Heimili og skóli - 01.02.1952, Side 25

Heimili og skóli - 01.02.1952, Side 25
HEIMILI OG SKÓLI 19 Lestrarfélög Lestrarfélög eru merkilegar menn- ingarstofnanir, sem jafnan hefur verið hljótt um, en menningarhlut- verk þessara félaga á fyrstu tugum aldarinnar verður erfitt að meta. Þá voru nálega engir skólar, en lestr- arfélögin fluttu lifandi blóð þekk- ingar og andlegrar menningar út um æðar þjóðlífsins. En þótt hljótt sé um lestrafélögin nú, starfa þau þó enn af fullum krafti, og eiga hægara um vik en áður, þar sem ríkið er nú farið að styrkja þessa starfsemi með verulegum fjárframlögum. — Fyrir nokkru birti dagblaðið Vísir í Rvík viðtal við Ingimar Jóhannesson, fulltrúa á fræðslumálaskrifstofunni, um þessi mál, og hefur Heimili og skóla verið leyft að birta það. R i t s t j. „Lög þau, sem hér um ræðir,“ sagði Ingimar Jóhannesson, ,,eru £rá 29. des. 1937, og nokkrar breytingar hafa verið gerðar á þeim síðan. í 1. grein laganna segir, að lestrarfélög utan þeirra kaup- staða eða kauptúna, þar sem amts-, bæjar- eða sýslubókasöfn eru starfandi o. s. frv., skuli njóta styrks úr styrktar- sjóði lestrarfélaga. í 2. grein er ákvæði um að ríkissjóður gxeiði árlega kr. 50 þús. í styrktarsjóð lestrafélaga, sem er nndir stjórn fræðslumálastjóra. — Skemmtanaskatt skal innheimta með 15% álagi, og skulu 2/3 hlutar álags- ins renna til kennslukvikmyndasafns, en þriðjungur þess til styrktarsjóðs lestrarfélaga. Þá er vert að vekja at- hygli á, að stjórn lestrarfélags, er styrks vill njóta, sendir fræðslumálastjóra í lok hvers starfsárs reikning yfir tekjur og gjöld félagsins á árinu, ásamt félags- mannaskrá, skýrslu um bókaútlán, bókaeign, sem við hefur bætzt á árinu o. s. frv. Styrkur er bundinn því skil- yrði, að hreppur eða sýsla styrki félag- ið með að m. k. jafnhárri upphæð og því verði úthlutað sem aðalstyrk úr styrktarsjóði lestrarfélaga fyrir það ár, sem um er að ræða. Ennfremur má veita lestrarfélagi aukastyrk, ef tekjur sjóðsins leyfa, og skal miða hann við bókakaup, útlán og aðra aðstöðu.“ „Hve mörg lestrarfélög ldutu styrk árið sem leið?“ „í landinu eru nú 207 lestrarfélön, er njóta styrks samkvæmt fyrrnefnd- um lögum, en auk þess eru 35 bóka- söfn og lesstofur, sem styrks njóta af ahnannafé, samkvæmt fjárveitingum á fjárlögum hvers árs, svo sem amts- og sýslubókasöfn o. fl., og njóta þau ekki stuðnings styrktarsjóðs.“ „Hvernig er tilhögun með greiðslu þess gjalds, sem greiða þarf til þess að styrkur fáist?“ „Sums staðar kemur allt heimatil- lagið úr hreppssjóði, þar sem þeir eiga bókasafnið, en annars staðar eru sér- stök félög, og eru þá lögð gjöld á ein- staklinga eða heimili, sent eru misjafn- lega há í hinum ýmsu félögum. Kem- ur þar fram, að það er misjafnt, sem menn vilja á sig leggja í þessum efn- um. Þannig eru enn nokkur félög, þar sem enn eru í gildi gcjmul ákvæði um 1—5 kr. ársgjöld, en í mörgum eru nú

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.