Heimili og skóli - 01.10.1947, Side 3
Heimili og skóli
TÍMARIT UM UPPELDISMÁL
6. árgangur. Sept.—Okt. 5. hefti
HANNES J. MAGNÚSSON:
UPPELDI FYLGIR ÁBYRGÐ
- KAFLI ÚR SKÓLASETNINGARRÆÐU —
------En hvort sem námið verður
hér mikið eða lítið, er eitt nauðsyn-
legt; að það sé rækt vel. Sviksemi við
nám er hættuleg siðferði barnsins og
getur orðið vísir þeirra vinnusvika,
sem eru að verða þjóðarlöstur, jafnt á
hinum æðstu sem hinum lægstu stig-
um þjóðfélagsins. Skólarnir og heim-
ilin geta í sameiningu lagt grundvöll
þess vinnusiðgæðis, sem vér þurfum að
endurreisa á ný. En það getum vér
með því, að kenna bömunum að
vinna öll sín störf i sambandi við skól-
ann með alúð og samvizkusemi. Þá
sameinast fræðsla og uppeldi í einn
farveg, eiqs og vera ber.
Það er margra manna mál, að þegn-
skapur og trúmennska séu rénandi
dyggðir með þjóðinni, en ef svo er,
bíður vor mikil hætta. Og ef heimilin
og skólarnir rækta ekki þessar dyggðir,
þá gera það ekki aðrir. Þess vegna er
skylduræknin svo mikilvægt atriði í
öllu skólastarfi. Og látið yður ekki
detta í hug, að það skipti mestu máli,
hvort nemandinn fær einkunnina 6, 7
eða 8, eða hvort deildin hans er kennd
við A, B eða C. Nei, það skiptir mestu
máli, að hann svíki aldrei neitt, sem
honum hefur verið trúað fyrir, að
hver nemandi sýni þá þegnhollustu og
trúmennsku í starfi sínu, að hann geti
sagt á hverju kvöldi, þegar hann leggst
til hvíldar: í dag hef ég gert skyldu
mína. Og þetta eiga góð skólabörn að
geta sagt á hverju kvöldi.
En því miður eru mismunandi að-
stæður á heimilunum til að börnin
eigi hægt með að gera skyldu sína,
bæði viðráðanlegar og óviðráðanlegar,
og vil ég þá fyrst nefna hið óhjá-
kvæmilegasta af öllu, en það er kyrrð
og næði. Ég veit, að víða er erfitt að
fullnægja þessu skilyrði, en mikið má,
ef vel vill .Annars er það alvarlegt
íhugunarefni, og þá ekki sízt frá sjón-
armiði uppeldisins, hversu líf vort er
að verða ihávaðasamt og friðvana. Alls
staðar skortir kyrrð og jafnvægi. Þetta
bítur ef til vill ekki á oss, sem komum
fullþroskuð inn í þetta umhverfi, en
þetta hefur óhjákvæmilega alvarleg
áhrif á böm vor. Reglubundið og
kyrrlátt líf er hið hamingjusama og
frjóa líf. Þess vegna er kyrrð og friður
í heimilunum eins mikilvægt vaxtar-
skilyrði og maturinn og drykkurinn. í
sam'bandi við þetta vil ég vekja athygli