Heimili og skóli - 01.10.1947, Blaðsíða 23
HEIMILI OG SKÓLI
113
Snorrabikar
r •il
Þegar Barnaskóli Akureyrar var
settur í haust, flutti Snorri Sigfússon,
fyrrv. skólastj., kveðjuávarp. Þakkaði
hann kenríurum ognemendumskólans
fyrir góðasamvinnu undanfarin 17 ár,
foreldrum fyrir hlýjan hug til skólans
og skólanefndum þeim, er hann hafði
starfað með, fyrir góða samvinnu.
Við þetta tækifæri færði hann skól-
anum að gjöf íorkunnarfagran bikar,
útskorinn af Geir Þormar tréskurðar-
meistara. Skal bikar þessi vera farand-
gripur í eign barnaskólans og veitast
sem verðlaun þeim bekk, er nær bezt-
um árangri í sundi ár hvert. Verður nú
keppt um þennan grip í fyrsta sinn á
komandi vori.
Vandamál, sem þarf að ræða.
í síðastliðinni páskaviku hélt kennarasam-
bandið enska ársþing sitt, og voru þar mættir
um 2500 kennarar. Mörg mál voru þarna
rædd að vonum, en aðalumræðuefni þingsins
var lenging skólaskyldunnar upp í 15 ár, sem
nú er orðin að lögum í Bretlandi, og hvernig
verja eigi því ári, sem þarna er bætt við skóla-
skylduna. Öllum var það ljóst, að langsam-
lega mestur hluti allra barna, vildi helzt vera
laus við þetta skólaár, en það var þó von
margra, að með Daltonaðferðinni, sem Eng-
lendingar nota allmikið, eða með öðrum orð-
um með frjálslegum vinnubrögðum, mætti þó
gera börnunum námið aðgengilegt og árang-
ursríkt. Sú skoðun kom fram, að æskilegt væri
að koma nemendunum í snertingu við sem
allra flest störf hins daglega lífs, og þá m. a.
með því að fá fulltrúa frá hverri starfsgrein
þjóðfélagsins til að koma í skólana og segja
þar hver frá sinni grein. Sú skoðun var ríkj-
andi, að leggja bæri kapp á að vekja fróð-
leiksfýsi nemendanna og áhuga þeirra fyrir
vandamálum samfélagsins.
Þá voru þarna rædd mörg önnur mál, svo
sem kennaraeklan, tómstundastörf barna,
barnakvikmyndir, foreldrafélög o. fl. Þar var
meðal annars skorað á skólayfirvöldin að
hlutast til um, að hámarkstala nemenda í
hverri deild væri: 30 í bóknámsdeildum, en
15 í verknámsdeildum, þegar völ yrði á næg-
um kennslukröftum.
Skátablaðið.
Heimili og skóla hefur borizt 5.-8. tölu-
blað Skátablaðsins þ. á., en það er gefið út af
Bandalagi íslenzkra skáta. Efni þessara blaða
ei mjög fjölbreytt og frágangur allur góður.
Þarna skiptast á ritgerðir, sögur, minningar-
greinar, fréttir af skátamótum og ýmiss konar
skátafróðleikur auk fjölda mynda. Ritstjóri
er Vilbergur Júlíusson. Mér þætti líklegt, að
blað þetta væri vinsælt meðal skátaæsku
landsins.
Þetta hefti Heimilis og skóla er 22 siður.