Heimili og skóli - 01.02.1952, Blaðsíða 7

Heimili og skóli - 01.02.1952, Blaðsíða 7
Heimili og skóli TÍMARIT UM UPPELDISMÁL 11. árgangur Janúar—Febrúar 1952 1. hefti ÞORSTEINN M. JÓNSSON: Eftirlætis- og olnbogabörn Kafli úr ræðu við setningu Gagnfræðaskóla Akureyrar 2. október 1950 t fyrri hluta ræðunnar ræddi skólastjórinn ýmislegt, er varðaði gagnfræðaskólann sérstak- lega. Ennfrenrur minntist hann á hin nýju fræðslulög á þessa leið: Mjög víða er nú farið að framkvæma hin nýju fræðslulög, en ailtaf sjást greinar í sumurn dag- blöðunum, þar sem að þeim er veitzt. En all- margar þessar greinar sanna hið fornkveðna: „Sá segir rnest af Ólafi kóngi, sem hvorki hefur lieyrt hann né séð.“ Eg ætla ekki við þetta tæki- færi að rökræða hina nýju fræðslulöggjöf, þar sem fjöldi áheyrenda minna er lítið þroskaðir unglingar. En þess vil ég þó geta, að undir- búningur laga þessara var rækilegri en flestra annarra laga, er Alþingi vort lætur frá sér fara, þar sem meðal annars var leitað umsagna allra skólanefnda og skólastjóra landsins, áður en frá þeim var að fullu gengið. En þó eru þau að sjálfsögðu gölluð, eins og flest önnur mannleg smíði. Og hvernig þau reynast, er nær eingöngu undir skólunum komið. Lög skapa hvorki góða né léiega skóla, fremur en nokkur stakkur gerir þann, sem íklæðist honum, að góðum eða vond- um manni. Hin nýja skólalöggjöf er að ýmsu levti mjög rúm, og hefur ýmis merkileg ný- mæli, svo sem um stóraukið verknám skólans. Allir kannast við sögurnar um eftir- lætis- og olnbogabörnin, sögurnar um Ásu, Signýju og Helgu. Ása og Signý voru eftirlætisdætur foreldra sinna, og allt var látið eftir þeim. Þær þurftu ekkert að vinna eða á sig að leggja nema jrað, sem þeim gott þótti, og þær fengu jafnan góðan mat og skraut- leg klæði til þess að ganga í, og for- eldrar þeirra gerðu sér vonir um, að

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.