Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 25.11.1966, Blaðsíða 52
heimila og aukna sálfræðilega þjónustu skólakerfisins.
Þingið skorar á Alþingi að samþykkja stjórnarfrum-
varp það, sem nú liggur fyrir, um aukinn stuðning við
stúdenta við Háskóla íslands og íslenzka námsmenn
erlendis. Jafnframt beinir þingið því til menntamála-
ráðherra, að hann athugi möguleika á því, að ríkið
hefji stuðning við nemendur annarra íslenzkra skóla,
svo sem menntaskóla, kennaraskóla, vélskóla, sjómanna-
skóla og iðnskóla.
Þingið telur nauðsynlegt að auka enn opinberan stuðn-
ing við listamenn, svo sem rithöfunda, myndlistarmenn
og tónlistarmenn, ekki fyrst og fremst með beinum fjár-
framlögum, heldur með því að fá þeim verkefni, sem
greitt sé fyrir af opinberu fé.
Þingið fagnar stofnun íslenzks sjónvarps og leggur
áherzlu á, að unnið verði ötullega að dreifingu sjón-
varpskerfis um landið. Þannig að allir landsmenn geti
sem fyrst notið þjónustu þess. Telur þingið rétt að
meiri áherzla verði lögð á vöndun sjónvarpsefnis en
lengd dagskrá og væntir þess að fyllsta tillit verði tekið
til uppeldisáhrifa þessa öfluga fjölmiðlunartækis og að
það verði nýtt eftir föngum í þágu fræðslu- og menn-
ingarmála.
Þingið fagnar af alhug endurheimt íslenzku hand-
ritanna úr dönskum söfnum og skorar á stjórnarvöld
að gera sem bezt við Handritastofnun Islands. Jafn-
framt því, sem þingið lætur í Ijós þakklæti til danska
þjóðþingsins og dönsku ríkisstjórnarinnar fyrir lausn
málsins, þakkar þingið menntamálaráðherra Islands,
Gylfa Þ. Gíslasyni, fyrir farsæla og árangursríka for-
yztu hans í málinu af hálfu íslendinga á undanförnum
50