Breiðholtsblaðið - 01.03.2023, Blaðsíða 2

Breiðholtsblaðið - 01.03.2023, Blaðsíða 2
2 Breiðholtsblaðið Útgefandi: Borgarblöð ehf. Eiðistorgi 13-15 • 172 Seltjarnarnes • Pósthólf 171 Rit stjóri: Þórður Ingimarsson • Sími 893 5904 Netfang: thordingimars@gmail.com Auglýsingasími: 511 1188 • 552 1953 • 895 8298 Heimasíða: borgarblod.is Net fang: borgarblod@simnet.is Framkvæmda- og aug lýs inga stjóri: Krist ján Jó hanns son Um brot: Valur Kristjánsson Prentun: Landsprent ehf. Dreif ing: Póstdreifing ehf. 3. tbl. 30. árgangur Breiðholtsblaðið er dreift frítt í öll hús í Breiðholti MARS 2023 Löngum urðu nemendur í framhaldsskólum að læra þýsku. Franska og jafnvel latína voru ekki langt undan í gamla framhaldsskólakerfinu. Áhersla var lögð á tungumálanám sem hluta klassískrar menntunnar. Tímar hafa breyst. Nýjar námsgreinar hafa komið til. Fjölbreytni hefur aukist. Mun fleiri sækja framhaldsskóla en áður. Framhaldsskólinn er orðinn hluti nauðsynlegrar grunnmenntunar. Ásíðari árum hefur Enska orðið annað tungumál Íslendinga. Alheimsmál sem víðast er hægt að bjarga sér með. Danska sem fólk var skikkað til að læra er að gefa eftir. Spænska hefur sótt á enda sækja margir í sænskumælandi heim. Nýtt tungumál og okkur nokkuð framandi er farið að sækja á. Er það Pólska. Fjöldi Pólverja hefur komið og sest að hér á landi. Margir Pólverjar hafa verið ötulir að læra Íslensku Nú fjölgar fólki frá Úkraínu hér á landi. Úkraínubúar eiga margt sameiginlegt með okkur ekkert síður en Pólverjar. Tungumálin eru skyld. En er kominn sá tími hvort réttlætanlegt og jafnvel nauð­ synlegt er að gefa ungmennum kost á að læra að minnsta kosti undirstöðu í pólsku. Pólska Hafðu lyfin tilbúin þegar þú sækir eða fáðu lyfin send heim Pantaðu á appotek.is eða í síma 568 0990 Garðs Apótek - í yfir 60 ár Sogavegi við Réttarholtsveg Opið 9-18 virka daga. Starfsfólk Miðbergs til Kaupmannahafnar Miðbergshópurinn sem fór til Kaupmannahafnar. Frístundamiðstöðin Miðberg skellti sér til Kaupmannahafnar í frábæra náms- og kynnisferð 23. til 24. febrúar. Stór hluti af stjórnendum og starfsfólki í fullu starfi í félagsmiðstöðvum og frístundaheimilum í Breiðholti fóru í ferðina en allt starfsfólkið fékk styrk frá sínu stéttarfélagi fyrir ferðinni. Fimmtudagurinn var ferðadagur og hópeflisdagur en hópurinn skellti sér meðal annars á skemmtilegan bocciastað og fóru síðan út að borða saman um kvöldið. Á föstudeginum skipti hópurinn sér upp og fór hluti af hópnum fyrir hádegi í heimsókn í mjög skemmtilegt og framsækið frístundaheimili, á sama tíma fór hinn helmingurinn að heimsækja Amagerplanet. Amagerplanet er mjög áhugavert verkefni sem er unnið meðal annars þvert á skóla, félagsþjónustu, félagsmiðstöðvar á Amager. Markmið verkefnisins er meðal annars að útbúa verkefni í þágu hverfisins og fá aðila úr ólíkum áttum í samstarf. Eftir hádegi fór hópurinn síðan allur saman í heimsókn í glæsilega félagsmiðstöð sem bauð uppá starf fyrir börn og unglinga á aldrinum 9 til 15 ára. Það var gaman að geta speglað sig við fagfólk sem er að vinna með sama markhóp og við sjálf og fá hugmyndir og innblástur inní starfið okkar. Hópurinn endaði síðan heimsóknardaginn á því að kíkja í höfuðstöðvar LGBT en þau kynntu meðal annars fyrir okkur félagsmiðstöðvarnar sem þau hafa stofnað fyrir hinsegin börn og unglinga víðs vegar um Danmörku. Það var hollt fyrir okkur að fá innsýn í þeirra starf og heyra hvernig þau vinna með og nálgast sína markhópa. Ferðin endaði síðan formlega á sameiginlegum kvöldverði fyrir allan hópinn þar sem heimsóknir dagsins voru ígrundaðar. Ferðin var í alla staði mjög vel heppnuð og það er ótrúlega mikilvægt fyrir fagfólk á vettvangi að fá tækifæri til að fara í svona ferðir sem ekki bara gefa fólki hugmyndir og næringu í starfið en líka hjálpa til við að efla starfsandann enn frekar. Pósthúsinu í Mjódd verður lokað Pósturinn mun loka pósthúsinu í Mjódd innan tíðar. Fleiri póst- húsum verður lokað, flestum á landsbyggðinni. Í tilkynningu frá póstinum segir að í staðinn fyrir lokun pósthúsanna verði lögð meiri áherslu á annars konar þjónustu og er sérstaklega vísað til póstboxa þar sem einnig verði hægt að póstleggja pakka. Í tilkynningunni kemur fram að stafræn umbreyting kalli á nýjar nálgarnir og Pósturinn verði að bregðast við því. Um leið beri póstinum beinlínis skylda til að leita hagkvæmra leiða í rekstrinum og því eru breytingar sem þessar óhjákvæmi legar, er haft eftir Þórhi ldi Ó löfu Helgadóttur, forstjóra Póstsins, í tilkynningunni. Hún segir að dregið hafi úr eftirspurn eftir afgreiðsluþjónustu pósthúsa. Þar af leiðandi þurfi að leggja upp úr að þróa annars konar lausnir og þróa þjónustuna í takt við breyttar þarfir og kröfur neytenda. Hún bendir á að flest póstboxin séu aðgengileg allan sólarhringinn og einföld í notkun. Pósthúsið í Mjódd. Netverslun: systrasamlagid.is

x

Breiðholtsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Breiðholtsblaðið
https://timarit.is/publication/1113

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.