Morgunblaðið - 31.03.1968, Side 17

Morgunblaðið - 31.03.1968, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. MARZ 1968 17 Þessi mynd var tekin á föstudaginn og er af Heklu; þann dag voru liðin 21 ár frá síðasta Heklu- gosi. Greina má á myndinni dökkan dil efst á suðuröxl fjallsins. Þar undir er enn heitt og það svo að snjó festir þar ekki, sögðu kunnugir eystra. í góðu veðri má stundum greina í sjónauka úr byggð, er gufu leggur upp af þessum gíg. (Ljósmynd Mbl.: Ól. K. Magnússon) REYKJAVÍKURBRÉF Laugard. 30. marz Helga Valtýs- dóttir látin Þegar Helga Valtýsdóttir var á fyrsta ári tók faðir hennar við ritstjórn Morgunbla'ðsins. Hún ólst því upp samtímis því, sem Morgunblaðinu óx fiskur um hrygg undir stjórn Valtýs Stef- ánssonar. Valtýr varð fyrir eigin ágæti mestur blaðamaður á ís- landi um sína daga, en Kristín kona hans veitti honum ómetan- legan styrk í starfi. Nærri má því geta, að á heimili þeirra hafi oft verið minnzt á málefni Morgunblaðsins. Áhugi Helgu Valtýsdóttur fyrir velgengni Morgunblaðsins hefur þessvegna vaknað snemma. Síðar meir tók hún sjálf sæti í útgáfustjórn blaðsins. Hugðarefni hennar voru þó miklu fleiri. Þegar á æskuárum fann Helga með sér kraft, meiri en gengur og gerist. Nokkuð langur tími leið þangað til henni yrði ljóst, hvernig hennar óvenjulegu athafnaþrá yrði bezt beitt. Um skeið fékkst hún lítillega við málaralist og fetaði þar í fótspor sinnar snjöllu móður, Kristínar Jónsdóttur. Sú listgrein reyndist þó ekki Helgu hennar rétti vettvangur, hann fann hún í leiklistinni. Fer ekki á milli mála, að þar náði Helga Valtýsdóttir í fremstu röð okkar kynslóðar á íslandi. Afrek henn- ar og dugur, einnig eftir að hún hafði tekið banamein sitt, var með ólíkindum. Áður en yfir lauk varð hún að þqla lang- vinna og þunga sjúkdómsþraut. Vinir hennar geta ekki harmáð, að því stríði er nú lokið, en þeir munu ætíð með söknuði minnast þessarar miklu hæfi- leikakonu, sem lézt langt fyrir aldur fram. Hreinskilin ævisaga íslenzkum ævisöguriturum hættir við að vera langorðir og á það jafnt við hvort sem þeir skrifa um sjálfa sig eða aðra. í lok annars bindis sjálfsævisögu sinnar er Sigurbjörn í Vísi enn ekki búinn að ná miðjum aldri. Hinn biblíufasti maður fylgir ekki hinni fornu kenningu: Ræ'ða yðar sé: já, já og nei, nei. Það, sem þar er umfram, er frá hinum vonda. Enda sannast hún ekki á Sigurbirni. Það er ekki hinn vondi höfuðpaur, sem stýrir penna hans, heldur er það lífið sjálft í öllum þess margbreyti- legu myndum, sem þar fær út- rás. Sigurbjörn segir af fullri hreinskilni frá því, sem fyrir hann hefur borið og dregur ekk- ert undan. Þess vegna er saga hans óvenju lærdómsrík. Hann þykist ekki hafa verið neinn dýrlingur, og segir opinskátt frá þeim glappaskotum, sem hann hefur gert, og freistingunum, sem á hann hafa sótt bæði í einkalífi hans og starfi. Hann segir óteljandi sögur af viðskipt- um sínum við meira og minna þekkta samtímamenn og varpar nýju Ijósi á einstök atvik stjórn- málabaráttunnar á fyrstu tveim- ur tugum aldarinnar. Lifandi frásögn Lesandinn sér ljóslifandi ýmsa atburði, sem Sigurbjörn