Ferðir


Ferðir - 01.06.1958, Síða 23

Ferðir - 01.06.1958, Síða 23
Ferðir] 21. blaðsíða - ÁVARP Framhald af bls. 1. lagsmönnum í seinni tíð. Vatnahjallavegi hefur eigi verið við haldið hin síðari ár, en leiðin að Laugafelli upp úr Bárðardal er sæmilega greiðfær. Með lagfæringu á leiðinni frá Mýri að Kiðagili og betri merk- ingu þaðan að Laugafelli mætti aka frá Akureyri að Laugafelli á 5—6 klst. Á síðastliönu sumri fóru formaður og varaformaður FI’y\ könnunar- ferð gangandi fram Þormóðsstaðadal, með það fyrir augum, að litast um eítir styttri og betri leiö inn á öræfin fram af Eyjafirði. Ekki virðist óálitlegt að gera þar sæmilegan veg. Versti farartálminn er innarlega á dalnum. Með þeim vinnuvélum, sem nú eru notaðar við vegagerð, er verkið ekki gífurlegt. Tími vannst ekki, að þessu sinni, til að rann- saka, hvernig umhorfs væri suður fjöllin, er upp úr dalnum kemur, og verður það að bíða betri tíma. Að lokum hvetur stjórn FFA meðlimi félagsins til þátttöku í sumar- ferðalögunum og virkara starfs. Þeirn félögum og utanfélagsmönnum, sem umráð hafa á jeppunt eða bifreiðum til ferðalaga um hálendið, og ferðast vilja á eigin kostnað, bjóðum við „samflot" í fyrirhuguðum lerðum Ferðafélags Akureyrar á sumri komanda. Nýir meðlimir eru ávallt velkomnir í hópinn. lvynnizt landi ykkar og fegurð þess. Njótið útiveru hinnar íslenzku náttúru og heilbrigðra ferðalaga. * * * Stjórn F F A vill hér með tjá þakkir sínar þeirn Sigurjóni Rist, vatnamælingamanni, og raforkumálastjóra Jakobi Gíslasyni fyrir hið góða og stórfróðlega efni, sem þeir hafa lagt „Ferðum" til að þessu sinni. Með beztu sumaróskum, Stjórn Ferðafélags Akureyrar.

x

Ferðir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ferðir
https://timarit.is/publication/1888

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.