Breiðholtsblaðið - 01.03.2023, Side 10
10 Breiðholtsblaðið MARS 2023
Netverslun:
systrasamlagid.is
Pálmasunnu dag ur er stór
dagur í sögu Fella og Hólakirkju.
Fyrsta skóflustungan að kirkjunni
var tekin á pálmasunnudag 1982
fyrir fjórum áratugum. Kirkjan
var byggð í áföngum en var
formlega vígð á pálmasunnudag
1988. Í fyrstu var gert ráð fyrir
tveimur kirkju sóknum í Efra-
Breiðholti. Fella sókn yrði önnur
þeirra en hin yrði í Hóla hverfinu.
Einnig voru áform um að byggja
tvær kirkjur. Eina í Fella hverfi en
aðra fyrir Hóla hverfið. Framsýnir
menn með sr. Hrein Hjartarson
og Árna Gunnarsson í farar broddi
komu því til leiðar að sameina
sóknirnar í einni kirkju sem var
einsdæmi hér á landi að tvær
stórar sóknir sameinuðust um
eina kirkju. Sóknin fékk nafnið
Fella- og Hólasókn taldi í fyrstu
um 10.000 manns.
Þessar tveggja viðburða verður
minnst á veglegan hátt á Pálma
s unnudag sem er 2. apríl næst
komandi. Efnt verður til viðamikilla
tónleika en kór kirkjunnar hefur
oft flutt stór og vandmeðfarin verk
efni. Má þar nefna Stabat Mater
sem verið hefur sérstakt verkefni
kórsins á föstudaginn langa og borið
helgihald þess dags uppi. Á Pálma
sunnudagskvöld klukkan átta mun
kórinn ráðast í það stóra verk efni að
flytja Gloriu Vivaldis. Antonio Vivaldi
fæddist í Feneyjum 1678. Hann
var einn frægasti tónlistar maður
barokktímabilsins. Hann lærði á fiðlu
hjá föður sínum, sem var fiðluleikari
í Markúsarkirkjunni í Feneyjum.
Hann lærði til prests og tók vígslu
en gat ekki sungið við messur vegna
veikinda. Vivaldi gerðist tónlistar
kennari við munaðarleysingjahæli
stúlkna. Munaðarleysingjahælið
naut mikil lar virðingar fyr ir
metnaðarfulla söng og hljóðfæra
kennslu. Sem tónlistarkennari reis
Vivaldi upp sem áhrifamesti og
afkastamesti tónlistarmaður síns
tíma. Þar kom hann á fót telpna
hljómsveit og telpnakór og lét þær
syngja lög, sviðsetja óperur og dansa
listdans. Vivaldi samdi um 40 óperur
en aðeins hafa varðveist hlutar úr
átján þeirra. Nú á síðari árum hefur
verið unnið að því að endurreisa verk
hans og þá helst konserta hans og
óperur. Nú tekur kór Fella og Hóla
kirkju þátt í þeirri upp vakningu með
því að flytja Gloriu. Um verður að
ræða menningarveislu í Breiðholti.
Gloria er langstærsta verk sem
kórinn hefur ráðist í að flytja. Verkið
er kaflaskipti og létt. ”Það verður
engin friður í kirkjunni,” segir
Arnhildur Valgarðsdóttir kórstjóri
sem miklar ekki fyrir sér að takast
á við þessa áskorun þegar hverfis
kirkjan fagnar stórum stundum í
sögu sinni.
En aftur að sögunni. Séra Hreinn
Hjartarson var fyrsti prestur hins
nýja Fellasafnaðar. Starfsaðstaðan
var að vonum frumstæð en með
sameinuðum krafti og dugnaði var
hafist handa að byggja upp starfs
aðstöðu og skipuleggja safnaðar
starfið. Fyrst var messað í Fellaskóla
við fremur erfiðar aðstæður en
hlýhugur skólastjórnenda og
velvilji þeirra auðvelduðu það starf.
Síðar var helgihaldinu fundinn
staður í Gerðubergi. Vorið 1987 var
form lega stofnað nýtt prestakall og
söfnuður, Hólabrekkusókn. Þá um
haustið var kosinn fyrsti sóknar
prestur hinnar nýju sóknar og hlaut
sr. Guðmundur Karl Ágústsson
kosningu sem lét af störfum við
Fella og Hólakirkju á liðnu ári.
Ein kirkja
Þegar ákveðið var að byggja eina
kirkju fyrir bæði hverfin var hafist
handa um undirbúning byggingar
innar. Að lokinni samkeppni um
teikningu kirkjunnar var ákveðið
að kaupa tillögu arkitektanna
Ingimund ar Sveinssonar og Gylfi
Guðjóns sonar. Jón Hannesson
bygginga meistar i var kosinn
formaður bygginganefndar og
Haraldur Sumarliðason var ráðinn
bygginga meistari. Kirkjan tekur um
350 manns í sæti.
