Morgunblaðið - 31.03.1968, Page 2

Morgunblaðið - 31.03.1968, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. MARZ 1968 Látum ósigurinn ekki á okkur fá — segir Wilson, forsœfisráðherra Bret- lands. Anthony Crossland hvetur til breytinga á stjórninni Londn, 30 marz ap. MIKffi er enn rætt og ritað nm ósigur brezka verkamannflokks- ins í aukakosningunum si. fimmtudag og einn af ráðherrum brezku stjórnar, Anthony Cross- land, hefur lagt til, að gerðar verði breytingar á stjórninni með það fyrir augum að efla traust þjóðarinnar á henni. For- sætisráðherrann, Harold Wil- son, hefur hinsvegar sagt, að stjómin muni ekki láta ósig- urinn á sig fá og halda stefnu sinni til streitu. Brezku blöðin ræða ítarlega stjórnmálaástandið og stöfcu verkamannaflokksins. „The Times“ segir til dæmis, að flokk- urinn eigi ekki nema um tvennt að velja „dauð-a eða endurfæð- ingu“ og forystumenn hans verði að gera upp við sig hvorn kostinn þeir kjósi. „Daily Tele- graph“ segir, að enginn nema Wilson geti ákveðið, hvort geng- ið skuli til almennra kosninga, — en hann muni gera sér þess grein af úrslitum aukakosning- anna, að óráðlegt sé að leggja málin undir dóm kjósenda að sinni. Þó segir blaðið, að þess sé lítt að vænta að staða flokks- ins meðal þjóðarinnar batni á næsta ári eða tveimur, — hún geti jafnvel farið versnandi. í AP frétt frá New York er sagt frá ritstjórnargrein í „the New York Times“, Þar sem segir að úrslitin í brezku aukakosn- ingunum hafi orðið enn hroða- legri fyrir verkamannaiflokkinn en skoðanakannanir hafi bemt til og ósigurin sé líklegur til að vald,a ólgu og deilum innan flokksin'S. Þó telur blaðið ólík- legt að flokkurinn gangi til kosn inga. fhaldsmenn, segir blaðið, að ættu að halda fögnuði sínum yfir sigrinum innan takmarka, því að sigurinn á fimmtudag byggist ekki á því, að fylgismenn Verkamannaflokksins hafi snúið til fylgis við íhaldsflokkinn, heldur hafi þeir kosið að sitja hjá í kosningunum. Johan Galtung. Háskólastúdentar bjóða þekktum IMorðmanni STÚDENTA'FÉLAG Háskóla ís- lands hefur boðið hingað til lands þekktum Norðmanni, Jo- han Gaitung, forstöðumanni al- þjóðlegu friðarrannsóknarstofn- unarinnar í Osló — International Peace Researdh Institute Oslo. Johan Galtung mun væntan- lega halda fyrirlestur um friðar- umleitanir í Suðaustur-Asíu og víðar og svara að því búnu fyrir- spurnum á fundi stúdentafélags- ins föstudaginn 5. apríl næst- komandi, en þann dag er hann væntanlegur hingað til lands frá Japan. Friðarrannsóknir hafa á síð- Fynrlestur Þórhnlls PRÓFESSOR Þórhallur Vilmund arson heldur fyrirlestur um náttúrunafnakenningu sína á sunnudag. Vegna þess að mikil aðsókn var að síðasta fyrirlestri, hefur verið ákveðið að flytja fyrirlesturinn í Háskólabíó og hefst hann þar kl. 1,30 e.h. Gotsíldin komin við Eyjar Gotsíldin komin við Eyjar W 6 TROLLBÁTAR við Vestmanna- eyjar urðu varir við sild suður af Surtsey í gær. Reykjaborgin var með síldarnót við Eyjar á heimleið frá Færeyjum og héit báturinn strax á miðin. Við höfð um samband við Harald Ágústs- son skipstjóra á Reykjaborginni í gær, en Reykjaborgin var þá á Selvogsbanka á leið til Reykja 'víkur. Haraldur Ágústsson, skipstjóri á Reykj aborginni, sagði okkur að þeir hefðu ætlað að taka einn túr fyrir Norðurstjörnuna, en Laus embætti skólameistara og fréttastjóra Menntamálaráðuneytið hefur auglýst embætti skólameistara á Akureyri laust til umsóknar. Eiga umsóknir um embættið, á- samt upplýsingum um menntun og fyrri störf umsækjenda að berast menntamálaráðuneytinu fyrir 15. apríl 1968. Þá er auglýst laus staða frétta- stjóra Ríkisútvarpsins og er um- sóknarfrestur einnig til 15 