lýsir. Svo er t.d. um kosningafund um uppkastið hér í Reykjavík 1908. Einkanlega er gaman að lesa lýs- ingu Sigurbjörns á því, hvernig Hannesi Hafstein hafi mistekizt, einmitt vegna þess að samkvæmt lýsingunni hefur Hannes talað af mestum mælskuhita. En hvorki hiti né mælska dugði áð því sinni til þess að komast inn í hið harða hjarta Sigurbjörns og engin nýjung er, að mönnum þyki meira til um sína menn en andstæðingana. Sigurbjörn varp- ar nýju ljósi á það, hvernig stóð á afsögn Björns Kristjánssonar úr nýmyndaðri ríkisstjórn 1917, og skýrir tengslin milli afsagnar Björns og andúðarinnar í garð Jóns Magnússonar í kosningun- um 1919 af hálfu margra þeirra, sem fylgt höfðu honum áður og gerðust síðar meir á ný dyggir fylgismenn hans. En vegna þess- arar andúðar féll Jón hér í Reykjavík 1919 og hafði þó skömmu áður unnið sinn stærsta sigur og afrek með gerð og lög- festingu sambandslaganna 1918. Aldrei hefur Sigurbirni hitnað meira í hamsi en í baráttu Knuds Zimsens og Sigurðar Eggerz um borgarstjóraembættið 1920, en þá var kosið til þess við almennar kosningar. Þá töldu KFUM-menn að sér vegið, brugð ust harkalega við, snerust til snarprar sóknar og unnu frægan sigur. Af viðtali Sigurbjörns og Sveins Björnssonar um kosningu Knuds má sjá, hversu seint vill gróa yfir gamlar væringar, og er þó fátt nauðsynlegra í stjórn- málum en að láta hi'ð liðna ekki verða til þess að spilla fyrir far- sælli framtíð. Sagt upp starfi Á æskuárum vann Sigurbjörn lengi hjá Edinborgarverzlun und ir stjórn Ásgeirs Sigurðssonar. Edinborg var í nánum tengslum við hlutafélagið Copeland & Berrie og segir Sigurbjörn m.a. svo frá: „Það duldist engum, að eftir ár- ið 1908-1909 varð hlutafélagið Copeland & Berrie fyrir ægileg- um töpum á fiskkaupum, allt að 2 milljónum. Sú saga gekk, að það hefði verið páfanum í Róm áð kenna. Hann hefði allt í einu tekið upp á þeim óvana, að leyfa þeim kaþólsku að borða kjöt á föstunni, sem kom sér svona illa fyrir íslenzka fisk- kaupmenn og þá sérstaklega fyr- ir Edinborg, sem var langstærsti fiskkaupandinn á þeim tíma. — Fór því svo að hið stóra, þarfa verzlunarfyrirtæki dró smátt og smátt saman seglin og endaði með því að byrjað var að segja upp starfsfólki, þegar árið 1913 gekk í garð. Þáð var svo 1. október þetta haust, að hús- bóndi minn heimsækir mig í pakkhúsið og tekur mig tali“. Er skemmst frá því að segja, áð Sigurbjörn varð að leita sér annarrar vinnu og er það önnur saga, sem hér skal ekki rakin. Það, sem máli skiptir, er, að þarna er enn eitt dæmi þeirrar óvissu, sem íslendingar eiga við að búa vegna þeirra miklu verð- sveiflna, sem okkar einhæfi út- flutningur er háður. Sennilega er það ekki of í lagt, að pen- ingagildi hafi þá verið hundrað- fallt við það, sem nú er. Ef Edin borgarverzlun hefur þá tapað 2 milljónum króna, mundi það því samsvara a.m.k. 200 milljónum króna nú. Víst er það há upp- hæ'ð fyrir eitt fyrirtæki og ekki nema að vonum, að það þyrfti að draga saman seglin eftir slíkt áfall. Athyglisvert er, að ein- mitt á sömu árum varð Milljóna- félagið svokallaða gjaldþrota, sennilega fyrst og fremst sökum hins