Heimili og skóli - 01.10.1947, Qupperneq 17

Heimili og skóli - 01.10.1947, Qupperneq 17
HEIMILI OG SKÓLI 107 hafra og sauða. Hafrarnir, þ. e. a. s. næm og greind börn, sem standast inn- tökupróf í prófmiðskólann, hefja fjög- urra ára nám þar. Hæfileikaminni börn lenda í próflausa-miðskólanum, sem sagt er að hafi ósýnilegu áletrun- ina, „Hér lokast allar vonir úti“, yfir dyrum sínum. Hversu langt nám böm stunda í próflausa miðskólanum, er mismunandi, en flest útskrifast úr 2. eða 3. bekk. Okkur íslendingum, sem fram að þessu höfum verið svo heppnir að hafa barnaskólann óskiptan til 14 ára ald- urs, kemur þessi skipting all undarlega fyrir sjónir. Danskir skólamenn eru ekki sammála um kosti og galla fyrir- komulagsins, en þeir, sem mest kveð- ur að í uppeldismálum nú, telja skipt- inguna óhæfa, og frá þjóðfélagslegu sjónarmiði séð óverjandi, þar eð skól- inn skiptir börnunum í eins konar undir- og yfirstétt og styður þannig stéttamismuninn, sem frá mannlegu sjónarmiði ætti að vera sem minnstur. Samkvæmt nýju, dönsku fræðslu- lögunum, sem gengu í gildi árið 1937, eru báðar deildir miðskólans taldar barnaskóli, en frá 1903—37 var mið- skólinn talinn æðri skóli. Þrátt fyrir þennan lagabókstaf, lík- ist miðskólinn ekki venjulegum barna- skóla. í prófskólanum, sem, eins og ég gat um áður, hýsir greindustu og dug- legustu börnin, er kennslan að miklu leyti miðuð við framhaldsnám í gagn- fræðabekk eða menntaskóla. Auk námsgreina barnaskólans læra börnin ensku, þýzku, stærðfræði, inannkyns- sögu, cðlisfræði, efnafræði og lífeðlis- fræði, ennfremur læra drengir smíðar og stúlkur handavinnu. Eins og sjá iná af þessari upptalningu ,eru námsgrein- arnar margar í þessum skóla og börnin eru í skólanum 6 klukkustundir á dag, svo að námið krefst mikillar ástundun- ar. Oft slysast gáfnatreg börn og let- ingjar til að standast inntökupróf mið- skólans, þeim verður lífið í þessu prófahreiðri óbærilegt og venjulega heltast þau úr lestinni í 2. eða 3. mið- skólabekk. Oft hverfur einn þriðji hluti barnanna úr prófskólanum áður en þau komast í 4. miðskólabekk. Ástæðurnar til þessa mikla mannfalls eru niargar, en aðaloröskin er sú, að foreldrar vilja koma bömum sínum í prófskólann, hvað sem tautar og raul- ar, og oft tekst með eilífum ítroðningi að berja inn í börn næga þekkingu til þess að standast inntökupróf, þótt hæfileikana skorti til þess að fylgjast með í prófskólanum. Miðskólapróf veitir engin réttindi, en það tryggir börnunum inngöngu í gagnfræða'bekk, og ef það er vel að sér, í fyrsta menntaskólabekk, sem er til- svarandi 4. menntaskólabekk á íslandi. Til gamans skal ég geta þess, að dansk- ar miðskólanámsbækur voru notaðar við kennslu í eðlisfræði og lífeðlis- fræði, þegar ég var í Kennaraskólan- um heima fyrir 10 árum síðan, svo að enginn þarf að efast um, að þessi „barnaskóli“ krefst töluverðs þroska og hæfileika. Aðalkosturinn við miðskólann er talinn sá, að prófskólinn losnar við allra lélegustu nemendurna, sem myndu hindra hina greindari í að öðl- ast þá þekkingu, sem krafizt er til mið- skólaprófs. Próflausi miðskólinn veitir viðtöku öllum þeim börnum, sem falla við inn-

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.