Heimili og skóli - 01.02.1961, Blaðsíða 18

Heimili og skóli - 01.02.1961, Blaðsíða 18
12 HEIMILI OG SKÓLI um með handritið í hendinni. Eftir á — og stundum jafnvel í miðju kafi — spjölluðum við svo um hugarfar æsk- unnar, ummæli þeirra og vandamál. Hér voru foreldrarnir samtímis bæði æskan sjálf, foreldrar og þátttakendur í rökræðum. Eflaust eru til á prenti önnur æskuleikrit, sem hentað gætu þessu hlutverki. Lestur barnasálfrœði- legra skáldsagna til skilningsauka á málefnum skóla og uppeldis. fVísað til bókasafna, sérstakl. í K.höfn, um þess háttar bækur.) Við notuðum 2—3 kvöld á hverja bók, tvennir eða þrennir foreldrar voru frummælendur hvert kvöldið. (Þar eru slíkar bókmenntir afar auð- ugar, en því miður ekki hér. — Þýð.) Gagn og gildi samræðuhópsins. Kennarinn öðlast vissulega mikla reynslu og margvíslegt gagn á þessum kvöldfundum, en hvað segja svo for- eldrarnir um þetta? Ég ætla að tilfæra hér nokkur ummæli móður einnar í tilefni af ársskýrslunni: „Umræðurnar af öllu tagi og frá mörgum sjónarmið- um, frá skólamötuneyti og matgjöfum til kynfræðilegrar heilsufræði opnaði augu okkar fyrir fjölmörgum vanda- málum, sem áður hafði lítið verið hugsað um. Einnig var fróðlegt að kynnast kennurum skólans nánar, því að eflaust hafa mörg okkar áður fyrr fitjað upp á nefið, þegar talið barst að „skólakennaranum“. Og að lokum vil ég segja frá því, hve glöð dóttir mín hefur orðið, þegar hún hefur verið að segja okkur eitthvað frá skólanum og verður þess svo vör, að við þekkjum talsvert til skólans og kennaranna." Jafnvel þótt það takist ekki að ná til allra heimila á þennan hátt, þá er þó ekki lítils virði að hafa safnað saman og sameinað heilan hóp áhugasamra foreldra, sem þekkja talsvert til skól- ans og eru honum hlynntir. Samvinna í árekstrum. (Málamiðlun?) Þrátt fyrir mikla og góða samvinnu, sem reynt er að korna á milli heimilis og slcóla, verður vart hjá því komizt, að orðið geti árekstrar sökum hegðun- ar barns eða starfs þess. Og auðvitað getur sundurþykkja sprottið upp milli skóla og heimilis sökum misskilnings eða skoðanamunar. En sú er sannfær- ing mín, að slíkum árekstrum muni fækka stórlega og verða að mun smá- vægilegri, sé áður gott samkomulag og samvinna milli heimilis og skóla. Mörg tilfelli af „leti“ og skólaleið- indum stafa eflaust af skorti á skiln- ingi og samvinnu foreldra og kennara — á þann hátt, að báðir aðilar beinlínis andæfa hvor öðrum, svo að barnið verður eins konar þeyti-knöttur á milli þeirra. Ég tel víst, að hægt væri að komast hjá mörgum „erindum" og kærum til skólanefndar um kennara og störf hans, ef sá trúnaður væri milli foreldra og kennara, að þeim væri eðlilegast að hittast sjálf og ræða vandamálin sín á milli. Skoðun mín á pví, er gera bæri. Eigi að stuðla að þróun og endur- nýjun núverandi ástands í áttina til þess að vekja áhuga foreldra og skapa betra viðhorf milli skóla og heimila, tel ég að hver einstakur kennari ætti að íhuga, hverjar aðferðir og starfs- hættir henti honum bezt, en á hinn bóginn beri ábyrgum og fjárveitandi

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.