Heimili og skóli - 01.10.1947, Síða 7

Heimili og skóli - 01.10.1947, Síða 7
HEIMILI OG SKÓLI Ef málið er skoðað frá þessu sjónar- miði og uppeldi barnsinis skilið sem sameiginlegt viðfangsefni heimilis og skóla, þá getur engum dulizt, hve mik- il nauðsyn er á því, að þau hafi nána samvinnu sín á milli. Ekki geta tveir menn leyst vandasamt starf af hendi sameiginlega, nema þeir viti vel hvor um annars starfsaðferð. Hvað skal þá segja um jafn flókið og fjölþætt starf og uppeldið er? Það getur aldrei borið fullan árangur, án hinnar nánustu samvinnu. Það væri í alla staði eðli- legt, að kennarar stigu fyrsta sporið til þessa merkilega samstarfs, og eflaust hafa margir þegar gert það, en samt á það langt í land, að slík samvinna verði algeng með íslendingum. Frá því er sagt í Fóstbræðra sögu, að Skúfur frá Stokkanesi sigldi til Græn- lands, og brotnaði ráin í ofviðri. Á skipi með honum voru Þormóður Kol- brúnarskáld og maður nokkur ókunn- ur, sem Gestur nefndist. „Skúfr mælti þá við Þormóð: ,Vill þú skeyta rá vára saman?‘ Þormóðr svarar: ,Ekki em ek hagr; bið þú Gest gera at ránni; hann er svá sterkr, at hann mun stinga mega saman rárendunum/ Skúfr gengr þá til Gests ok bað hann bæta rána. Gestr svaraði: ,Ekki em ek hagr; mæl þú, at Þormóðr geri at, því at hann er svá orðhagr, at hann mun yrkja saman rárendana, svo at fastir sé. En fyrir nauðsynja sakar, þá mun ek telgja ann- an hluta rárinnar, en Þormóðr telgi annan!‘ Nú er fengin sín öx hvárum þeirra, ok telgir sinn hlut hvárr þeirra. Gestr lítr nökkut um öxl til Þormóðar. Þá er hann hafði telgt sinn hlut rárinn- ar, sezk hann niður á búlkann, en Gestr telgir nökkuru lengur þat tré, er $7 hann var at. Ok er lokit var at telgja, þá bar hann saman hlutina, ok þurfti þá af hvárigum hlut að taka. Nú festi Gestr saman rána.“ (ísl. fornrit VI, bls. 223.) Þessi yfirlætisfulla frásögn af þótta og hagleik þeirra Þormóðar er sem til- valin dæmisaga um gagnkvæma af- stöðu heimilis og skóla. Hvoru um sig finnst það vera einhlítt í uppeldisstarf- inu. í hálklæringsháði vísa þau hvort til annars snilli. Hvort þeirra telgir sinn rárenda, án þess að ganga úr skugga um það, að sniðið verði hið sama á báðum. En þó að það sé eflaust nokkur vandi að skeyta saman brotna rá, svo að hægt sé að vefja hana með snæri, eins og gert mun hafa verið á skipi Skúfs, er það samt miklu meiri vandkvæðum bundið að fella saman uppeldisáhrif heimilis og skóla, svo að fullt samræmi verði, og hvorugur aðil- inn vanræki einhvern þátt uppeldis- ins í því skjóli, að hann sé hlutverk hins. Ég hef stundum fært þetta í tal við kunningja mína meðal kennara og fengið misjafnar undirtektir. Flestir benda mér þó á það, að kennari eða skólastjóri kalli foreldra á sinn fund og eigi tal við þá, ef mikill misbrestur verði á námi eða annarri hegðun barnsins. Og ef mér hefur skilizt rétt, finnst mörgum sem skólinn hafi með þessu fullnægt þeirri kröfu um sam- vinnu við foreldra, sem með sanngirni verði fram borin. En ég get ekki fall- izt á það. Að mínum dómi eru það ekki fyrst og fremst léleg námsafrek barnsins, sem gefa kennaranum tilefni til að leita samvinnu við foreldra þess, heldur engu síður góð afrek í náminu,

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.