Heimili og skóli - 01.02.1961, Qupperneq 28

Heimili og skóli - 01.02.1961, Qupperneq 28
99 HEIMILI OG SKÓLI LOKUÐU DYRNAR — Úr kennslustofunni — Það var kennslustund í náttúru- fræði. Kennarinn hafði teiknað stóra mynd af sóley á skólatöfluna og var að útskýra fyrir börnunum, hvernig blóm- ið væri saman sett. Hann reyndi að gera þeim skiljanlegt, hvernig aldinið yrði til og fræin, sem féllu í moldina og geymdust þar allan veturinn. En með vorinu tækju þau að spíra og nýj- ar sóleyjar yxu upp af þeim. Svona væri því háttað mel flest allar jurtir og blóm, sem þau þekktu. Börnin tóku vel eftir og reyndu að fylgjast sem bezt með. Sum vildu fá að vita meira og einn drengurinn spurði: „Er þá ekki hægt að búa til fræ, t. d. rófufræ?" Nei, kennarinn fullyrti, að það gæti enginn maður, hve lærður sem hann væri. Það væri að vísu hægt að búa til korn, sem væri alveg eins og fræ að ytra útliti, en engin jurt gæti sprottið upp af því. Og kennarinn fór að verða skáldlegur eins og hann væri að halda ræðu: „Það er lífið sjálft, sem dylst í fræ- inu, sem enginn maður getur skýrt né skilið. Mennirnir geta margt og skilja mikið. Þeir geta byggt stórkostleg mannvirki og smíðað margs konar vél- ar og undratæki. En lífsaflið í litlu fræi geta þeir hvorki búið til né skilið. — Það er eins og við komum þar að lokuðum dyrum.“ Börnin sátu hljóðlát og hugsandi á svipinn. Kennarinn leit yfir hópinn og honum fannst, að sér hefði tekizt vel upp. Þá rétti lítil stúlka upp hendina og sagði feimin og undirleit: „Er Guð þá ekki hinum megin við dyrnar?“ Kennarann setti hljóðan. Hann fann spyrjandi barnsaugu hvíla á sér, full af einlægni og trúnaðartrausti. — Æ, hvar var nú öll mælskan hans og fróð- leikurinn? — Og hann svaraði aðeins: „Jú, börnin mín. Hann er þar.“ F- J- Athygli kaupenda skal vakin á því, að af- greiðslumannaskipti hafa orðið við ritið um þessi áramót. Arni Björnsson kennari hættir, en við tekur Guðvin Gunnlaugsson, kennari, Vanabyggð 9, Akureyri, og ber kaupendum að snúa sér til hans með allt varðandi af- greiðslu og innheimtu ritsins. / stundahléi á kennarastofunni.

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.