Nesfréttir - 01.11.2023, Side 4
4 Nesfrétt ir
Nesfréttir höfðu samband við Þór Sigurgeirsson bæjarstjóra og spurðu
frétta af því helsta sem bæjaryfirvöld fást við þessa daganna.
Vinna við fjárhagsáætlun komandi árs er þegar þetta er ritað (18. nóv)
á lokametrunum en fyrri umræða fjárhagsáætlunar verður næstkomandi
miðvikudag. Í dag stefnir í að við munum sjá mun jákvæðari niðurstöðu en
á árinu sem nú er að líða. Munar þar helst um auknar skatttekjur bæjarsjóðs
en greitt útsvar er talsvert yfir áætlunum. Útsvarsprósenta verður óbreytt.
Það má þó lítið út af bregða því verðbólgan er enn há og vaxtaberandi
skuldir bæjarins bera þess merki. Við munum eins og nágrannasveitarfélögin
hækka flestar gjaldskrár bæjarins um 9,9% auk þess heitt vatn mun
hækka um 20% á nýju ári. Ástæða þessarar umfram hækkunar á gjaldskrá
hitaveitunnar er bæði vegna kostnaðar við auknar fjárfestingar og vegna
fráviks sem varð við framkvæmd á verðskrá Hitaveitunnar á þessu ári.
Mannleg mistök urðu því miður til þess að Hitaveitan varð af umtalsverðum
tekjum árið 2023 sem gert hafði verið ráð fyrir í fjárhagsáætlun ársins.
Fjárfestingar framundan
Við munum fara varlega í fjárfestingar á komandi ári, vegna þess
gríðarstóra verkefnis sem lagfæring á skólahúsnæðinu er vegna myglunnar
þarf því miður að fresta verkefnum m.a. uppbyggingu á Félagsheimilinu því
miður. Haldið verður áfram með Félagsheimilið okkar eins fljótt og auðið er.
Bygging leikskóla er enn á dagskrá auk þess sem farið verður í að LEDvæða
götulýsingu bæjarins. Við erum með Reykvíkingum í sameiginlegu útboði
sem gefur okkur góð verð sökum stærðarhagkvæmni. Við munum setja
kraft í að laga skólalóð Mýrarhúsaskóla. Einn liður fjárfestinga er kallaður
„Málning og fegrun“ og munum við setja sérstakt fjármagn á þann lið til þess
að geta sett kraft í að fegra og mála bæinn okkar svo sem gróður, leiksvæði
og götur. Þarna þurfum við íbúa í lið með okkur að gera fínt í kring um okkur.
Við eigum þennan bæ jú öll saman.
Ég tel ástæðu til að þakka bæjarbúum góðar viðtökur á nýju
sorpflokkunarkerfi sem fór formlega í gang hér í bænum í síðasta mánuði.
Með nýju kerfi erum við að uppfylla lagaskyldu að hluta en við þurfum
að koma upp grenndarstöðum til að uppfylla lagaskylduna að fullu. Sitt
sýnist þó hverjum um staðsetningu
slíkra stöðva en við komumst ekki
hjá því að setja upp slíkar hér á
Nesinu á nýju ári. Þar til þær verða
komnar upp er íbúum bent á næstu
móttökustöð Sorpu.
Sala eigna er í fullum gangi og
mikill áhugi á Safnatröð 1 sem
hýsir hjúkrunarheimilið. Sæbraut
2 er einnig í söluferli en það er
glæsilegt einbýlishús.
Góður gangur í viðgerðum
á grunnskólanum
Eins og gefur að skilja er lang umfangsmesta verkefnið þessi misserin
viðgerðir á húsnæði grunnskólans. Það er gríðarlega krefjandi ekki síst
þar sem unnið er að viðgerðum samhliða því sem kennt er í byggingunum
eins og víða annarsstaðar er gert. Það er full ástæða til að hrósa starfsfólki
skólanna, nemendum og foreldrum fyrir góða samvinnu og samskipti við
þessar erfiðu aðstæður. Skólastarfið hefur í raun gengið með eindæmum
vel þó þetta sé alls ekki einfalt fyrir alla og fólk er mismunandi næmt fyrir
innivist í húsnæði. Við vinnum í einu og öllu eftir verkferlum og ráðgjöf Eflu
á öllum stigum framkvæmdanna. Bærinn hefur leigt húsnæði út skólaárið
á Eiðistorgi fyrir kennslu og hefur skólastarfið þar farið mjög vel af stað,
starfsfólk og nemendur una sér ágætlega á torginu sem skiptir öllu máli.
Það er góður gangur í viðgerðum beggja bygginganna og vonandi
verða þær tilbúnar að fullu fyrir næsta skólaár. Það er ánægjulegt að segja
frá því að við höfum nú þegar fengið stofur í Valhúsaskóla til baka úr
viðgerðum og er kennsla hafin þar aftur. Fleiri stofur eru væntanlegar úr
viðgerðum á næstunni. Í sumar verður svo sett upp ný loftræsing í allar
stofur Valhúsaskóla. Framundan eru viðgerðir á drenlögnum við báðar
byggingarnar auk þess sem steypa þarf nýtt gólf í jarðhæð Mýrarhúsaskóla,
en það hefur verið brotið upp og fjarlægt. Sömuleiðis verður loftræsing í
Mýrarhúsaskóla endurbætt. Mikið er lagt upp úr því að halda foreldrum
og starfsfólki vel upplýstu en upplýsingapóstur um gang framkvæmda er
sendur til þeirra á hverjum föstudegi sem hefur mælst vel fyrir.
Eins og sjá má á þessari stuttu upptalningu sem er langt því frá tæmandi
þá eru vissulega mörg, umfangsmikil og krefjandi verkefni sem hafa bæst
við alla daglega starfsemi bæjarins. Álagið hefur verið mjög mikið en það
eru allir að reyna að gera sitt besta og við horfum bjartsýn fram á nýtt ár
segir Þór bæjarstjóri að lokum.
ALHLIÐA MÚR- OG STEYPUVIÐGERÐIR
www.husavidgerdir.is/hafa-samband
info@husavidgerdir.is - Sími 565-7070
Finndu okkur á
Fegrun og lenging líftíma
steyptra mannvirkja er
okkar áhugamál. Við
höfum náð góðum árangri
í margs konar múr- og
steypuviðgerðum,
múrfiltun, steiningu og
múrklæðningum. Hafðu samband
Við skoðum og gerum tilboð!
Eyrartröð 16, 220 Hafnarrði
sími: 537-1029, www.bergsteinar.is
Eyrartröð 16
220 Hafnarrði
Opið kl. 11-16 virka daga
FALLEGIR LEGSTEINAR
Á góðu verði
Verið velkomin
Þór Sigurgeirsson.
Jákvæðari fjárhagur, varlegar fjárfestingar
og góður gangur í grunnskólaviðgerðum
- Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri ræðir bæjarmálin