Morgunblaðið - 31.03.1968, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. MARZ 1968
Myndin er tekin fyrir átta árum, er Sonja var borðdama Har-
alds er hann útskrifaðist úr liðsforingjaskólanum. Mikla at-
hygli vakti í heimsblöðunum er mynd þessi birtist.
- HARALDUR
Sumarnámskeið
í Bandaríkiunum
Framhald af bls. 19
f júní 1959 lauk hann Her-
skólanum og viku síðar vann
hann Eyrarsundsbikarinn, einn
af mörgum sigrum, sem hann hef
ur unnið í siglingum.
Haustið 1960 heimsótti hann
grísku konungsfjölskylduna og
hóf síðan tveggja ára nám í
Oxford. í leyfum sínum heima í
Noregi var hann oft við lax-
veiðar og yfirleitt má segja, að
útivera og íþróttir hafi sett mest
an svip á ævi hans fram að
þessu.
Þegar náminu í Oxford sleppti
tóku við ferðalög. Hann fór í
heimsóknir til fjölmargra landa,
allt frá fslandi til Japan, en
þar var hann fánaberi norska
flokksins á Olympiuleikunum og
varð sérlega vinsæll. Alls staðar
var honum fagnað af hlýju og
áhuga og allsstaðar þótti hann
verðugur fulltrúi lands síns og
væntanlegur þjóðhöfðingi.
Hann hefur alltaf haft mikið
og traust samband við gamla
skólafélaga. Þeir bera honum á-
gætt orð og segja að hann sé
tryggur vinur. Það er góður vitn
t
Útför
Elíasar Dagfinnssonar,
bryta,
fer fram frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 2. apríl kl. 13.30.
Blóm vinsamlega afbeðin,
Áslaug Kristinsdóttir,
Halldóra Elíasdóttir,
Alfreð Elíasson.
t
Þökkum au'ðsýnda samúð við
andlát og jarðarför,
Guðrúnar Bjarnadóttur,
Snorrabraut 42.
Aðstandendur.
t
Hugheilar þakkir fyrir auð-
sýnda samúð og vináttu við
fráfall
Jóns Sverrissonar,
yfirfiskimatsmanns.
Börn og tengdabörn.
isburður, hvort sem verðandi
þjóðhöfðingi á í hlut eða ekki.
NÆSTKOMANDI miðvikudags-
kvöld 3. apríl og föstudagskvöld
5. apríl fara fram í Austurbæj-
armíó kl. 11.15 e.h. hinar ár-
legu skemmtanir á vegum
Karnabæjar tízkuverzlunar unga
unr.ar — Unga kynslóðin 1968
fegurðarsamkeppni og Vettvang
ur Æskunnar.
Á þessum skemmtunum verð-
ur kosin fulltrúi ungu kynslóð-
arinnar fyrir árið 1968 og hljóm-
sveit unga fólksins fyrir sama
ár. Tilgangur þessarar keppni er,
að kjósa ungu kynslóðinni verð-
ugan fulltrúa, eins konar tákn.
Stúlkurnar sex sem taka þátt í
keppninni verða að hafa margt
fleira til síns ágætis en fegurð.
Dómnefnd skipuð eftirtöldu
fólki, hefur úrslit keppninnar
algjörlega á sínu valdi, Sigurður
Hreiðar, ritstjóri, Þorsteinn Magn
ússon kennari, Andrea Oddsteins
dóttir tízkusérfræðingur, Óli
Páll Ijósmyndari og Baldvin Jóns
son framkvæmdastjóri Saltvíkur.
Á skemmtunum þessum, sem
verða eins konar vettvangur
æskunnar, verður margt til
skemmtunar annað en fegurðar
samkeppnin. Eftirtaldar hljóm-
sveitir keppa um titilinn Hljóm
sveit Ungu kynslóðarinnar 1968
— Hljómar — Óðmenn — Flow-
ers Tvær upprennandi söngkon-
ur koma fram, þær María Bald-
ursdóttir og Sigrún Harðardóttir.
