Læknaneminn - 01.12.1960, Blaðsíða 17
LÆKNANEMINN
17
komin frá milta, þegar háþrýst-
ingur er í portakerfinu eða miltið
ásamt lifur og öðrum hlutum reti-
culoendothelkerfisins, verður fyrir
barðinu á víðtækum sjúkdómum
eins og sarcoidosis.
Það er athyglisvert, að lát-
laus (progressive) lifrarsjúk-
dómur með eyðileggingu lifrarvefs
getur gengið fyrir sig án þess að
valda mesenchymsvörun. Sem
dæmi má nefna, að æxlisíferð,
langvinn blóðstöðnun, sífelld áhrif
lítilla skammta af lifrareitri, víð-
tæk fitumyndbreyting (metamorp-
hosis) og langvarandi gallstöðnun
orsaka venjulega litla hækkun á
serum globulini og gefa neikvæð
svör við prófum fyrir afbrigðileg-
um globulinum.
Cephalin í'locculatio og önnur
próf er byggjast á afbrigðileikum
á senun complexinu.
Hin neikvæða cephalin floccula-
tionssvörun, sem fæst með eðli-
legu serumi manna, byggist á til-
vist óstöðugra (labile), stabiliser-
andi efna í hinum elektrophoret-
iska albuminhluta, en þau koma í
veg fyrir að eðlileg gamma globu-
lin bindist yfirborði emulsionsagn-
anna. Jákvæð svörun, þ. e. að em-
ulsionsagnirnar hlaupi í kekki,
fæst með eðlilegu gamma glob.
einu út af fyrir sig. Hvorki hefur
tekizt að komast að því, hvaða
stabiliserandi efni þetta eru í eðli-
legu serumi, né einangra þau, en
þau kunna að vera í einhverju sam-
bandi við fituríka hluta alfa glo-
bulina. Þessari jafnvægisverkun
fer ört hrakandi eftir lauslega
hreinsun (partial purification), en
hægar í heilserumi, svo að eðlilegt
serum, sem geymt er í nokkrar
vikur, jafnvel þótt í frystihólfi sé,
öðlast smám saman jákvæða c. f.
svörun. Jafnvægisefnin hverfa úr
serumi heilbrigðra innan 48 klst.
eftir skyndilegar lifraskemmdir af
völdum súrefnisskorts, eitrunar
eða infectionar og geta færst aft-
ur í eðlilegt horf á nokkrum dög-
um í vægum tilfellum. Þessi skjótu
umskipti á serumsvörunum benda
til þess, að velta jafnvægisefnanna
sé hröð, og að stöðugt berist nýj-
ar birgðir frá eðlilega starfandi
lifur. Ekki er vitað, hvort jákvæð
svörun stafar af ofnotkun eða gall-
aðri myndun jafnvægisefna, eða
hvort hún stafar af myndun bann-
efna (inhibitora) í skaddaðri lifur.
Kliniskt samræmi milli ceph.
flocc. og histologiskra breytinga
er ekki nákvæmt. I flestum tilfell-
um fæst jákvæð svörun við skyndi-
dauða vefsfruma. Þó finnst já-
kvæð svörun, líkt og við bráða lifr-
arbólgu, hjá sj. með bráða malaríu,
þar sem ekki eru sjáanlegar breyt-
ingar á lifrarfrumum við smásjár-
skoðun. Jákvæð c.f. svörun gefur
ekki bendingu um ástand lifrarinn-
ar ((degree of insufficiency) og
kemur heldur ekki fram við allar
frumuskemmdir. Til dæmis má
nefna, að jákvæðar svaranir eru
sjaldséðar við lifrarskemmdir sam-
fara stíflugulu án aukakvilla, æxl-
isíferð, fitubreytingar, einstakar
ígerðir eða glæruhrörnun (hyalin
degeneration). Einnig er prófið
venjulega neikvætt við langvinna
blóðstöðnun með augljósum frumu-
skemmdum í miðjum lobuli, en
skyndileg stöðnunarköst valda
venjulega jákvæðri svörun. Já-
kvæðar svaranir fást í um 90%
af bráðri viruslifrarbólgu, bráðri
koltetraklóríðeitrun, en miklu
sjaldnar við langvarandi eitur-
skemmdir. Ekki er neitt fast sam-
ræmi milli c.f. og annara lifrar-
prófa, ekki einu sinni þeirra, sem
byggjast á afbrigðum á serum-
complexinu, svo sem thymol-