Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 25.11.1966, Blaðsíða 48
leiðsluaukningu, tækniframförum cg batnandi viðskipta-
kjörum.
Stór framfaraspor hafa verið stigin í atvinnumálum,
félagsmálum og þá ekki sízt í húsnæðismálum, og gagn-
gerar umbætur hafa verið framkvæmdar í menntamál-
um og öðrum menningarmálum. Traust stjórn hefur
verið á fjármálum ríkisins og peningamálum og marg-
víslegar umbætur verið gerðar í skatta- og tollamálum.
I utanríkismálum hefur verið trúlega fylgt þeirri stefnu,
sem mikill meirihluti þjóðarinnar aðhyllist.
Það er skoðun flokksþingsins, að Alþýðuflokkurinn
eigi í Alþingiskosningunum þeim, er fram eiga að fara
á næsta vori, sem fyrr, að beita sér fyrir því, að fylgt
verði stjórnarstefnu, sem hafi hagsmuni almennings að
leiðarljósi. Flokksþingið leggur áherzlu á, að áætlunar-
gerð og heilbrigðri skipulagningu verði í vaxandi mæli
beitt við stjórn efnahagsmála, samdar verði fram-
kvæmdaáætlanir fyrir einstaka landsbluta, gert nýtt
átak í tryggingamálum, m. a. með nýrri löggjöf um líf-
eyrissjóð fyrir alla landsmenn og áframhaldi skipulegra
stórframkvæmda í húsnæðismálum almennings, sam-
in verði áætlun um endurskipulagningu skólakerfisins
á vísindalegum grundvelli og allsherjarframkvæmdaá-
ætlun um skólabyggingar.
Alþýðuflokkurinn treystir þjóðinni til þess að veita
honum aukið brautargengi í næstu Alþingiskosningum,
svo að hann geti á komandi kjörtímabili haft enn ríkari
áhrif á farsæla þróun íslenzkra þjóðmála.
46