Heimili og skóli - 01.02.1961, Blaðsíða 8

Heimili og skóli - 01.02.1961, Blaðsíða 8
2 HEIMILI OG SKÓLI Mismunancli lestrarörðugleikar drengja og stúlkna Það virðist nokkuð samhljóða niður- staða, að fleiri drengir lendi í lestrar- örðugleikum en stúlkur. Rannsóknir í Danmörku munu hafa sýnt, að drengir nema 60—80% af heildartölu barna, sem talin eru með lestrarörðugleika. í Noregi er naumast öruggar tölur fyrir hendi, en talið, að í þessum hópi séu drengir allt að helmingi fleiri en stúlkur. í bók sinni „Differential psycho- logy“ segja Anastasi og Foley að í rannsókn á 17 hópum hafi drengirnir numið 60—100% af lestrarörðugleika- tilfellunum. Þau segja enn fremur, að rannsóknir hafi sýnt, að miklu fleiri drengir en stúlkur stami eða séu haldn- Jónas Pálsson. ir málgöllum (hlutfallið 2:1 eða jafn- vel 10:1). Þau geta þess enn fremur, að stúlkurnar í heild nái fyrr lestrar- leikni, hraða og nákvæmni en drengir. Raunar hafa athuganir sýnt, að stúlkur skara að meðaltalsárangri fram úr drengjum við nám í flestum greinum í barnaskóla og jafnvel lengra upp, vandamálum uppeldisins, væri samt ekki til einskis unnið, og jafnvel þótt sjaldan berist raddir um, hvort betur líki eða verr, mun samt verða haldið áfram, í sömu átt og áður, eitthvað fyrst um sinn, að minnsta kosti þar til ritið nær tvítugsaldrinum. Svo þakka ég öllum þeim, sem leggja það á sig að kaupa og lesa ritið, vafalaust leynast þar margir óþekktir vinir þess. Kannski þeir vildu nú einnig leggja það á sig að útvega rit- inu einn og einn kaupanda. Safnast þegar saman kemur. Rit þetta er helgað börnunum okk- ar. Öllum börnum á íslandi. Þótt vafa- laust hafi oft mistekizt með málfærsl- una. En þrátt fyrir það, vona ég að rit- ið frekar njóti þess en gjaldi. Gleðilegt nýtt ár. H. J. M.

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.