Breiðholtsblaðið - 01.03.2023, Side 5

Breiðholtsblaðið - 01.03.2023, Side 5
líta á þessi mál sem eitthvað sem hægt sé að leysa. “Við í Reykjavík höfum verið að fjárfesta í þekkingu á þessum hóp og aðstæðum fólks sem býr við þessar erfiðu aðstæður. Almenningur og ríkisvaldið er langt á eftir okkur.” Heiða bendir á að sterkir hagsmunaaðilar styðji við þessi mál. Hún nefnir Rauða krossinn og Rótina sem dæmi og segir ákveðna fræðimenn farna að grúska í þessu sem sé mjög jákvætt. “Fyrir okkur er þetta nýtt viðfangsefni miðað við borgir erlendis sem við berum okkur saman við. Við horfðum lengi fram hjá þessu.” Heiða bendir á að gripið hafi verið til neyðarskýlanna í bráðri neyð þar sem engin þjónusta hafi verið fyrir hendi. Þau séu aðeins hugsuð til bráðabirgða og nú sé unnið að því að finna framtíðarlausn þannig að engin þurfi að notfæra sér slíkt húsnæði. “Við viljum ekki að fólk þurfi að nýta þessa þjónusta vegna þess að hún dregur á engan hátt úr þeim skaða sem neysla vímuefna hefur leitt af sér fyrir fólk. Neyðarskýlin eru aðeins skammtíma úrræði.” Eitt áfall getur leitt til heimilisleysis Heiða segir nauðsynlegt að hafa í huga að munurinn á fólki og því fólki sem er án heimilis þurfti ekki að vera meiri en eitt áfall sem fólk hefur ekki geta höndlað og leiðst út í það líf sem það fór að lifa. Ástand sem fólk er að takast á við. Ef til vill vegna einhvers sjúkdóms sem aðrir hafa verið svo heppnir að fá ekki. Oft þurfi ekki mikið til að og því miður geti hent ólíklegasta fólk að verða heimilislaust. Heiða segir að lengi hafa ekki verið samþykkt í samfélaginu að fólk hafi tök á neyslu sinni. Vín sé samfélagsleg neysluvara svo lengi sem fólk hefur stjórn á neyslu þess. Að vínið taki ekki stjórnina yfir og fari að ráða för. Ef fólk missti tök á neyslunni mátti bara að snúa við því baki. “Þetta er hugsunarháttur fyrri tíðar sem er á undanhaldi. Það getur líka verið erfitt fyrir fólk sem vill og er að reyna að taka á sínum málum að vera ekki í tengslum við þá sem því þykir vænt um. Við fjölskyldur sínar eða vini. Kannski búið að brenna allar brýr að baki sér. Þetta getur verið hluti vandans. Því skiptir máli að standa með fólki í svona aðstæðum. Ég hef hitt mæður úr öðrum sveitarfélögum sem hafa sagt mér hversu erfitt sé að að horfa á eftir barninu sínu á götuna í Reykjavík og þurfa síðan að koma úr öðru sveitarfélagi til þess að leita eftir aðstoð.” Betra að fólk geti fengið þjónustu í nærumhverfi sínu Heiða segir mismunandi þjónustu í boði eftir sveitarfélögum og engin launung á því að fólk með vanda af þessu tagi leitar inn í Reykjavík. Hún segir að betra væri að þessi málaflokkur væri meira lands verkandi þannig að fólk geti fengið meiri þjónustu í sínu nærumhverfi og geti verið nálægt þeim sem því þykir vænt um og verið í umhverfi sem það þekkir. Einnig geti verið gott að dreifa fólki sem á í erfiðum félagslegum vanda í stað þess að hópa því of mikið saman eins og hefur verið gert. Nauðsynlegt sé fyrir fólk og ekkert síður fólk sem er í viðkvæmri stöðu að hitta og umgangast breytilega hópa. Eigum ekki að flokka fólk “Ég hef verið að leggja áherslu á í mínu starfi að velferðarmálum að við gerum minna að því að flokka fólk. Við verðum að vera umburðarlyndari gagnvart því að við erum allskonar