Heimili og skóli - 01.02.1961, Blaðsíða 10

Heimili og skóli - 01.02.1961, Blaðsíða 10
4 HEIMILI OG SKÓLI Athuguð var samsetning kynja í beztu bekkina 7 og 8 ára í Kópavogskól- um og kom í ljós, að þar voru stúlk- ur 60—70% af heildartölu bekkjanna. I Kópavogsskólum voru haustið 1958 og aftur 1959 öll börn í 7 ára bekkjum einstaklingsprófuð með greindarprófi dr. Matthíasar Jónas- sonar, samtals þessi tvö ár 301 barn. Er það sami hópur og Levinprófið var lagt fyrir og skýrt var frá hér að fram- an. Nú mætti ætla, með tilliti til betri námsárangurs telpna og betri frammi- stöðu að meðaltali á þroskaprófum, að þær reyndust einnig að meðaltali hærri á einstaklingsprófinu. Svo var þó ekki. Meðalgreindarvísitala drengja var 1.40 stigum hærri. Er sú niðurstaða raunar í samræmi við niðurstöður af rann- sóknum í fjölmörgum löndum með hliðstæðum einstaklingsgreindarpróf- um. Tedman og Merill fengu í sínu safni 1937 meðalgrof-tölu telpna 2 stigum hærri upp að 6 ára aldri, en eftir það var meðaltala drengja hærri. I safni dr. Matthíasar Jónassonar var niðurstaðan svipuð og hjá Tedman og því eðlilegt, að niðurstaðan yrði hin sama hjá mér á sama prófkerfi. Geta má þess að niðurstöður Cyril Burts voru á sínum tíma gagnstæðar. Telpur sýndu yfirburði í meðaltalsmismun frá 3—14 ára aldurs. Levinprófið (skólaþroskapróf) og einstaklingsgreindarprófið mæla vafa- laust einn eða fleiri sameiginlega þætti svo sem fylgitalan sýnir, en hún reyndist í Kópavogssafninu milli þess- ara prófa 0.69. Hitt er ég þó jafn sannfærður um, að á þeim er mikill munur. Þroskaprófið er mun háðara félagslegum og tilfinningalegum þroska og uppeldisáhrifum heldur en greindarprófið. Stafar sá munur bæði af gerð prófanna og innihaldi, en eink- um af mjög ólíkum aðstæðum, þegar þau eru lögð fyrir. Þessar niðurstöður benda til, að stúlkur séu á einhvern hátt betur þroskaðar en drengir á þessum ævi- skeiðum og leiði þetta til þess, að þær ná betri árangri við nám, að minnsta kosti í lestri. Að vísu er úrtakið, sem um ræðir í Kópavogi svo lítið, að allar ályktanir ber að draga með varúð. En þar eð gífurlegur fjöldi rannsókna er- lendis um námsárangur kynjanna hafa verið gerðar og nær allar hafa leitt til þeirrar niðurstöðu, að stúlkur sýni betri árangur við nám í flestum náms- greinum að minnsta kosti út barna- skólastigið, virðist mega álykta með nokkurri vissu, að niðurstöður af áð- urnefndri athugun í Kópavogi og í Reykjavík séu ekki tilviljun. I áður- nefndri bók Anastasi og Foleys er get- ið fjölda rannsókna, sem hníga í þessa átt. Þar eru og nefnd dæmi um margar rannsóknir á greindarþroska kynjanna með einstaklingspófum, þar sem nið- urstöður hnigu mjög í sömu átt og í Kópavogssafninu, þ. e. a. s. drengir náðu eins góðum meðaltalsárangri og stúlkur á þessum prófum eða betri. Þau Anastasi og Foley greina og frá niðurstöðum af rannsóknum þar sem sérstök hæfileikasvið kynjanna á bernsku- og unglingsaldri hafa verið könnuð. Niðurstöður eru yfirleitt á þann veg, að stúlkur sýna yfirburði yfir drengi í málþroska, þar með tal- inn orðaforði og orðskilningur og nær þetta allt til fullorðins aldurs. Þykir sannað að stúlkur byrji að jafnaði fyrr

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.