Þjóðlagaflokkur skipaður áhuga
EINS og undanfarin sumur verð
ur haldið námskeið fyrir kenn-
ara frá Norðurlöndunum í Lut-
her Collage, Deccrah, Iowa í
Bandaríkjunum. Némskeiðið, sem
sem stendur yfir frá 28. júní til
26. júlí, er ætlað framhaldsskóla
kennurum, og er nokkur ensku-
kunnátta nauðsynleg.
fslenzk-ameríska félagið og
American Scandinsvian Founda-
tion munu veita nokkra styrki
úr Thor Thors sjóðnum til þátt-
töku í námskeiðinu. Umsóknar-
eyðublöð og nánari upplýsingar
fást hjá Islenzk-ameríska félag-
inu, Austurstræti 17, þriðjudaga
og fimmtudaga kl. 5,30-7 e.h..
sími 13536. Umsóknarfrestur er
til 25. apríl.
Framhaldsskólakennarar í
raunvísindagreinum og stærð-
fræði eiga kost á námskeiðum
víðsvegar í Bandaríkjunum á
þessu sumri á vegum NSF (Nati
onal Science Foundation). Nám-
skeið þessi eru mismunandi löng,
allt frá 3-4 vikum upp í heilt
ár, og markmiðið með námskeið
sömu ungu fólki fré Réttarholts-
skólanum. Hér kemur blásari í
staðinn. Ungur hérgreiðslunemi
sér Um hárgreiðslusýningu.
Tízkusýning verður o.fl.
Kristín Waage fulltrúi ungu
kynslóðarinnar frá í fyrra mun
krýna seinna kvöldið.
1. verðlaun eru skólavist í
Englandi í sumar og að mestum
líkindum þátttaka í Teen Age
Universe keppninni næsta sum
ar. 2. verðlaun eru plötuspilari
3. verðlaun eru gullúr. Allar
stúlkurnar verða leystar út með
fatnaði frá Karnabæ. Inngangs-
eyrir á skemmtanirnar er mjög
stillt í hóf enda eru skemmtan-
ir settar upp einungis til að
standa undir kostnaði.
Grensásprestakall:
Ferming
leiðréifing
VEGNA misritunar birtast hér
nöfn þriggja fermingarbarna
séra Felixar Ólafssonar í Há-
teigskirkju í dag kl. 2. Nöfnin
eru: Þóra Ólöf Þorgeirsdóttir,
Grensásvegi 56, Svava Eyjólfs-
dóttir, Brekkugerði 11 og Þórð-
ur Ingvi Guðmundsson, Hvassa-
Ieitj 113.
um þessum er að gefa kennur-
um kost á að bæta sig í sinni
grein bæði með þvi að rifja upp
það, sem áður hefur verið lært,
og til að kynnast nýjungum, sem
orðið hafa í greinum þeirra. Hin
ir ýmsu háskólar, sem halda nám
skeiðin, velja þátttakendur eft-
ir þeim umsóknum, sem berast
NSF. Völ er á styrkjum frá NSF
til námsdvalarinnar vestra.
Umsóknareyðublöð, bæklingar
og upplýsingar fást hjá íslenzk-
ameríska félaginu, Austurstræti
17 og hjá Runólfi Þórarinssym,
Fræðslumálaskrifstofunni.
(Frá Íslenzk-ameríska félaginu)
- UTAN UR HEIMI
Framhald af bls. 16
hvatningarorðum hans hefur
ekki verið sinnt. Blöðin hættu
herferðinni gegn zíonistum,
en aðeins í nokkra daga. Eitt
blað, sem Gomulka hafði
gagnrýnt fyrir „Gyðingahat-
ur“, birti grein, þar sem
sagði að fjöldi manns hefði
sent símskeyti og bréf og
hringt í blaðið til þess að
lýsa yfir stuðningi við það.
Síðan tók hvert blaðið á fæt-
ur öðru aftur til við að ó-
frægja zíonista. Nú er svo
komið, að herferðin er alveg
eins ofsafengin og áður en
Gomulka hélt ræðu sína.
Mál þetta sýnir, að mikil ó
vissa ríkir í pólskum stjórn-
málum. Um leið og blöðin
virtu orð Gomulka að vettugi
barst honum fjöldi yfirlýs-
inga um stuðning við þá hóf
sömu stefnu, sem hann hefur
hvatt til. Jafnframt þessu
héldu stúdentar áfram mót-
mælaaðgerðum sínum, en
Gomulka vann nokkurn sigur
þegar stúdentar við verkfræð-
íngaháskólann í Varsjá
'Deygðu sig fyrir úrslitakost-
hro stjórnarinnar um síðustu
helgi og hættu mótmælaset
um á skólalóðinni. En stúd-
entarnir eru ekki af baki
dottnir, og háskólanum í Var
sjá hefur verið lokað vegna
mótmælaaðgerða þeirra. —
Enn er því allt á huldu um
hvort Gomulka tekst að hafa
hemil á ástandinu, lægja ó-
ánægju stúdenta og standa
gegn kröfum hinna herskáu í
flokknum.
