Breiðholtsblaðið - 01.03.2023, Page 14
14 Breiðholtsblaðið MARS 2023
Okkur var lengi búið að langa að starta
einhverri starfsemi líkt og Öppen förskola
í Svíþjóð en þar í landi er fjölskyldu-og
barnamenningu gert hátt undir höfði.
Hugmyndafræðin er að bjóða foreldrum og
forráðamönnum með börn að koma og eiga
notalega stund í leik á fjölskylduvænum
stað, hitta aðra foreldra og fá fræðslu frá
fagaðilum, t.d. málörvun og skyndihjálp
ungra barna. Markhópurinn eru börn núll
til þriggha ára ásamt foreldrum en eldri
börn eru að sjálfsögðu velkomin.
Við sem störfum í Opna leikskólanum
Memmm Play erum Helga Hreiðarsdóttir
leikskólakennari, Kristín Stefánsdóttir
iðjuþjálfi og María Ösp Ómarsdóttir kennari.
Við höfum allar brennandi áhuga á fjölskyldu-
og barnamenningu og nýttum okkur þann
glugga sem opnaðist fyrir tveimur árum á
tímum Covid þegar Dalur farfuglaheimili
og fjölskyldukaffihús í Laugardal opnaði dyr
sínar fyrir okkur og leyfði okkur að prófa okkur
áfram og þróa starfsemi Memmm Play.
Þegar landið opnaðist aftur eftir covid fylltist
Dalur af ferðamönnum og vorum við svo
heppin að Fjölskyldumiðstöðin í Gerðubergi
bauð okkur að koma og vera með starfsemi
okkar þar. Covid var ekki alveg lokið en við
héldum ótrauð áfram og ef smittölur urðu
ískyggilega háar tókum við hlé þar til smittölur
lækkuðu. Við fórum varlega í sakirnar. Oft var
talað um covidbörnin sem höfðu varla hitt
annað fólk en sitt nánasta. Þannig að þarna
var tækifæri fyrir þau og forráðamenn til þess
að byrja í rólegheitum að kíkja út fyrir heimilið
og kanna umheiminn í vernduðu umhverfi.
Þroskandi leikföng og bækur
Okkur sem störfum í Opna leikskóla
Memmm Play er umhugað að umhverfið
sé bjóðandi, ýti undir þroska og sé í leiðinni
fallegt. Við bjóðum upp á þroskandi leikföng,
bækur og hvetjum þannig til lesturs einnig er
mikilvægt að rými og leikföng sé hvetjandi og
ýti undir hreyfiþroska og forvitni.
Eftir að við byrjuðum í Gerðubergi ákváðum
við að byrja með söngstundir líkt og eru í
Öppen förskola í Svíþjóð. Söngstundirnar
gera mikla lukku og reynum við að sameina
sönginn og hreyfingu, með því að syngja
lög með þekktum hreyfingum, líkt og höfuð
herðar hné og tær, Kalli litli könguló og fleiri
góð lög. Það er sérstaklega gaman að fylgjast
með krökkunum eflast í söngnum og læra
hreyfingarnar sem eiga við hvert lag. Svo er
líka bara gaman að dilla sér í takt við lagið.
Alltaf heitt á könunni
Það má ekki gleyma því að það er alltaf heitt
á könnunni í boði Fjölskyldumiðstöðvarinnar
og Hagabakarí hefur stutt okkur dyggilega og
býður okkur upp á meðlæti. Við erum þeim
mjög þakklát fyrir þeirra framlag.
Opni leikskólinn stækkar jafnt og þétt og
þeim fjölgar sem heimsækja okkur í viku
hverri. Okkur var boðið að færa okkur í stærra
rými innan Gerðubergs þar sem að pláss
væri fyrir enn fleiri en það er rými á vegum
Borgarbókasafnsins.
Þess má geta að Opni leikskóli
Memmm Play fékk styrk frá Velferðarsviði
Reykjavíkurborgar til þriggja ára og er verið
að ganga frá samstarfssamningi. Óhætt er að
segja að það séu spennandi tímar framundan.
Opni leikskólinn er nú starfræktur á tveimur
stöðum, í Gerðubergi á miðvikudögum
og í Samfélagshúsinu í Bólstaðarhlíð 43 á
fimmtudögum. Á báðum stöðum er opið
frá 10 til 12 en stefnt er að því að lengja í
opnunartímanum fljótlega í Gerðubergi.
Opinn leikskóli í öllum hverfum
Framtíðarsýn okkar sem störfum í
Opna leikskóla Memmm Play er að Opinn
leikskóli sé starfræktur í öllum hverfum
á höfuðborgarsvæðinu sem og í öðrum
bæjarfélögum utan höfuðborgarsvæðisins.
Það er mikilvægt að vera í samstarfi við
nærsamfélagið og erum við þakklát fyrir allan
stuðning sem okkur er veittur.
Til þess að Opni leikskólinn hafi tækifæri til
að vaxa og dafna þarf hann dygga bakhjarla
sem styðja starfsemina hvort heldur sem
í formi fjármagns, samstarfs, aðstöðu,
vöruúttekta, þjónustu eða velvildar. Þeir sem
vilja leggja Opna leikskóla Memmm Play lið
mega gjarnan senda línu á memmmplay@
gmail.com og finna flöt á samstarfi. Finna má
Memmm Play á facebook og instagram til að
sjá dagskrána hverju sinni.
Kristín Stefánsdóttir skrifar
Opinn leikskóli Memmm Play
er nýtt á Íslandi
Foreldrar og börn saman í opna leikskólanum.
- Samver, leikur, söngur og fræðsla
Afgreiðslutími:
Mán: 10-16
Þri-fös: 10-17
Lau: 11-16
@systrasamlagid
Sími: 511 6367
Bækur og sögustundir eru hluti af opna
leikskólanum.