sama verðfalls. Hér hefur lengi tíðkazt að kenna Dönum og dönskum einokunarkaup- mönnum áföll þau, sem við áður fyrri urðum fyrir í utanríkisvið- skiptum. Víst gerði einokunin ómetanlegt tjón. En þess ber einnig að gæta, að flestir þeir, sem við Islandsverzl- un hafa fengizt, hafa á fárra ára fresti orðið fyrir stórkostlegu tjóni. Atvinnuvegirnir hafa verið of einhæfir, afurðirnar of tak- marxaðar og bæði háðar óviss- um aflaföngum og síbreytilegu verðlagi. Út af fyrir sig er það engin huggun, þó að erfiðleikar hafi áður steðjað að. Þvert á móti má segja, að einmitt hinir síendurteknu erffðleikar hefðu átt að kenna mönnum nauðsyn þess að skjóta fleiri stoðum und- ir afkomuna. Þetta sáu og hinir framsýnustu menn um og upp úr aldamótunum. Enginn þó betur en Einar Benediktsson, sem eyddi beztu árum ævi sinnar og miklum eignum til að reyna að skapa nýjan grundvöll fyrir af- komu þjóðarinnar með virkjun vatnsaflsins. Sú tilraun mistókst og hefur lengst af verið talin til fjárglæfra, þó að sannleikurinn sé sá, að Einar hafi verið öllum samtímamönnum sínum raun- særri um það, sem gera þurfti. Mim Jnkja með ólíkindum Eftir á mun það þykja með ólíkindum, áð það skuli hafa kostað harða baráttu á sjöunda tug aldarinnar að knýja fram virkjun Þjórsár og byggingu ál- bræðslu við Straumsvík. Ekki eru enn liðin tvö ár frá því, að stjórnarandstæðingar hótuðu því á Alþingi að skera upp herör um allt land gegn slíkri ósvinnu! Einar Olgeirsson sagði á sínum tíma, að baráttan gegn Atlants- hafsbandalaginu og varnarsamn- ingnum mundi algerlega hverfa í skuggann fyrir þeirri baráttu, sem hafin yrði g'egn svo svívirði- legu athæfi sem þæsu. Úr þess- um stóryrðum varð minna þeg- ar á reyndi, ekki vegna þess, a'ð að forystumennina skorti vilja til þess að koma illu af stað, heldur af því að þeir fundu þegar í stað litlar undirtektir. Og nú, einungis tveimur árum síðar, vilja þeir láta allt þetta athæfi gleymast. Þeir þykjast meira að segja hafa verið með Þjórsárvirkjuninni, sem þeir ár- um saman reyndu að gera tor- tryggilega á alla vegu, og vildu á síðustu stundu stöðva með því að hamast á móti álbræðslunni, en samningurinn um hana var alger forsenda þess, að hægt væri áð fá fé til virkjunar Þjórsár. Páfimi kom tvisvar við sögu Ástæðan, sem þessir skamm- sýnu menn báru fyrir sig, var sú, að erlendir menn reistu ál- verksmiðjuna. Þess vegna töldu þeir, að íslendingar yrðu erlend- um áhrifum allt of háðir með þessu móti. Með þeirri rökfærslu eru höfð alger endaskipti á hlut- unum. Sigurbjörn í Vísi segir í frásögn sinni, að verðfallið eftir 1910 hafi verið kennt páfanum, af því að hann hafi leyft kjötát á föstunni. -Hvort sem þetta er rétt sða ekki, þá voru það er- lendar orsakir, sem þarna voru áð verki, alveg eins og marghátt aðar erlendar orsakir hafa vald- ið verðfallinu nú. Enn er það að nokkru leyti páfinn sem kemur við sögu. Leyfi hans fyrir fisk- áti á föstudögum hefur að fróðra manna sögn verkað til mikillar verðlækkunar á Bandaríkja- markaði. Um það eru ekki Is- lendingar einir til vitnis, heldur telja fiskframleiðendur í Boston sig hafa orðið fyrir