Heimili og skóli - 01.06.1949, Blaðsíða 5

Heimili og skóli - 01.06.1949, Blaðsíða 5
Heimili og skóli TÍMARIT UM UPPELDISMÁL 8. árgangur Maí—Júní 3. hefti UPPELDISMÁLAÞINGIÐ Sjötta uppeldismálaþing S. í. B. var haldið í Reykjavík 24.-27. júní s.l. Að þessu sinni stóð Barnaverndarráð Is- lands einnig að því. Aðalverkefni þingsins voru barnaverndarmál. Þing- ið var fjölsótt og sátu það auk kennara margir prestar og fulltrúar barna- verndarnefnda. Formaður S. í. B., Ingimar Jóhann- esson, setti þingið með ræðu og Bjarni Ásgeirsson, ráðherra, flutti ávarp fyrir hönd menntamálaráðherra. Erindi fluttu: Dr. Matthías Jónasson um manngildi afbrotabarna, Símon Jó- hann Ágústsson, prófessor, um störf og starfsskilyrði barnaverndarnefnda, og frú Bodil Begtrup, sendiherra Dana, um barnavernd Sameinuðu þjóðanna. Ályktanir uppeldismálaþingsins. Uppeldismálaþing S. í. B., haldið í Reykjavík 24.-27. júní 1949, lýsir yfir því áliti sínu, að vinna þurfi að barna- verndarstörfum með tvö sjónarmið í huga: I fyrsta lagi að vernda börn og unglinga fyrir óhollum áhrifum og í öðru lagi að bjarga þeim, sem ein- hverra hluta vegna hefur reynzt ófært að lifa lífi sínu á heilbrigðan hátt. Til- lögur þingsins miðast því við þessi tvö sjónarmið, enda þótt þinginu sé ljóst, að í framkvæmdinni verða þau ekki aðskilin til fulls. Þingið vill vekja athygli á því, að það telur óhjákvæmilegt, að ríkisvald- ið, bæjar- og sveitarfélög auk einstakra félaga og stofnana leggist á eitt, ef nokkur varanlegur árangur á að nást í þeim málum. Þingið felur S. í. B., í samráði við Barnaverndarráð íslands, að koma eft- irfarandi tillögum og ályktunum á framfæri við ríkisstjórn og aðra aðila, er hlut eiga að máli. I. Vernd barna og unglinga. Það er skoðun uppeldismálaþings- ins, að allmörg heimili til sjávar og sveita séu þess ekki umkomin að veita börnum fullnægjandi uppeldisskil- yrði, sem tryggi þeim eðlilegan þroska. Geta margs konar ástæður komið þar til greina, svo sem veikindi, vöntun á hjálp við innanhúsústörf, hirðuleysi, þröngar og óhollar íbúðir, vöntun leik- svæða, illa hagnýtt húsrými o. s. frv. Aíleiðingarnar verða líkamlegar, and- legar og siðferðilegur vanþroski, sem hamlar framförum við nám og vinnu og veikir barnið gegn siðferðilegum hættum. Þegar á það er litið. að miklu varðar um framtíð barnanna, að upp-

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.