Verkfall
í Færeyjum
FRÉTTIR frá Þórshöfn í Fær-
eyjum herma, að verkföllin hér
geti haft þau áhrif, að einnig
verði lýst yfir verkfalli í Fær-
eyjum. Verkfallið mun þó aðeins
ná til Þórshafnar ef af því verð-
ur.
Verkamannafélagið í Þórs-
höfn, sem er ekki aðili að Al-
þýðusambandi Færeyja, hefur
sagt upp samningum við vinnu-
veitendur frá 1. maí og krafizt
launahækkana. Samningar ann-
arra verkalýðsfélaga gilda til 1.
maí á næsta ári.
Ekki er útilokað að samningar
takist fyrir 1. maí, og ef viðræð-
ur bera engan árangur skerst
sáttasemjari í leikinn .
Skip óskast til leigu
í nokkrar vikur við rækjuleit. Hæfileg stærð
50—100 smólestir. Þarf að geta gengið hægast
1.5 sjómílur á klst.
HAFRANNSÓKNARSTOFNUNIN Sími 20240..
1.APLÍL.
Hrúturinn 21. marz — 19. apríl.
Þú átt í innri baráttu, en allra hluta vegna ættirðu ekki að
láta að'-a sjá, hvernig þér er innanbrjósts. Forðastu eyðslu í dag.
Nautið ?0. apríl — 20. maí.
Ef þú ert stjórnmálamaður eða áhugamaður um stjórnmál
skyldi’-ðu vera vel á verði i dag, og láta ekki telja þér hughvarf
í máli, rem þú berð mjög fyrir brjósti.
Tvíburr.rnir 21. maí — 20. júní.
Skoðanir þínar og hugmydöir fá ekki allar mikið fylgi í dag,
þú sk.út bíða átekta og vera þolinmóður. Þá muntu uppskera
laun ei fiðis þíns.
Krabbmn 21. júní — 22. júlí.
Gáf ,'legar samræður við jafningja þína gætu orðið i senn fróð-
legar og árangursríkar. Trúðu þó ekki öllu, sem þér er sagt.
Ljómð 23. júlí — 22. ágúst.
Trúlegt að þér muni áskotnast nokkuð fé i dag og skaltu fara
vel n cS það og skipaleggja nákvæmlega, hvernig skynsamlegast
væri að verja því.
Jómfrúin 23. ágúst - 22. september.
Þú ættir að sinna einkamálum þínum af meiri áhuga en þú
hefur gert upp á síðkastið. í kvöld ættirðu að lesa góða bók eða
hlusta á tónlist.
Vogiti 2S. september — 22. október.
Gættu að heilsufarí þínu og íarðu til læknis jafnvel þótt þú
teljir þ"ð óþarft. Þú Oefur ekki farið nógu vel með þig að undan
fömu.
Drekinn 23 október — 21. nóvember.
Gakictu úr skugga um, að fyrirætlanir þínar séu ljósar og
ákveðuar, svo að menn viti vilja þinn í þeim atriðum, sem máli
skipta
Bogmaðurinn 22. nóvember — 21. desember.
Þú færð ýmsar frjóar hugmyndir í dag, en hætt er við að þær
reynist ekki allar framkvæmanlegar. Taktu það þó ekki um of
nærri bér.
Steingeitin 22. desember — 19. janúar.
Þú gttur orðið fyrir hinum óþægilegustu töfum í dag, einkum
ef þú trt mikið á farcldsfæti. Vertu heima ef mögulegt er. Skrif-
aðu biéf í kvöld.
Vatnsherinn 20. janúar — 18. febrúar.
Þú ættir ekki að gera neina samninga eða skuldbindingar í
dag. Frestaðu ekki að greiða skuld sem þú hefur lofað að ljúka
í dag.
Fiskarnir 19. febrúar — 20. marz.
Hæ'.t við að þú lendir í leiðinda þrasi I dag og sennilega við
fól'k, sem þér þykir vænt um. Haltu skoðunum þínum ekki of
ákveöið fram: þær eru býsna heimskulegar sumar.
Þrjár af stúlkunum, sem tóku þátt í keppninni „Unga kynslóð-
in ’68“.
Unga kynslóöin '68
—Vettvangur æskunnar