Heimili og skóli - 01.02.1952, Side 14

Heimili og skóli - 01.02.1952, Side 14
8 HEIMILI OG SKOLI var hún formaður Sambands norð- lenzkra kvenna um nokkurt skeið. í verkakvennafélaginu „Einingin“ hef- ur hún verið síðan 1932, og formaður Mæðrastyrksnefndar Akureyrar hefur hún verið frá stofnun hennar og lagt þar fram geysimikið starf. Ég held, að óhætt sé að fullyrða það, að einhver allra sterkasti strengurinn í lífi og skapgerð Ingibjargar sé samúð- in með öllum þeim, sem eitthvað eiga bágt. Þar er móðureyra hennar þunnt. Og öll þátttaka hennar í félagsmálum er mótuð af þessari sterku þörf hennar til að rétta öðrum hjálparhönd. Hún hefur sjálf ekki hátt um þetta. Ingi- björg er mjög vinsæl kona af öllum, sem hana þekkja. Hún er vinsæl af samkennurum sínum og nemendum, en ég gæti þó trúað, að erfiðast yrði að telja þá vini, sem hún hefur aflað sér með hjartagæðum sínum og hjálpfýsi, bæði vegna þess, að þeir vinir eru margir, en þó eigi síður vegna hins, að það starf er unnið í hinni mestu kyrr- þey, og þar veit vinstri höndin aldrei, hvað sú hægri gefur. Hún er ekki að- eins talsmaður þessa fólks, þegar svo ber undir, að hún geti verið það. Hún segir ekki aðeins: Þessu fólki þarf að hjálpa. Hún gerir það sjálf, eins og miskunnsami Samverjinn forðum, ef hún á þess kost. Ingibjörg hefur unnið vel öll þau störf, sem henni hafa verið fengin í liendur, en hún hefur ekki sótzt eftir metorðum né mannvirðingum. Hitt hefur verið henni miklu meira virði, að geta hjálpað fátækri móður, eða munaðarlausu barni. Það kom greinilega í Ijós á afmælis- degi frú Ingibjargar, live vinsæl hún er. Var þann dag mjög gestkvæmt á hinu skemmtileoa heimili hennar os; veitt af mikilli rausn. Þar voru henni fluttar margar ræður og árnaðaróskir, bæði í bundnu og óbundnu máli. Einiiig bárust henni gjafir og heilla- skeyti. I ræðu, sem hún flutti við það tækifæri, lét hún þess getið, að hún teldi sig gæfukonu. Ég held að það sé rétt. Allt líf hennar hefur verið vermt af hinni heitu glóð samúðarinnar, og slíkir menn eru gæfusamir, þrátt fyrir allt. Og nú hefur hún sextíu ár að baki þessi góða og hjartahlýja kona. Kann- ske kemur sú hugsun stundum að henni, eins og okkur hinum, að finn- ast fátt til um lífsstarf sitt, efast um ár- angurinn og uppskeruna. Kannske finnst henni, að hún hafi gefið herra lífsins of lítið af tíma sínum og kröft- um. En þá mætti hún minnast orð- anna: „Það, sem þér hafið gert einum af mínum minnstu bræðrum, það haf- ið þér gjört mér.“ Líf Ingibjargar hef- ur í ríkum mæli veríð helgað þessum minnstu bræðrum og systrum. Ingi- björg Eiríksdóttir er vel gefin kona, glaðlynd í sinn hóp og samvinnuþýð. Ég þakka henni persónulega fyrir langt og gott samstarf, og þá eigi síður fyrir hönd Barnaskóla Akureyrar, en þeirri stofnun hefur hún unnið í 24 ár. Ingibjörg á eina kjördóttur, Gunn- laugu Björk, sem nú stundar nám í héraðsskólanum á Laugum. Það þarf ekki að taka það fram, áð þessari kjör- dóttur sinni hefur hún alltaf reynzt eins og góð og ástrík móðir. H. ]. M.

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.