Heimili og skóli - 01.08.1946, Blaðsíða 22

Heimili og skóli - 01.08.1946, Blaðsíða 22
92 HEIMILI OG SKÓLI texta og munu þá hin smátt og smátt hverfa. Við getum reynt að gera okkur grein fyr- ir, hvernig okkur myndi verða við, ef við kæmum til einhvers af Norðurlöndunum eða Englands og heyrðum þar einhverja hversdegslega gleðisöngva sungna undir hinu dýrðarlega lagi „O guð vors lands“. Það er því sjálfsögð skylda okkar að bera einnig virðingu fyrir þjóðsöngvum annarra þjóða og temja okkur enga misnotkun á þeim. Sjómanna- og gestaheimili Siglufjarð'ar Heimili og skóla hefur fyrir skömmu borizt skýrsla um störf Sjómanna- og gesta- heimilis Siglufjarðar árið 1945. StúkanFram- sókn starfrækti heimilið eins og að undan- förnu, og starfaði það að þessu sinni frá 22. júní til 30. sept. Aðsókn að heimilinu hefur aldrei verið meiri en þetta ár. og sýnir það vaxandi vinsældir þessarar stofnunar. Sam- kvæmt dagbók heimilisins komu þangað 15396 gestir á tímabilinu og komst gesta- talan hæst á einum degi upp í 583. Enda er allt kapp lagt á að gera þessa stofnun að sem beztu og hlýlegustu heimili fyrir hina mörgu heimilislausu gesti, sem þarna koma yfir síldveiðitímann, og má óhætt fullyrða, að öll þjóðin stendur í þakklætisskuld við þessa stofnun og þá menn, sem hana reka. Nú hafa forráðamenn heimilisins hug á að færa enn út kvíarnar, og þá helzt með nýrri og fullkominni byggingu. í stjórn Sjómanna- og gestaheimilisins eru: Pétur Björnsson kaupmaður, Andrés Hafliðason forstjóri og Óskar J. Þorláksson sóknarprestur. Islendingasögur á norslcu. Elzta barnablað Norðmanna — „Norsk Barneblad“ — hefur nýlega gefið út á norsku landsmáli tvær af Islendingasögum okkar til lestrar fyrir börn. Það eru Fljóts- dæla og Finnbogasaga. Forsíðumynd fylgir af íslenzkum bóndabæ. Kennaraþing. Fyrir skömmu er lokið 9. fulltrúaþingi Sambands íslenzkra barnakennara í Reykja- t, ' " ? HEIMILI OG SKÓLI Tímarit um uppeldismál Útgefandi: Kennarafélag Eyjafjarðar Ritið kemur út f 6 heftum á ári, minnst 20 síður hvert hefti, og kostar árg. kr. 10.00, er greiðist fyrir 1. júní. Útgáfustjóm: Snorri Sigfússon, skólastjóri. Kristján Sigurðsson, kennari. Hannes J. Magnússon, yfirkennari. Afgreiðslumaður: Sigurður Jónsson skrifstofumaður, Eyrar- landsveg 29. Innheimtumaður: Eiríkur Sigurðsson, kennari, Hrafnagils- stræti 12, sími 262. Ritstjóri: Hannes J. Magnússon, Páls Briems-götu 20, sími 174 Prentverk Odds Bjömssonar jl--------------■ ■ ---------J vík, og hafði það mörg merkileg mál til meðferðar. í stjórn sambandsins til næstu tveggja ára voru þessir menn kosnir: Ingi- mar Jóhannesson, Arngrímur Kristjánsson, Guðmundur I. Guðmundsson, Pálmi Jósefs- son, Guðjón Guðjónsson, Jónas B. Jónsson of Arni Þórðarson. — M. a. var rætt um skólalöggjöfina nýju, ríkisútgáfu námsbóka, áfengismálin, skógrækt og dýraverndun og ályktanir voru gerðar í öllum þessum mál- um. Sérstök áherzla var lögð á að farið yrði að spyma við fótum og vinna á móti þeirri hóflausu áfengisnautn, sem nú setur svip sinn á allt þjóðlífið. Var einkum skorað á kennara og foreldra að leggja þar fram krafta sína. Skólastjórar og kermarar víðs vegar um land eru beðnir að senda Heimili og skóla myndir af skólum sínum, hvort sem þeir em gamlir eða nýir, og væri gott ef myndunum fylgdi stutt lýsing á húsinu, getið um aldur o. fl. Þá er enn óskað eftir því að sendar verði stuttar skólafréttir og aðrir stuttir pistlar er snerta uppeldis- og skólamál.

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.