Morgunblaðið - 31.03.1968, Page 4

Morgunblaðið - 31.03.1968, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. MARZ 1%‘8 Rauðarárstíg 31 S'imi 22-0-22 MAGIMUSAR 1skiphoiti21 símar 21190 eftir lokun simi 40381' " Hverfisgötu 103. Sími eftir lokun 31160. LITLA BÍLALEIGAN Ingólfsstræti 11. Hagstætt leigugjald Sími 14970 Eftir lokun 14970 eða 81748 Sigurður Jónsson. BÍLALEIGAN - VAKUR - Sundlaugavegi 12. Sími 35135. Eftir lokun 34936 og 36217. BÍLALEIGAN AKBRAUT NÝIR VW 1300 SENDUM SÍMI 82347 Heitur og kaldur SMURTBRAUÐ OG SNITTUR Sent hvert sem óskað er, sírni 24447 SÍLDOGFISKUR RITSTJÓRN • PRENTSMIÐJA AFG REIÐSLA • SKRIFSTOFA SÍMI 10*10Q ig Prestsembættið í Kaupmannahöfu Séra Hannes Guðmundsson skrifar: „Fellsmúla, 26. marz 1968. „Velvakandi góður: Góðfúslega birtið eftirfarandi í pistlum yðar: Eitt af mörgum umdeilanleg- um atriðum í sparnaðarfrum- varpi ríkisstjórnarinnar langar mig að gera hér að umræðu- efni í örstuttu máli, áður en frumvarpið verður endanlega afgreitt, en það er niðurlagn- ing prestsembættisins í Dan- mörku. Að slík tillaga skuli koma fram, þykir mér bera vott um svo fádæma vanþekkingu á eðli málsins, að ég ekki segi fyr irlitningu á því merkilega mann úðar- og þjónustustarfi, sem innt hefur verið af höndum á undanförnum árum, að ég tei, að ekki megi kyrrt liggja. Þó að við látum prédikunar- og prestsþjónustustarfið liggja á milli hluta, sem ég veit, að í augum vantrúarinnar þykir einskis vert, þá er annar þátt- ur þessa starfs athygli verður, og á djúþ ítök í hugum margra, hverrar trúar, sem þeir eru, en það er hið mikla þjónustustarf við sjúka, sem presturinn í Danmörku hefur leyst af hendi með þeirri prýði, sem mörgum er kunn og þeir, sem notið haf i. gleyma aldrei. Hundruð íslend inga hafa á undanförnum árum orðið að leita sér lækningar í Danmörku og hefur þá prest- urinn verið boðinn og búinn til að leysa vanda hvers og eins bæði sjúklinga og vandamanna þeirra, sem oft hafa komið bæði mállausir og févana í ókunn- ugt land, svo ekki sé nefnd hin mikla hugarkvöl, sem öllu þessu er samfara. Gerum ráð fyrir, að flutningsmenn frum- varpsins ætli sér ekki að draga úr þessum þætti þjónustunnar, heldur fela þetta starf ein- hverjum starfsmanni sendiráð3 ins, þá vil ég benda þeim góðu mönnum á, að engin annar mað ur getur komið í stað prestsin ;, nema að mjög takmörkuðu leyti. Hið almenna prestsstarf er þess eðlis, að fólkið kýs eng an annan sér við hlið á erfið- ustu og alvarlegustu stundum ævinnar, hversu ófullkominn, sem presturinn annars kann að vera. Frumvarpið í heild leysir lít inn vanda, og þetta atriði þess engan, en getur aftur á móti valdið ófyrirsjáanlegu tjóm. Bið ég því flutningsmenn að endurskoða afstöðu sína og koma með breytingartillögu samkvæmt því. Gott væri, að þeir, sem kynnzt hafa hinu merka menn ingar- og mannúðarstarfi, sem íslenzka kirkjan rekur í Dan- mörku, segðu álit sitt á þessu máli. Virðingarfyllst, Hannes Guðmnndsson, Fellsmúla, Rang“. ig Skemmdaræði látið óátalið „Þórunn skrifar: „Kæri Velvakandi: Mér þótti ljót myndin, sem Morgunblaðið birti af skemmd arverkinu í nýja Sijla & Valdr húsinu við Austurstræti. Þar hefur gullfallegt veggfóður ver ið rifið af lyftuveggnum, og kemur fram í frétt með mynd- inni, að sífellt sé verið að tæta það og skemma. Ég vissi nú satt að segja ekki, að þetta væri veggfóður, en hins vegar hafði ég veitt veggnum sérstaka athygli, þar sem mér þótti skreytingin einstaklega falleg. En hvernig stendur á þessari ónáttúru í