Heimili og skóli - 01.06.1949, Page 18

Heimili og skóli - 01.06.1949, Page 18
62 HEIMILI OG SKÓLI Gott heimili er fullkomnasta uppeldisstofnun pjöðfétagsms. þá og hjálpuðu foreldrum þeirra að bera þá byrði, sem það er fyrir ýmsa að eiga vangefin börn, í stað þess að „stimpla" þá, svo að þeir verði enn ógæfusamari. Það verður aldrei sagt of oft, að allir bera mikla ábyrgð i þessu efni. í hvert einasta skipti, sem þú talar með fyrirlitningu um barn eða fullorðið fólk, sem er vangefið til sál- arinnar, — og hefur ef til vill ekki get- að komizt eins vel áfram í lífinu og aðrir, þá ert þú að stuðla að ógæfu ann- arra og gera þá óhæfari til að leysa af hendi verkefni sín fyirr þjóðfélagið. Talaðu þess vegna og hugsaðu ekki niðrandi um þá vangefnu. Margir foreldrar hafa reynt það, að ef þau taka börnin eins og þau eru, og forðast að hafa meðaumkun með sjálf- um sér eða þeim, þá fá þau oft mesta ánægju af vangefna barninu, af því að það er opnara, einlægara og náttúr- legra en önnur börn. Ef svona barn verður ekki fyrir óþarfri keppni og jagi, þá vinnur það verk sín með gleði og ánægju. Og ef haldið er ofurlítið í liönd með því, getur það siglt árekstr- arlaust gegnum lífsins sjó. En ef sjálfstraust og bjartsýni barnsins er eyðilagt í bernsku, er erfitt að koma því á rétta braut aftur — og það er oftast verkefni sérskólanna.

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.