Ferðir - 01.06.1958, Blaðsíða 18
16. blaðsíða
[Ferðir
FRÁ FÉLAGINU
Aðalfundur
Ferðafélags Akureyrar var haldinn sunnudaginn 9. febrúar 1958 að
Geislagötu 5 og hcSfst kl. 14.00. Áður en fundarstörf liófust voru sýndar
tvær litkvikrayndir: Frá Austfjörðtira og Louisiana.
Skýrsla stjórnar.
Þá flutti formaður skýrslu félagsstjórnar fyrir árið 1957, og fara hér
á eftir helztu atriði hennar: Blað félagsins, „Ferðir“, 16. árg., kom út.
Unnið var að vegarlagningu í Herðubreiðarlindir, og kvísl úr Jökulsá,
sem runnið hefur í Lindá, var stífluð, og hefur nú stórum batnað að
aka í Lindir. Sæluhús félagsiris að Laugafclli var endurbætt og leiðin
þangað (um Bárðardal) merkt með stöngum og stytt að mun. Könnun-
arferð var farin um Þormóðsstaðadal með það fyrir augum að finna
styttri leið að Laugafelli en um Bárðardal. Fengin afnot af bifreið í
sambandi við ferðalög. Félagar voru 460, er reikningum var lokað.
Fjárhagur.
Björn Bessason las og skýrði reikninga félagsins. Eignir félagsins eru
rúmar 85 þús. kr., og varð nær 9 þr'is. kr. tek juafgangur. Reikningarnir
voru samþykktir samhljóða. Vísast lil þeirra hér á öðrum stað í ritinu.
Skemmtiferðir
voru fimm. 1. ferð: Herðubreiðarlindir (aukaferð). Þátttakendur 20.
Fararstjóri Jón D. Ármannsson. 2. ferö: í Fjiirðu. Þátttakendur 14. Far-
arstjéui Þormóður Sveinsson. 3. ferð: 1 Oskju. Þátttakendur 12. Farar-
stjóri Jón Sigurgeirsson. 4. ferð: 1 Laugafell (aukaferð). Þátttakendur
18. Fararstjóri Tryggvi Þorsteinsson. 5. ferð: Flateyjardalur (aukaferð).
Þátttakendur 10. Fararstjóri Björn Baldursson. Tvær ferðir féllu niður
vegna óhagstæðs veðurs, en þrjár aukaferðir voru farnar, eins og áður
greinir. Auk þessa voru farnar fjórar kvöldferðir í nágrenni Akureyrar
í sambandi við Ferðaskrifstofu ríkisins. Fararstjórar voru Björn Þórð-
arson og Þormóður Sveinsson, tvær ferðir livor.
Stjórnarkjör.
Úr stjórn áttu að ganga þeir Jón Sigurgeirsson og Tryggvi Þorsteins-
son, en voru báðir endurkjörnir til þriggja ára. Fyrir voru í stjórn:
Kári Sigurjónsson, Karl Magnússon og Karl Hjaltason. Varastjórn: Jón
D. Ármannsson, Stefán Sigurðsson og Hrólfur Sturlaugsson. Endur-
skoðendur voru endurkjörnir Bjarni Halldórsson og Þengill Þórðarson.
Ferðanefnd (endurkjörin); Jón D. Armannsson, Bjiirn Baldursson,