apríl. bannað er að veiða gotsíldina nema fyrir síldarniðursuðuiðnað. Haraldur sagði, að þeir hefðu fundið síld suður og suð-vestur af Surtsey og hefði hún verið dreifð á 140—200 faðma dýpi, en síldin hefði vaðið uppi á 15— 50 föðmum. í gærmorgun brældi þarna úti og ekkert veiddist. Reykjaborgin hélt heimleiðis, en sem fyrr segir voru þeir að koma frá Færeyjamiðum og fóru þaðan tvo túra með síld til Cuxhaven í Þýzkalandi og seldu 245 tonn fyrir 170 þúj. mörk. Við höfðum samband við Hjélmar Vilhjálmsson hjá Rann sóknarstofnun sjávarútvegsins og sagði hann, að staðið hefði til að fara á rannsóknarskipi suð- ur fyrir land og fylgjast með vorgotsíldinni, eins og venja hef ur verið undanfarin ár, en óvíst nvcrt að af því getur orðið sök- um annríkis leitarskipanna. Síldin, sem um er að ræða er annað hvort vorgotsíld eða sum argotsíld. „Ósennilegt er að þarna sé um að ræða mikið magn af vorgotsíld, þar sem hún hef- ur aðeins verið óverulegur hluti þeirra sýnishorna af Suðurlands síld, sem okkur hefur borizt á sl. tveimur árum“, sagði Hjálmar. Samkvæmt lögum er bannað að veiða þessa síld, sem stendur nema með undanþágu fyrir nið ursuðuiðnað á síld. ustu árum skotið upp kollin- um í mörgum löndum heims, þótt þær séu enn óþekktaæ hér á landi. Gegna þær göfugu hlut- verki í ótryggum heimi nútím- ans. Stærsta friðarrannsóknar- stofnunin í Evrópu er einmitt í Osló. Joihan Galtung er forstöðu- maður hennar. eins og áður seg- ir, og ritstýrir einnig riti stofn- unarinnar, Journal of Peace Researdh. Hefur hann ritað fjölda greina um þessi mál í tímarit og ferðast víða um heim og haldið fyrirlestra. Nánar verður greint frá fundinum síðar í vikunni. (Fréttatilkynning frá Stúd- entafélagi Háskóla íslands — SFHÍ). iToka aistöðn . EINS og blaðalesendum er , | kunnugt hafa dagblöðin í [Reykjavík skýrt frá framboð- um þeirra dr. Gunnars Thor- ' oddsens og dr. Kristjáns Eld- I járns til forsetakjörs á hlut- I lausan hátt og hafa ekki tek- I ið afstöðu til frambjó'ðend- I anna. Hins vegar hafa tvö blöð | ! lýst yfir stuðningi við annan ’ frambjóðandann, dr. Kristján I Eldjám, og er hér um að ræða „Frjálsa þjóð“ og „Austur- [ land“, málgagn Alþýðubanda- lagsins á Austurlandi. „Frjáls þjóð“ segir m. a. 1 l 28. marz sl.: „Nú þegar fyrir | I liggja framboð ofangreindra tveggja manna, hlýtur Frjáls 1 þjóð með tilvísan til ofanrit-1 ) aðs að fagna framböði dr. | I Kristjáns Eldjárns og lýsa yf- i ir stuðningi sínum við það“. Hátt verð á íslenzkri síld í V-Þýzkalandi REYKJABORGIN RE kom til Reykjavíkur í nótt, en skipið hefur verið á síldveiðum við Færeyjar. Haraldur Ágústsson skipstjóri á Reykjaborginni sagði okkur, að þeir hefðu farið tvær ferðir með síld til Cuxhven í Þýzkalandi og selt samtals 245 tonn fyrir 170 þús. mörk. Miðað við það hefur kílóið af síldinni selzt á u.þ.b. 10 kr. og er það mjög gott verð. Haraldur var ekki ákveðinn hvaða veiðarfæri hann tæki næst, en bjóst við að þeir tækju þorskanót. Svoboda hlaut 282 atkv. aff 288 A ÞINFUNDI í Prag í morgun var Ludvik Svoboda kjörinn for seti Tékkóslóvakíu með atkvæð- um 282 þingmanna af 300. Tveir voru fjarverandi og sex sátu hjá við atkvæðagreiðsluna, sem var leynileg. Sjónvarpað var beint frá at- höfninni í Kradshin höllinni og þar umhverfis hafði mikill mann fjöldi safnazt saman. Veður var hlýtt, vor í lofti og menn léttir í bragði, er þeir biðu þess að nýi forsetinn kæmi út úr höll- inni. Til þess að ná kosningu þurfti Svoboda að fá að minnsta kosti þrjá fimmtu hluta atkvæða, eða 180. Saltsíld send ffrd Vopnafirði — samgöngur erfiðar Vopnafirði 30. marz: — í * ÞESSARI viku hefur verið óvenjumikið um samgöngur