stórkostlegu tjóni einmitt af páfans völdum. Auknar fiskveiðar margra þjó'ða, ekki sízt Austur-Evrópuþjóða hafa einnig mikil áhrif. Óhemju smásíldarveiði við Perústrendur hefur orðið til þess að stórlækka fiskimjöl í verði. Miklar síldveið ar Norðmanna á sl. ári urðu til þess að lækka síldarlýsi. Nú vona sumir, að litlar síldveiðar þar verði til hækkunar á lýsis- verðinu. Er óneitanlega hart til þess áð hugsa, ef menn þurfa að byggja vonir sínar á óförum ann arra, enda veit enginn neitt enn um verðlagsþróunina á næstu mánuðum. Jafnvel borgarastyrj- öld í svo fjarlægu landi sem Nígeríu hefur orðið til þess að valda okkur stórkostlegu tjóni, ekki einungis á sl. ári heldur setur hún skreiðarframleiðslu á þessu ári í mikla hættu. Erlend álirif ekki nmflúin Þannig mætti lengi telja. Er- lend áhrif verða þess vegna ekki með nokkru móti umflúin. Spurningin er sú, hvort við vilj- um láta þau ganga yfir okkur án þess að geta nokkru um ráð- ið eða eiga eftir föngum ein- hvern þátt í því, sem gerist. Með inngöngu okkar í EFTA og samningi vi'ð Efnahagsbandalag- ið á meginlandinu gætum við eftir atvikum skapað okkur slíka áðstöðu, og horfið frá því að vera algjörlega á valdi annarra, en fengið möguleika til þess að láta þó eitthvað að okkur kveða. Um álbræðsluna gildir hið sama. I stað þess að vera eingöngu háðir útlendingum og hafa ekkert yfir þeim að segja, höfum við nú gert þá okkur háða með samningum, sem að vísu veita þeim nokkurn rétt en okkur enn meiri — ekki einungis rétt heldur miklu meiri tryggingu en við með nokkru öðru móti hefðum getað öðlazt. Árangurinn af þessari heillaríku stefnu sést nú þegar af því, að á þeim erfiðleikaárum. sem nú ganga yfir okkur, þá skapa þess- ar stórframkvæmdir atvinnu fyr- ir mörg hundruð manna, sem ella hefðu verið atvinnulausir. Hér blasir við dæmi, sem allir mega sjá, um hverjir réttara hafa haft fyrir sér í þeim deilu- málum, sem hæst hefur borfð síðustu ár. Seinagangur í póstsefidingum Þegar talað er um samskipti okkar við aðra þá er rétt að minnast á hvílíkt hneyksli seina- gangur á póstsendingum til lands ins hefur reynzt á þessum vetri. f þeim efnum eru menn raunar ýmsu vanir en aldrei fyrr á síð- ari árum öðru eins. Sannar sagn- ir eru af því að bók, sem póst- lögð hafði verið í New York snemma í desember barst hingað ekki fyrr en um miðjan febrúar. Þetta var þó smáræði við það, sem eftir átti a’ð koma í ljós. Hinn 21. marz bárust tvö bréf og hafði annað verið póst- lagt í Washington hinn 8. des. en hitt í Santa Barbara á vestur- strönd Bandaríkjanna hinn 6. des. Allar áttu þessar sendingar að fara með venjulegum pósti, þ.e. sendast með skipum. Dags daglega fara skip frá austur- strönd Bandaríkjanna til Bret- lands og meginlands Evrópu og vikulega og raunar oftar þaðan og hingað til lands. Trúlegt er, að til séu mörg fleiri dæmi um þvílíkan seinagang. Æskilegt væri að þeir, sem svipaða sögu hafa að segja geri póststjórninni aðvart, svo að hún geti undan- dráttarlaust snúið sér til réttra aðila í því skyni, að slíkt og annað eins endurtaki sig ekki.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.