Breiðholtsblaðið - 01.03.2023, Side 4

Breiðholtsblaðið - 01.03.2023, Side 4
Heiða Björg Hilmisdóttir borgarfulltrúi, formaður velferðarráðs Reykjavíkur og formaður Sambands íslenska sveitarfélaga spjallar við Breiðholtsblaðið að þessu sinni. Heiða Björg er fædd og uppalin á Akureyri með ættir að Skipalóni í Hörgárdal þar sem hún dvaldi oft á sumrum sem barn og unglingur og fékkst við hefðbundin sveitastörf. Heiða flutti eftir framhaldsskólanám við Verkmenntaskóla Akureyrar til Reykjavíkur þar sem hún hefur búið síðan að nokkrum árum undanskildum þegar hún bjó og stundaði nám í Gautaborg í Svíþjóð. Heiða Björg hefur verið virk í félagsmál um lengri tíma og einkum látið borgarþróun og velferðarmál til sín taka á vegum Reykjavíkurborgar. Talið barst því fyrst að þeim málum. Heiða segir tvær ástæðu einkum vera fyrir því að hún laðaðist að stjórnmálum. Velferðarmálin hafi verið önnur þeirra. Hún segir að við eigum að líta á okkur sem samfélag sem á að taka sameiginlega ábyrgð á okkur öllum. Einstaklingshyggja sé áberandi í samfélaginu en nauðsynlegt að fólk finni að það sé ekki eitt á báti einkum þegar eitthvað bjáti á. Heiða er búin að vera formaður velferðarráðs í næstum fimm ár. Hún segir að búið sé að gera margt á þeim tíma sem hún er ánægð með en stundum gangi málin ekki nægilega hratt fyrir sig og viðhorfin mættu vera jákvæðari. Kovid færði okkur ný verkefni Finnst Heiðu velferðarmálin mæða meira á nú en áður. Hún kveður svo vera. “Ég held að kovid tíminn hafi fært okkur mörg verkefni á sviði velferðarmála sem við eigum jafnvel eftir að átta okkur betur á. Fleira fólk upplifir einhvers konar einmanaleika og meiri andlega vanlíðan en áður. Svo er verðbólga í þjóðfélaginu. Allt verðlag er að hækka. Fólki er að fjölga sem á erfitt með að ná endum saman. Fleiri verða heimilislausir.” Heiða segir að ásókn í velferðarþjónustu Reykjavíkurborgar hafi aukist um allt að 20% á milli áranna 2021 og 2022. “Við verðum að líta á það bæði jákvæðum og neikvæðum augum. Gott er ef fólk þarf á ákveðinni þjónustu að halda að það leyti til borgarinnar. Mér finnst mikilvægt að borgin þessi sameiginlegi sjóður, þessi sameiginlega eign okkar standi með fólki þegar eitthvað bjátar á.” Að leggja áherslu á samkennd og virðingu Talið berst að því sem stundum er rætt um hvort nágranna­ sveitarfélögin sæki á Reykjavíkur­ borg þegar um þjónustu við fólk sem á í erfiðleikum er að ræða. Hún segir það einkum áberandi þegar um heimilislausa er að ræða. Reykja­ víkurborg sé eina sveitar félagið sem starfræki neyðar húsnæði fyrir heimilislaust fólk og sé með ákveðna stefnu í þeim málum. Hún segir að fyrir fjórum árum hafi ný aðgerðaáætlun verið sett af stað sem hafi breytt umræðunni um þessi mál á Íslandi. Reynt sé að veita fólki sem hefur ánetjast vímuefnum þjónustu og leitast við að draga úr skaða sem það veldur einstaklingnum, fjölskyldum og samfélaginu fremur en að reyna að refsa fólki til þess að hætta að nota þessi efni. “Velferðarstefnan gengur út á að leggja áherslu á samkennd og virðingu fyrir fólki. Þetta er sett fram sem eins konar yfirstefna fyrir aðgerðir og við leggjum áherslu á mikið samráð. Við vonum að það geti skapað traust því mikilvægt er að borgarbúar finni að þeir geti leitað til borgarinnar þegar þeir þurfa á að halda.” Nýtt í samfélaginu að ræða þessa hluti Talið berst að neyðarskýlunum og þeir umræðum sem skapast hafa um þau. Fólk virðist ekki vilja vita af bústöðum fyrir fólk í vanda í nágrenni sínu. Er þetta vanþekking fólks eða bara gamall hugsunarháttur sem erfitt er að útrýma. Heiða segir þetta nýtt í samfélaginu að rætt sé með þessum hætti um fólk sem er heimilislaust og með miklar þjónustuþarfar. Vanþekkingin sé einnig fyrir hendi. Fólk hafi ekki vanist að 4 Breiðholtsblaðið MARS 2023 V i ð t a l i ð Eigum að líta á okkur sem sam- félag sem tekur ábyrgð á öllum - segir Heiða Björg Hilmisdóttir borgarfulltrúi, formaður Velferðarráðs Reykjavíkur Heiða Björg Hilmisdóttir. Ég er alin upp við það viðhorf að enginn sé merkilegri en annar og allir jafnir. Þetta var mjög sterkt í mínu uppeldi og hefur ekkert breyst. Ég el börnin mín upp með þessu sjónarmiði.

x

Breiðholtsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðholtsblaðið
https://timarit.is/publication/1113

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.