skemmdarvörgun- um? Séu þeir staðnir að verki. á vitanlega að senda þá í geð- rannsókn og láta sálfræðinga reyna að lækna þá. Skrítið er, að hægt sé að vinna svona verk, án þess að eftir skemmdarvarginum sé tek ið. Margir eiga leið í þetta hús, og er grunur minn sá, að fólk kunni ekki við að skipta sér af öðrum, þótt þeir sjái þá gera eitthvað misjafnt. Skemmdar- æðið er látið óátalið. ig Má ekki ávíta börnin? Fyrir kemur, að krakkar rista sundur sætaáklæði í stræt isvögnum og vinna önnur spell. Ég hef einu sinni séð tvo drengi vera að fikta með hnífi eða öðru áhaldi í strætisvagni. Maður einn bað þá að hætta þessu, en þeir hlógu að hon- um, og hitt fólkið í vagninum virtist telja, að manninum kæmi þetta ekkert við. Þá minnist ég bréfs í dálk- um þínum, þar sem maður einn sagðist hafa beðið börn að hætta grjótkasti uppi í Öskju hlíð á sólskinsdegi, og því margt þar um manninn. Mað- urinn fékk ekki annað út úr því en að fólkið hélt, að hann væri undir áhrifum! ig Öllum sama Um daginn vai ég að bíða eftir strætisvagni rétt hjá horni Hverfisgötu og Smiðju- stígs. Þar á horninu stendur gamalt timburhús, sem ekki er lengur búið í. Allmargt fólk beið þarna ásamt mér. Nokkr- ar rúður höfðu verið brotnar * húsinu og ein niður til hálfs. Strákur, á að gizka tíu ára, tek ur sig þá til, fer að hnoða snjó- bolta og kasta þeim í rúðu- glerið. Braut hann smám sam- an glerið ofan í karm, en ann- að veifið lét hann boltana bylja á þiljum inni í húsinu. Ég beið þess, að einhver karlmannanna í hópnum skipaði drengnum að hætta þessu, en þegar engrnn varð til þess, herti ég upp hug- ann og bað hann að hæirti. Stráksi starði undrandi á mig andartak, en sagði svo: Þú ert vitlaus, kerling! Hélt hann síð ann og bað hann að hætta ég sá, að súmir höfðu gaman af og glottu við. Er nú að furða, þótt mis- brestur verði á sumu í uppeld inu hjá okkur, þegar svo virð- ist, að ekki megi ónáða ungl- inga í skemmdarverkum þeirra? Þórunn“. it Þágufallið að týnast? B. Bs. skrifar: „Velvakandi minn! Margir hafa áhyggjur vegna hinnar svonefndu þágufalls- sýki, og víst er um það, að hún er heldur óhrjálegur sjúkdóm- ur í tungunni. Um hitt skrifa færri, að svo virðist sem þágu- fallsendingin - sé að hverfa úr prentuðu máli, og þágufalli sé þar með slengt saman við þolfall. Mýmörg dæmi mætti tína til úr dagblöðunum. Menn eiga heima á Hofteig, að Gullteig, rætt er um framleiðslu á fisk, og í barnabókum er sagt frá Stubb og Stúf o.s.frv. Mér þyk- ir þetta einkennileg árátta, t. d. hjá þeim, sem skrifa í blöð, og hefur dottið i hug, hvort hræðslan við þágufallssýkina al ræmdu sé svo megn að menn forðast að nota það. Furðulegt er og að sjá í tveimur dagblöðum talað um skuldunauta, þegar augljóslega er átt við lánadrottna. í öðru blaðinu (Tímanum) er meira að segja talað um skuldunauta tvo daga í röð í þessari röngu merkingu, og er þar greinilega hvorki um prentvillu né fljót- færni að ræða, heldur hreina vankunnáttu“. — Bréf B. Bs. er miklu lengra, en ekki verður meira birt úr því að sinni. Fasteignasalar Ungur, reglusamur maður, vanur fasteignasölu- mennsku óskar eftir atvinnu hjá fasteignasölu. Ilefur bíl til umráða. Tilboð merkt: „Sölumaður — 8855“ sendist Mbl. fyrir 7. apríl. ★ TEMPLARAHÖLLIIM ★ u N G L I N G A D A N s L E I K U R ÍDAG kl. 3-5 SÁLIN Miðasala frá kl. 2. SÁLIN f KVÖLD DAN SLEIKUR unga fólksins frá kl. 9V2. Munið nafnskír- teinið. KOMIÐ OG 8JAIÐ ATSUMA TAKI Skemmtir kl. 21,30. S.K.T,

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.