Mikið fjölmenni
á vígsludegi
En aftur að vígsludeginum.
Mikið fjölmenni var við athöfnina
og voru meðal gesta forseti Íslands,
frú Vigdís Finnbogadóttir og
kirkjumálaráð herra, Jón Sigurðsson.
Biskup Íslands, herra Pétur Sigur
geirsson vígði kirkjuna. Að vígslu
athöfninni lokinni fór fram fyrsta
messu athöfn í hinni nýju kirkju
þar sem biskup prédikaði biskup í
messunni. Við athöfnina þjónuðu
einnig sóknarprestarnir, sr. Hreinn
Hjartarson og sr. Guðmundur
Karl Ágústsson, djákni kirkjun
nar Ragnheiður Sverrisdóttir, sr.
Ólafur Skúlason vígslubiskup og
sr. Valgeir Ástráðsson.
Að aflokinni vígsluathöfn fór fram
fyrsta messa í hinni nývígðu kirkju.
Þess má geta í lokin að eftir
stórtónleika kórsins verðir boðið til
veislu þar sem krásir verða í boði.
Menningarveisla á
Pálmasunnudagskvöld
Fella- og Hólakirkja.
Judit sigraði
stóru upplestarar
keppni Breiðholts
Judith Stefnisdóttir sigraði Stóru upplestrarkeppni Breiðholts
sem haldin var í Fella og Hólakirkju 15. mars. Auk Judithar keppti
Eva Lind en varamaður var Katrín Ásta, voru þær allar skólanum
sínum til sóma.
Keppnin skiptist í tvo hluta, ræktunarhluta og keppnishluta.
Ræktunarhlutinn er sá hluti upplestrarkeppninnar sem mestu máli
skiptir. Hann miðast við tímabilið frá degi íslenskrar tungu fram
í lok febrúar. Á þessu tímabili er lögð sérstök rækt við vandaðan
upplestur og framburð í hverjum bekk. Lögð hefur verið áhersla á að
íslensku máli væri jafnan nokkur sómi sýndur við upphaf keppninnar
í 7. bekk, og þá gjarnan fengnir verðlaunahafar frá fyrra ári til að lesa
upp. Þær vikur í skólunum, sem helgaðar eru vönduðum upplestri,
eru alfarið í höndum kennara.
Hátíðarhlutinn er það sem kalla mætti hina eiginlegu „keppni“.
Hann er í tvennu lagi. Annars vegar er upplestrarhátíð í hverjum
skóla í lok febrúar þar sem tveir til þrír nemendur eru valdir til
áframhaldandi þátttöku í keppninni fyrir hönd skólans. Hins
vegar er lokahátíð í héraði, sem haldin er í góðum samkomusal í
byggðarlaginu í mars. Þar koma saman fulltrúar skólanna í héraðinu,
einn, tveir eða þrír úr hverjum skóla, og lesa ljóð og laust mál sem
þeir hafa undirbúið vandlega.
Hafa ber í huga að „keppnin“ er í raun aðeins formsatriði, nokkurs
konar staðfesting á þeim árangri sem náðst hefur í skólastarfinu, og
því miklu meir í ætt við uppskeruhátíð. Ekki skiptir máli hver sigrar,
heldur það að tekist hafi að virkja nemendur til að vanda upplestur
sinn um veturinn.
Judith Stefnisdóttir, Eva Lind og Katrín Ásta.
Stór dagur í sögu Fella- og Hólakirkju
Prestar Fella- og Hólakirkju. Pétur Ragnhildarson og Jón Ómar
Gunnarsson fyrir framan kirkjuna.
Mynd: Jóhanna Elísa Skúladóttir.
Þríeykið hefur staðið fyrir tónlistarveislum í Fella- og Hólakirkju. Þær
eru Arnhildur Valgarðsdóttir píanóleikari, organisti og kórstjóri og
söngkonurnar Kristín Ragnhildur Sigurðardóttir og Svava Ingólfsdóttir.
Þær hafa flutt verkið Stabat Mater Dolorosa á föstudaginn langa í
nokkur skipti. Stabat Mater Dolorosa er latneskt trúarljóð og fjallar um
tilfinningar Maríu móður Jesú þegar hún situr við fót krossins eftir að
sonur hennar var krossfestur. Þær muni flytja verkið á föstudaginn langa
7. apríl nk.
veidikortid.is
Nýtt veiðitímabil
hefst 1. apríl!
00000
Óbreytt
verð þrjú
ár í röð
Nánari upplýsingar á
Ertu búin/n
að kaupa
Veiðikortið?