Morgunblaðið - 31.03.1968, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. MARZ 1968
11
Helga í hlutverki
— „indtil hun smiler". Þessar
sterku andstæður í fari hennar
gerðu hana án efa að þeirri
miklu listakonu, sem hún varð.
Og um sína daga hafði kannski
enginn meiri áhrif á mótun ís-
lenzks þjóðlífs en Valtýr Stef-
ánsson.
Ætli dótturinni hafi ekki kippt
í kyni'ð — með sínum miklu
andstæðum: þessu ríka geði mik-
ils og leitandi listamanns og svo
hógværð þess, sem reynir að
þekkja sjálfan sig og virða aðra.
Steinn Steinarr talaði ein-
hvern tíma við mig um að „sitja
langt inni í einhverjum dular-
fullum skógi, þar sem ljósið
kemur neðan frá, og tala við
ókunna guði“.
Oft hafa mér dottið þessi orö
í hug, þegar ég minnist Valtýs
Stefánssonar og hans góða fólks.
Á Laufásveginum kynntist ég
þessum „dularfulla skógi“, fyrst
á heimili Kristínar og Valtýs,
Mutter Courage.
síðan heima hjá Helgu og Bimi
Thors og loks á heimili Huldu
systur hennar og Gunnars
Hanssonar í Sólheimum. Það
nafn er engin tilviljun.
Þessar stundir hafa átt meira
skylt við ævintýr þess eilífa leik-
húss, sem bíður okkar allra og
er oft og tíðum raunverulegra
en sá hversdagsleiki sem kallar
okkur til starfa, krefst marg-
víslegra átaka — krefst að lok-
um síðasta blóðdropans í æðum
okkar. En eftir stendur minn-
ingin, heil og óbrotgjörn og öguð
af stormum sinna tíða. Mundi
hún ekki vera plógurinn sem
ristir hjarta okkar, svo áð við
megum uppskera Helgu Valtýs-
dóttur — og hennar líka?
í söknuði er gott til þess að
vita að þessi uppskera bíður
barna hennar og okkar allra,
sem þótti vænt um hana. Meira
getum við ekki krafizt.
Matthías Johannessen.
Helga í hlutverki Mörtu í Virginiu Woolf.
HOFUM FLUff
skrifstofu, afgreiðslu og
frágangsdeild okkar i
SKBIFUNA 3A
AthugiB ný og breytt simanúmer
SKRIFSTOFA
AFGREIÐSLA
SKEIFUNNI 3 A
VERKSMIÐJAN
KLJÁSTEINI
MOSFELLSSVEIT
84700
36935
66142
GÓLFTEFPAVERKSMIÐJAN
7á
Fólk eins og Helga.
Manneskjur sem lifa með okk-
ur, þó þær hverfi.
Ekki áðeins rætur, heldur
blómskrúð sem kallar á sól og
regn.
Ekki einungis hetjusaga í þús-
und ár.
Heldur goðsögn.
En hvernig gat hún verið
öðruvísi dóttir Kristínar Jóns-
dóttur og Valtýs Stefánssonar?
Danskur dagblaðsmaður sagði
einhverju sinni um Kristínu að
hún væri óvenjusterk persóna;
hún minnti á íslenzkan jökul
HETJA. Það orð verður mér
efst í huga, þegar ég minnist
Helgu Valtýsdóttur. Það var eng-
in tilviljun að henni tókst að
túlka Mutter Courage, eins og
raun bar vitni. Með henni
sjálfri bjuggu allir beztu eigin-
leikar þeirrar hugrökku konu.
Ég gleymi aldrei begar hún
sagði mér fyrst frá þeirri
ákvörðun þjóðleikhússtjóra að
gefa henni tækifæri til að leika
Mutter Courage. Þá lá hún í
Landakotsspítala eftir erfiða
skurða’ðgerð til að hefta út-
breiðslu þess sjúkdóms, sem nú
hefur leitt til dauða hennar í
blóma lífsins. Kjarkurinn, hetju-
lundin, gleðin og þakklætið
geislaði af henni. í slíkum ham
verður hún ógleymanleg. Og síð-
ar átti hún einnig eftir að gera
okkur Mutter Courage ógleym-
anlega.
Helga þekkti styrk sinn, svo
öfundarlaus og jákvæð í garð
allra sem raun bar vitni. Svo
örugg og óhrædd — ekki sízt
við sitt eigið egó. Það var stund-
um erfitt, en henni tókst ekki
aðeins áð aga það, heldur einnig
sigra það. Það hefur ekki öllum
tekizt. Að hún var hetja vissi ég
ekki fyrr en ég sá hana horfast
æðrulausa í augu við þann, sem
hún sagði við í bókstaflegum
skilningi: Kom þú sæll þá þú
vilt. Engan hef ég séð heyja svo
harða baráttu af svo miklum
kjarki og allt að því skeytingar-
lausri hreinskilni við sjálfa sig
og aðra. Og það einmitt þegar
blekkingin hefði. komi'ð að hvað
beztu gagni. Það á áreiðanlega
eftir að vefjast fyrir mörgum
okkar, hvernig hún komst hjá
því að þurfa á henni að halda.
Við vissum að Helga var mik-
ilhæf leikkona og þurftum ekki
að fá staðfestingu á því, en
samt skolaði á fjörur okkar
heimildum fyrir því að hún var
meiri leikkona en ger'ðist í okk-
ar þrönga umhverfi. Hún skák-
aði jafnvel „stjörnum" sem
höfðu dregið að sér heimsat-
hygli, það sáum við svart á
hvítu þegar kvikmyndin um
Virginiu Woolf barst hingað til
lands: Marta Helgu Valtýsdóttur,
án heimsorðstírs eða Oscars-
verðlauna, hefur orðið mörgum
ógleymanlegri en sú, sem Elísa-
bet Taylor skilaði inn á filmuna.
Samt var hún frábær. En svo
magnað og raunar ótrúlegt er
ævintýrið um þáð litla samfélag
sem heitir íslenzk þjóð — og
ætti vegna mannfæðar ekki
einu sinni að vera til á pappírn-
um — að við getum horft af
hæstu sjónarhólum, þegar metið
er það bezta í íslenzkri samtíð.
Þó að margt megi að þessu sam-
félagi finna, er það blákaldur
og heillandi veruleiki, ekki ein-
ungis þar sem hann er yfir-
borðslegastur og skrautsýningu
líkastur, heldur einnig þar sem
hann vakir sannastur undir yfir-
borðinu: rætur í gróinni menn-
ingu.
Að þekkja sjálfan
sig og virða aðra
íslenzk og ensk gdlfteppi í úrvali
TEPPI úr íslenzkri ull.
TEPPI með áföstu svampfilti til að leggja beint
á gólfi. — ÓDÝR TEPPI:
Einnig fallegar danskar IIARÐVIÐAR-
KLÆÐNINGAR.
Get.um tekið nokkrar teppalagnir fyrir páska.
Hagkvæmir greiðsluskilmálar.
TEPPAHUSIfl
SUÐURLÁNDSBRAÚT10. REYKJÁViK
SiMI:83570 PBOX1311