Morgunblaðið - 31.03.1968, Page 1
32 SIÐDR
6«. tbl. 55. árg. SUNNUDAGUK 31. MAKZ 1968 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
45 stúdentum í
Póllandi refsað
Sfö deildum Varsiá?há§kóla
lokað
Varsjá, 30. marz — AP—NTB —
SJÖ deildum Varsjárháskóla var
lokað í morgun, 34 stúdentum
visað úr skóla og 11 reknir um
stundarsakir í refsingaskyni við
ólöglegan fund, sem stúdentar
héldu í fyrradag. 11 aðrir stú-
dentar eiga sams konar refsingu
yfir höfði sér.
1.000 stúdentar sóttu fundinn
handrita
málinu
I Kaupmannahöfn, 30. marz
| EINKASKEYTI TIL MBL.:
. Hinu svokallaða „viðurkenn- ,
1 ingarmáli" dönsku ríkisstjórn'
\ arinnar gegn Árna Magnús-1
| sonar-nefndinni verður frest-1
, að til 19. apríl næstkomandi.,
1 Er það í annað sínn, sem
I málinu er frestað en það átti'
| upphaflega að taka fyrir Z. |
k febrúar sl. Akvörðunin um j
frestunina var tekin á réttar- .
I fundi í Eystri landsrétti á'
| þeirri forsendu, að ennþá |
jskorti vissar upplýsingar sem j
-í vrir hendi þurfa að vera til |
I þess að unnt sé að taka málið ;
| til dóms.
Tilgangurinn með „viður-1
1 kenningarmálinu“ er sá, að fá j
I það staðfest með dómi, að,
) Árna Magnúsarnefndinni beri'
k samkvæmt dómi hæstaréttar (
1 frá 1966, að afhenda handritin |
in án þess að fyrir komi
| skaðabætur.
— Rytgaard.
Johnson
fordæmir
oovroir
Washington, 29. marz. —
NTB: —
JOHNSON, forseti, lýsti því yfir
í gær, að bandaríska þjóðin gæti
ekki látið uppþot, rán og íkveikj
ur viðgangast í borgum lands-
ins. Hann hét því að stjórnin í
Washington hefði fulla sam-
vinnu við yfirvöld í borgum og
bæjum til þess að halda uppi lög
um og reglu í sumar.
Forsetinn hélt öllum á óvart
ræður á tveimur pólitískum fund
um í Washington, á fundi í
menntamálanefnd verkalýðssam-
bandsins AFL-CIO og á fundi í
landsnefnd ungra demókrata. —
Framhald á bls. 31
enaa þótt rektor háskólans hefði
lagl bann við honum og blöðin .
varað við því, að fleiri fundir
yrðu ekki látnir viðgangast. Síð
an stúdentarnir hófu mótmæla-
aðgerðir sínar 8. marz hafa 12
menn verið sviptir embættum,
þar af 10 Gyðingar, að því er
talið er.
Stjórnin kennir zíonistum,
menntamönnum og fyrrverandi
stalínistum um ólguna í land-
inu, og blöðin halda áfram að
kenna áróðursmiðstöðvum zíon-
ista í Bandaríkjunum, Bretlandi
Vestur-Þýzkalandi og ísrael um
að halda uppi ófrægingarherferð
gegn Póllandi, meðal annars með
því að bera pólsku stjórninni á
brýn, að hún beiti Gyðinga mis-
rétti.
í gær skoraði blaðið „Trybuna
Mazowiecka“ á Gyðinga, er
gegna mikilvægum embættum
hjá flokknum og ríkinu, að for-
dæma þessa „ófrægingarherferð"
zíonista. I árásunum á zíonista
Framhald á bls. 31
Samkoinulag í
Sfokkhólml?
Stokkhólmi, NTB-AP: —
FJARMÁLARAÐHERRA Svía
Krister Ickman, hefur lagt fram
málamiðlunartillögu á ráðstefnu
fjármálaráðherra og bankastjóra
í Stokkhólmi og er þar reynt að
finna almenna lausn á gjaldeyris
erfiðleikum heimsins.
Samkvæmt áreiðanlegum heim
ildum er tillagan á þá lund að
komið verði á kerfi er veiti ríkj-
um heims sérstaka yfirdráttar-
heimild í Alþjóðagjaldeyrissjóðn-
um til þess að treysta lánsmögu-
leika þeirra. Einnig er gert ráð
fyrir að ákvæðum um Starfsemi
sjóðsins verði breytt á vissum
sviðum. Til þess að tillagan hljóti
samþykki verða fulltrúar margra
landa að gera tilslakanir.
Afli hefur verið tregur undanfarið hjá bátaflotanum og gæftir hafa verið mjög slæmar. Held-
ur hafa þó veðurguðirnir verið hlynntari sjómönnum síðustu daga og bátar hafa komizt á sjó.
Þessa fallegu mynd tók Sigurgeir Jónasson á Eyjamiðum, þar sem bátarnir lóna í kvöldhúm-
inu á stirndum sæ.
FJOLMENNI VID UTF0R
GAGARINS 0G SERJ0GINS
Moskvu, 30. marz. AP.
í MORGIJN var gerð í Moskvu
útför sovézka geimfarans Yuris
Gagarins og félaga hans Vladi-
mirs Seryogins, ofursta, sem
fórst með honum í flugslysinu
fyrir nokkrum dögum. Ösku
þeirra var komið fyrir í Kreml-
múrnum rétt við grafhýsi Len-
íns. Þar eru geymdar jarðneskar
leifar helztu hetja og mikil-
menna Sovétríkjanna.
Gífurlegur mannfjöldi var
við útförina og eidsnemma í
morgun höfðu Moskvuibúar farið
að safnast saman á Rauða torg-
inu O'g meðfram leiðinni, sem
líkfylgdin fór um, frá aðalstöðv-
um sovézka hersins í Moskvu til
tor.gsins. Sú vegalend er um
fjórir kílómetrar. Áður höfðu
hundruð þúsunda manna gengið
um salinn í aðalstöðvunum, þar
sem' krukkunum með ösku hinna
látnu var komið fyrir, ásamt
myudum af þeim og fánaskreyt-
ingum. Þar stóðu heiðursvörð
félagar úr geimfarardeildinni
sem Gagarin stjórnaðd.
Andrei P. Kirilenko, einn af
ri'turum kommúnistafliokksins
minntist hinna látnu mieð ræðu.
Framhald á bls. 31