á sjó. Hér var rússneskt skip, sem tók 3800 tunnur af saltsíld til Rússlands og þar með er far- in öll síld frá Vopnafirði á Rússlandsmarkað. Holtavörðoheiði aftur lokuð — Fjölmargir bílar bíða f GÆR var fært um Suðurlands- undirlendi að Vík, en bálfófært um Mýrlandssand. Var fært um Snætfellsnes. En hætta varð mokstri í gær á Holtavörðu- heiði og ekki útlit fyrir að hægt yrði að halda áfram mokstri neitt í gær. Bíða geysi- margir bílar bæði fyrir norðan og sunnam eftir að komast milli Norður- og Suðurlands. Fært hefur verið yfir Öxnadals'heiði og um Norðurland, en í gær var al-lt að teppast aftur vegna hríðar. í s.l. viku var vegurinn til Siglufjarðar opinn í tvo daga, en nú er hann ófær atftur. Mikil ófærð er á Austurlandi, þó feert um Fagradal. Og einnig mikil ófærð á Vestfjörðum. IMámskeið á vegum Kaupmannasamtakanna KAUPMANNASAMTÖK ís- , komulag og verður framkvæmd .lands gangast fyrir 3 námskeið- um fyrir kaupmenn og afgreiðslu fólk á tímabilinu 22. apríl til 4. maí n.k. Fyrir almennt afgreiðslufólk verða námskeið, sem munu standa yfir í 4 daga á tímabilinu frá 9—12 f.h. Fyrir kaupmenn og verzlunar stjóra (aðra en matvöru- og kjötkaupmenn) verða námskeið sem standa yfir í 3 daga allan daginn. Loks verða sérstök námskeið fyrir eigendur og starfsfólk Raf tækjaverzlana, er standa munu yfir í 4 daga, allan daginn. Kaupmannasamtökin hafa haft náið samstarf við Iðnaðarmála- stofnun íslands um allt fyrir- námskeiðanna í höndum Iðnaðar málastofnunarinnar. Hefur hún jafnframt fengið sem leiðbein- endur á námskeiðin tvo norska ráðunauta (konsulenta), er hafa margra ára reynslu að baki í þessum efnum. Aðaltilgangur námskeiða eins og þessara er að auka á þekk- ingu og hæfni þátttakenda í sínu daglega starfi. Aukin hæfni verzlunareigenda og starfsfólks þeirra leiðir til betri og full- komnari þjónustu og um leið til bættrar afkomu fyrirtækjannna. Nú þegar hafa margir látið skrá sig til þátttöku og ber að senda þátttökutilkynningu til skrifstofu Kaupmannasamtak- anna, Marargötu 2. (Fréttatilkynning). Sama dag var Suðri hér og tók 760 tunnur af síld til Svíþjóðar. Freyfaxi kom hingað með 4 tonn af sementi og Bakkafoss með 80 tonn af áburði. Einnig kom Esja hér við í strandferða- áætlun. Þetta voru nokkur viðbrigði fyrir Vopnfirðinga, því engar samgöngur höfðu verið við Vopnafjörð í 12 daga um mið- bik mánaðarins, annars heldur Tryggvi Helgason stöðugt uppi flugferðum og hefur gert það með prýði. Nú eru snjóalögmik- il og illfært um sveitina, og al- gjörlega ófært landleiðina frá Vopnafirði. Stórar gjafir til sundlaugasjóðs NÝLEGA veitti stjórn sjóðsins móttöku stórgjöf frá kvenna- deild Sálarrannsóknarfélagsins, pen. að upphæð kr. 66.080,00. Einnig pen. að upphæð kr. 10000,00 frá Erlu Sigurðard. Skálatúni. Þessum gefendum þakkar stjórn sjóðsins af alhug góðan stuðning við málefnið. SH og tryggingar- félögin BALDVIN Einarsson, formaður Samibands íslenzkra tryggingar- félaga hefur komið að máli við Morgunblaðið og beðið það að taka fram eítirfarandi vegna ummiæla Guðmundar H. Garðars sonar í grein í Mbl. 28. þ.m. Mér er ekki kunnugt um, að Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna hafi á nokkurn hátt verið þving- uð til að setja á stotfn eigið tryggingarfélag. enda iðgjöld þess ekki lægri en hjá öðrum tryggingarfélögum. Hefur SH því bundið fé félagsmanna í fyrirtæki, sem því var engin nauðsyn að stofnsetja. Sölumiðstöðin hefur ekki gef- ið öðrum tryggingarfélögum kost á að bjóða í tryggingar hrað- frystihúsa þeirra, er undir hana falla, eða í útflutning afurða þeirra, sagði Baldvin Einarsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.