og alls staðar í samfélaginu. Eldra fólk á ekki endilega bara að hitta annað eldra fólk. Eins er með yngra fólkið. Fólk þarf að hafa tækifæri til að blandast saman. Hluti af þessu er að við höfum verið að opna húsnæði sem einkum hefur verið fyrir félagsstarf eldri borgara fyrir yngra fólki. Markmiðið er að fólk nái að blandast betur saman og geti miðlað hvort öðru af áhugamálum og reynslu. Ég veit að yngra fólk sem sumt er ekki á vinnumarkaði meðal annars af því að það er með ung börn er farið að notfæra sér þessa aðstöðu. Ég get nefnt Aflagrandann sem dæmi, einnig Gerðuberg í Breiðholti og Vitatorg við Vitastíg. Þar er komin leikaðstaða fyrir börn. Þar hittist fólk af mismunandi kynslóðum, kynnist, fordómar minnka og allt verður skemmtilegra.” Heiða rifjar upp árin sem hún var í fæðingarorlofi. Kveðst þá hafa sótt Sólheimabókasafnið reglulega, Þar hafi fólk af flestum kynslóðum komið. “Þarna sá ég hvað fólk hefur gott af því að hittast yfir kaffibolla og tala saman á milli kynslóða.” Stendur upp á okkur að tala meira saman Karp í borgarstjórninni ber á góma. Telur Heiða of miklum tíma eytt í að karpa um hluti í stað þess að leita að lausnum. Hún hugsar sig um. “Reykjavík er stórkostleg borg. Borgarbúar eru eðlilega allskonar fólk og kjósa sér fulltrúa með mismunandi viðhorf. Ég er stolt af að starfa á þessum vettvangi. Mér finnst hins vegar standa upp á okkur og tala meira saman og reyna að ræða okkur niður á niðurstöður. Það verða aldrei alli sáttir með allt. En við mættum reyna meira að stuðla að sátt og samstöðu. Ég er ekki í stjórnmálum bara til þess að vera á móti einhverjum. Heldur til þess að koma ákveðnum viðhorfum á framfæri. Ég er alin upp við það viðhorf að enginn sé merkilegri en annar og allir jafnir. Þetta var mjög sterkt í mínu uppeldi og hefur ekkert breyst. Ég el börnin mín upp með þessu sjónarmiði,” segir Heiða Björg Hilmisdóttir borgarfulltrúi. 5BreiðholtsblaðiðMARS 2023 Neyðarskýlin eru aðeins skammtíma úrræði. Fundur um velferðarmál sem haldin var í Gerðubergi fyrir skömmu. Heiða Björg Hilmisdóttir stýrði fundi. Fella- og Hólakirkja fagnar 35 ára vígsluafmæli um þessar mundir, en kirkjan var vígð á Pálmasunnudegi árið 1988. Pálmasunnudagur – 2. apríl kl. 20 Kór Fella-og Hólakirkju flytur Gloríu eftir Vivaldi undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur, organista. Kristín Ragnhildur Sigurðardóttir, Inga Jónína Backman, Xu Wen, Laufey Egilsdóttir og Garðar Eggertsson syngja einsöng. Matthías Stefánsson leikur á fiðlu, Jón Hafsteinn Guðmundsson á trompet og Guðný Einarsdóttir á píanó. Að tónleikunum loknum verður boðið upp á léttar veitingar í safnaðarheimili kirkjunnar. Enginn aðgangseyrir – allir velkomnir. Föstudagurinn langi – 7. apríl kl. 14 Stabat Mater Dolorosa (María stóð við krossinn) Kristín Ragnhildur Sigurðardóttir og Svava Kristín Ingólfsdóttir flytja verkið ásamt félögum úr kirkjukór Fella-og Hólakirkju. Arnhildur Valgarðsdóttir leikur á píanó og Matthías Stefánsson á fiðlu. Sr. Jón Ómar Gunnarsson leiðir stundina. Enginn aðgangseyrir – allir velkomnir. Fella- og Hólakirkja

x

Breiðholtsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðholtsblaðið
https://timarit.is/publication/1113

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.