Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 25.11.1966, Blaðsíða 54
arstjórnir og til Alþingis, að í'ulltrúar frá umræddum
fjöldasamtökum skipi þýðingarmikil sæti á framboðs-
listum flokksins.
Þingið telur að nauðsynlegt sé, að lögð verði höfunð-
áherzla á að viðhalda nægri atvinnu svo sérhver vinnu-
fær maður geti haft fulla vinnu við þjóðnýt störf,
stöðva verðbólguna, að kaupmáttur launa verða auk-
inn, þar eð sú aukning, sem orðið hefur á síðustu árum
á kaupmætti ráðstöfunartekna verkafólks byggist að
miklu leyti á lengdum vinnutíma og ósamningsbundn-
um greiðslum.
Sú hætta vofir því yfir, að samdráttur í atvinnulífi
geti leitt til mjög stórfelldrar tekjuskerðingar og snöggr-
ar lækkunar á lífskjörum vinnustéttanna.
Telur þingið því höfuðnauðsyn, að verkalýðshreyf-
ingin reyni eftir megni að tryggja núverandi raun-
gildi heildartekna, þótt um minnkaða yfirvinnu yrði
að ræða.
Til þess að ná þessu marki bendir þingið á eftirfar-
andi atriði:
1) Efld verði hin skipulega starfsemi, sem stefnir að
því að auka hagkvæmni í íslenzku atvinnulífi í þeim
tilgangi að örva framleiðslustarfsemina, auka og bæta
framleiðsluna, nýta betur vinnuafl, hráefni og fjármagn,
enda verði tryggt, að framleiðsluaukningin leiði til
raunverulegra kjarabóta fyrir launtaka.
2) Að raunhæfar rannsóknir fari fram nú þegar á
öllum möguleikum til aukinnar hagkvæmni í atvinnu-
málum þjóðarinnar og breyttra kaupgreiðsluaðferða
með aukinni ákvæðisvinnu í samvinnu við launtaka-
samtökin, þar sem slíkar rannsóknir leiða í ljós að það
52