Heimili og skóli - 01.06.1949, Síða 9
HEIMILI OG SKÓLI
53
Barnaheimilið.
að allir vinna þar að nauðsynlegum
störfum. Þegar börnin eru ekki í skól-
anum, hjálpa þau til við heimilisstörf-
in til skiptis.
Drengirnir höggva eldiviðinn og
bera hann inn og annast bæði um trjá-
garðinn og matjurtagarðinn. Smíðasal
hafa þeir einnig til sinna afnota. Eitt
af verkum drengjanna er einnig að af-
hýða kartöflurnar.
Á barnaheimilinu eru alltaf nokkr-
ar fermdar stúlkur. Þær vinna við ýmis
heimilisstörf ásamt vinnukonunum.
Þær skiptast á um að vinna í eldhúsi,
við hreingerningar og þvotta, svipað
og tíðkast í húsmæðraskólum. F.innig
eru þær við sauma og fataviðgerðir til
skiptis. Á barnaheimilinu eru saumuð
öll nærföt, og rúmfatnaður. Þá hjálpa
stúlkurnar einnig við að gæta yngstu
barnanna.
Skólastúlkurnar taka þátt í heimil-
isstörfunum, þegar þær koma heim úr
skólanum.
Margt virtist benda á, að börnin,
sem þarna ólust upp, hefðu svipað við-
horf til skólastjórahjónanna og böm
til foreldra sinna. Enda er margt gert
til að gera lieimilið sem ánægjulegast.
Drengir fá þar að læra smíðar og
stúlkur vefnað. Auk þess eru mörg
hljóðfæri á heimilinu og öllum gefinn
kostur á að læra á þau.
Kaupmaðurinn, sem gaf borginni
þetta heimili, lét ekki þar við sitja.
Síðar gaf hann heimilinu sjóð, og á að
verja vöxtum hans til að gera heimilið