Heimili og skóli - 01.10.1947, Side 19
HF.IMILI OG SKÓLI
109
X i 1
«a
I I
ans
Lítill fjögra ára drengur úr Reykjavík var
sendur austur á land til afa og ömmu og átti
að dvelja þar sumarlangt. Eitt kvöld fer afi
hans að forvitnast um, hvað hann kunni af
bænum og spyr m. a., hvort hann kunni Fað-
ir vor.
„Faðir vor?“ segir drengurinn undrandi.
„Nei, afi, það kann enginn maður Faðir vor í
Reykjavík."
Inga litla, þriggja ára telpa, talar enn mjög
óskýrt barnamál, svo að fjölskylda hennar á
jafnvel oft erfitt með að skilja hana. Dag
nokkurn er pabbi hennar að leika við hana
og Þorsteinn bróðir hennar, sem er nokkrum
árum eldri. Inga litla skrafar mikið og reyn-
ir árangurslaust að gera pabba sínum skiljan-
legt, hvað hún sé að segja. Loks snýr pabbi sér
að Þorsteini og segir: „Skilur þú, hvað hún er
að segja?“
Þorsteinn hristir höfuðið áhyggjufullur og
segir: „Nei, ég skil hana ekki heldur. En, á
i ég að segja þér, hvað ég lield, pabbi: Ég
held, að hún sé ekki íslenzk."
Sveinn hafði lokið við að lesa kvöldbænina.
Mamma slekkur á lampanum og fer með
ht.nn út úr herberginu, en það vill Sveinn
ekki. Hann vill láta kveikja á lampanum, því
að hann er hræddur við að sofna í myrkrinu.
„En, litli vinur minn. Guð er hjá þér,“
sagði mamma og fer síðan út úr herberginu.
Þá heyrist rödd Sveins í myrkrinu:
„Mamma, farðu út með guð, en komdu inn
með lampann."
Pétur var úti að ganga með mömmu sinni
og mætir líkfylgd. Hann gengur nokkra stund
þegjandi, en lætur síðan spurningunum rigna
yfif mömmu sína:
„Hvers vegna liggur hann þarna i kistunni,
mamma?"
„Al því að hann er dáinn, og nú á að fara
að grafa hann,“ segir mamma.
„Hvar verður liann þá?“
„Sálin fer í liimininn til guðs, en kroppur-
inn liggur niðri í jörðinni," svarar mamma.
„En, hvar liefur hann þá handleggina og
fæturna?"
Heilsuvemd.
Heimili og skóla hefur borizt 1. hefti þ. á.
tímarits Náttúrulækningafélags íslands,
Heilsuvernd, og flytur það margar athyglis-
verðar greinar að vanda. Helztu greinar þessa
heftis eru þessar:
I heimsókn hjá dönskum kvenlækni eftir
Jónas Kristjánsson—Krabbamein læknað með
nataræði, þýdd grein — Meltingin — Hálfát.t-
ræð kona læknast af eksemi, skráð af Vil-
hjálmi Þ. Bjarnar — Skeggsýki læknast með
heitum böðum eftir Björn L. Jónsson o. fl.
r, ------------ ?
HEIMILI OG SKÖLI
Tímarit um uppeldismál
Útgefandi: Kennarafélag Eyjafjarðar
Ritið kemur út í 6 heftum á ári, minnst
20 síður hvert hefti, og kostar árg. kr.
10.00, er greiðist fyrir 1. júní.
Útgáfustjóm:
Snorri Sigfússon, námsstjóri.
Kristján Sigurðsson, kennari.
Hannes J. Magnússon, skólastjóri.
Afgreiðslu- og innheimtumaður:
Arni Björnsson, kennari, Klapparstíg,
Akureyri.
Ritstjóri:
Hannes J. Magnússon, Páls Briems-götu
20, sími 174
Prentverk Odds Bjömssonar
■ -... ■ :