja peningana þína í kassann héma á hillunni. Þú mátt ekki snerta þá í viku. Ef þig langar þá enn til að kaupa þér bolta, þá máttu taka pen- inga fyrir hann úr kassanum. En ef þú ert kominn á aðra skoðun, og þig langar ekki svo mjög mikið í boltann, þá máttu taka peningana og leggja þá í bankabókina þína.“ Þessu hélt faðirinn áfram öll æsku- og unglingsár barnanna. Og öll áttu þau orðið álitlega upphæðir í banka, sem þau voru mjög hreykin af. Jafnframt lærðu þau að meta mikils þau leikföng eða þá hluti, sem þau keyptu. (Urval: Alison Quinn). Stóðust ekki prófið. Gamansamur, en merkur kennari, sem látið hefur af störfum fyrir nokkru, hafði fyrir fáum árum undir höndum bekk, sem þótti mjög eftirtektarlaus í kennslustundum. Eitt sinn sagðist kennari þessi hafa gert til- raun með athygli barnanna, sem var á þann veg, að dag nokkurn í miðri kennslu- stund kvaðst hann allt í einu hafa farið að tala við þau á ensku. — Enginn í bekknum tók eftir þessari nýbreytni. Misnotkun á jjjóðsöngslögum. Það hefur oft verið vakin athygli á því, hve óviðeigandi það væri, að við notuðum þjóðsöngslög ýmissa þjóða við venjuleg dægurljóð, sem sungin eru við hversdagsleg tækifæri seint og snemma. Hér ættu skól- arnir að hefjast handa og kippa þessu i lag. Og þó að lög þessi séu vinsæl, og ef til vill nálega samgróin ljóðunum, sem þau eru notuð við, ætti þó að vera hægt með tím- anum að þoka þeim til hliðar, og það því fremur sem til munu vera falleg, íslenzk lög við alla þessa umræddu texta. Það, sem skólarnir einfaldlega þurfa að gera, er að kenna börnunum hin íslenzku lög við þessa

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.