Heimili og skóli - 01.06.1949, Side 6

Heimili og skóli - 01.06.1949, Side 6
50 HEIMILI OG SKÓLI eldið takist sem bezt á hinum fyrstu sex til sjö árum ævinnar, er nauðsyn- legt, að börnunum bjóðist á þessu ævi- skeiði holl og margberytileg viðfangs- efni við þeirra hæfi. Þingið beinir því til allra, er hér eiga hlut að máli, að vinna sem ötullegast að hinu aðkallandi viðfangsefni barna- verndarmálanna. í því sambandi bendir þingið á eft- irfarandi verkefni: a) Vöggustofum, dagheimilum og leikskólum sé komið upp svo mörgum, sem þurfa þykir í bæjum og þorpum. b) Hæfir menn séu ráðnir til að koma á skipulagðri leiðbeiningastarf- semi meðal foreldra um uppeldi barna. Sé þannig komið í veg fyrir ýmis mistök, er ella geta haft slæmar afleið- ingar. c) Leikvöllum sé fjölgað í bæjum og þorpum og nýtt til hlítar þau uppeldis- skilyrði, er þeir hafa að bjóða, t. d. með því að búa þá sem hentugustum tækj- um og staðsetja þá þannig, að börn þurfi ekki að sækja til þeirra langt frá heimilum sínum. d) Tómstundaheimili handa börn- um á skólaskyldualdri verði stofnuð svo víða, sem þurfa þykir. e) Tómstundavinna og félagsstarf- semi í skólum og hjá ýmsum félögum, sem starfa fyrir unglinga, sé sem mest miðuð við það, að athafnaþrá hvers einstaklings sé fullnægt með fjölbreytt- um viðfangsefnum. f) Við endurskoðun á námsskrám fyrir barna- og unglingaskóla verði námsefni stillt svo í hóf, að daglegur starfstími nemendanna sé í samræmi við aldur þeirra og þroska og þannig komið í veg fyrir, að vinna sú, sem heimtuð er af nemendunum, verði of mikil. g) Verknámsdeildir séu sem fyrst stofnaðar við framhaldsskóla landsins. li) Haldið sé áfram þeirri viðleitni fyrir börn, sem af ýmsum ástæðum ekki er unnt að hafa í venjulegum skólum. Telur þingið, að víða gætu mörg fræðsluhéruð sameinast um einn slíkan skóla. j) Lagt sé mest kapp á það, bæði af kennurum og prestum, að nota þá möguleika, sem fólgnir eru í trúar- bragðafræðslu og fermingarundirbún- ingi til þess að veita börnum og ungl- ingum siðferðilegan grundvöll og sið- ferðilegt takmark að keppa að í lífi sínu, fyrst og fremst með því að gera mynd Krists sem skýrasta í hugum þeirra. II. Björgan barna og unglinga á glapstigum. Það er álit þingsins, að á seinustu áratugum, er þúsundir manna hafa flutzt til kaupstaðanna og mikill hluti þjóðarinnar hverfur frá aldagömlum uppeldisaðstæðum, hafi ekki verið nema að nokkuru leyti séð fyrir þeim uppeldisskilyrðum, er vegið gætu móti þeim, er horfið var frá. í umróti ófrið- ar og „eftirstríðsára" virðist og hafa slaknað á siðferðiskennd þjóðarinnar, mat á verðmætum raskast, og stundar- munaður metinn meir en það, sem var- anlegt menningargildi hefur. Við frumbýlingshætti þjóðarinnar í nýjum heimkynnum og við ný viðhorf hefur ískyggilega mikill fjöldi barna og unglinga villzt til lausungar og lög-

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.