Reykjanes - 17.06.1947, Síða 6
REYKJANES.
Útgcf.: Nokkrir Kcflvíkingar.
Ritsfjóri: Einar ölafsson.
Biaðsstjórn: Ólafur E. Einarsson
Sverrir Júlíusson
Alfred Gislason
Afgreiðslu annast:
Einar Ólafsson.
Verð blaðsins kr. 2.00 í lausasölu.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Skrifstofa oddvitans
er nú flutí i ný húsakynni, í
hjarta kauptúnsins. Eins og kunn-
úgt er, hefur gamta rafstöðin ver-
ið stækkuð og endurbætt. Með
flutningi oddvitans í húsið, hefur
því hlotnazt sá virðingarsess, að
verða eins konar „ráðhús“ Keí'la-
víkur. Mikið vantar þó á, að út-
lit hússins hið ytra sæmi virðing-
arsessi þess meðal húsa. Hins veg-
ar er innrétting öll íyrsta flokks.
Það mun vera gert ráð fyrir þvi,
að togaraútgerð hreppsins fái
skrifstofuherbergi i „ráðhúsinu“.
Húsbyggingar
eru taldar verða með minna
móti hér í Keflavík í sumar. Þó cr
þegar vitað um 10—12 nýbygging-
ar, en þar méð eru taldir sex
verkamannabústaðir, með 12 íbúð-
um alls.
Framleiðsla Fiskiðjunnar h.f.
hefur nú öil verið seld og hún
flutt út. Verðmæti framleiðslunn-
ar á árinu 1947 nemur um 1 millj-
ón króna, en eftir upplýsingum
framkvæmdastjórans, Huxley ÓI-
afssonar, væri hægt að tvöfalda
afköst verksmiðjunnar. Af þessu
geta menn séð, hversu gífurlegum
yerðmætum hefur verið kastað i
sjóinn á undanfömum árum. Að-
allega fær verksmiðjan hráefni
sitt frá hraðfrystihúsunum og
greiðir kr. 50,00 fyrir tonnið.
Rollu- og hrossafarganið
deilis óþolandi. Hér í blaðinu var
stungið upp á því við hreppsnefnd-
ina, að hún sæi lögregtunni fyrir
húsakynnum fyrir þessi flækings-
dýr — en ekkert hefur enn verið
aðhafzt í þessu vandræðamáli.
Jarðýta
sú, er Keflavíkurhreppur hefur
átt í pöntun, er nú komin. Virð-
i.st þetta vera ágætis verkfæri, en
þó virðist Iiún l'rekar veigalítil.
Vonandi verður j)ess nú ekki langt
að bíða að jarðýtan fari að glíma
við moldarhauginn á Hafnargöt-
unni.
Sparisjóðurinn í Keflavík
hefur frá 1. júní að telja opnað
hlaupareikningsviðskipti. Vafa-
laust verður þetta lil mikils hag-
ræðis fyrir atvinnurekendur sem
og launþega, sem oftast fá laun
sín greidd í ávísunum á'Reykja-
víkurbankana.
Einhver hreyfing
virðist vera komin á fram-
kvæmdir við landshöfnina. Vegar-
spottinn, sem hyrjað var á í fyrra,
hefur tognað um nokkra metra.
Að öðru leyti er eigi liægt að sjá
að neinn kraftur fylgi þessum
framkvæmdum og er það sannar-
lega illa farið.
Kef laví k u rtogaran u m
hefur nú verið valið nafnið
,;Keflvíkingur“. önnur nöfn, sem
til greina komu, voru Reykjanes
og Eldey. Nafnið Reykjanes er
vafalaust fallegast af þessum nöfn-
um, þar að auki ber einn af Kefla-
vikurvélbátunum nafnið Keflvík-
ingur, svo að ckki er frumlegheit-
unum til að dreifa í nafnvalinu.
Njarðvíkingar
hafa nú eignazt sitt eigið sam-
komuhús og var það vígt með há-
tíðahöldum þann 14. ]). m. í fyrra
réðust Kvenfélag Njarðvíkur-
hrepps og Ungmennafélagið í
Njarðvíkum í kaup á húsakynnum
Ameríska Rauða Krossins skammt
frá Ytri-Njarðvíkum. Kaupverðið
var kr. 30 þúsund, en síðan hef-
ur húsið verið endurbætt fyrir um
kr. 100 þúsund. Er hér um að
ræða verulega rúmgóð húsakynni
þau rúmbeztu á Suðurnesjum.
Enginn vafi leikur á því, að þctta
samkomuhús á eftir að efla félags-
lífið í Njarðvíkum til mikilla
muna.
Gunnar Eyjólfsson leikari
kom nýlega í hcimsókn til ætt-
ingja og vina. Hann mun bráð-
lega hverfa aftur til Englands og
mun þá ferðast með leikflokki til
10 horga þar í landi. í leikflokki
])essum mun Gunnar leika annað
aðalhlutverkið, en með aðalhlut-
verkið fer Noel Coward, einn af
þekktustu listamönnum Rreta-
veldis. Gunari hefur þegar boðizt
tilhoð frá Hollywood, sem hann
þó hefur hafnað að svo komnu
máli.
Allmiklar endurbætur
fara nú fram á símakerfi Kefla-
víkur og var ekki vanþörf á.
Menn, sem beðið hafa árum sam-
an eftir að fá síma, munu nú fá
ósk sína uppfyllta. Símakerfi
Kcflavíkur tekur einnig yfir Ytri-
og Innri-Njarðvíkur. Ætlazt mun
hafa verið til, að unnið yrði að
endurbótum símakerfisins fyrir
um 300 þús. krónur, en einhver
niðurskurður hefur átt sér stað
á framkvæmdunum, eins og öðr-
um opinberum framkvæmdum.
Hafnargerðinni í Keflavík
miðar stöðugt í áttina. 1 sumar
mun aðallega unnið að ])ví, að
lengja bryggjur þær, sem þegar
hér á götunum er að verða al-
Suðurgatan er
ein af mestu um-
ferðaræðum Kefla-
vikur. Hve lengi á
oddvita að tiðast,
að þrjózkast við
að breikka göt-
una?