Nesfréttir - 01.11.2023, Blaðsíða 14

Nesfréttir - 01.11.2023, Blaðsíða 14
Í október kom dr. Elís Þór Rafnsson, Sjúkraþjálfari PhD, sérfræðingur í íþróttasjúkraþjálfun og sjúkraþjálfari handboltaland­ sliðs karla til margra ára og hélt fyrirlestur fyrir Gróttukrakka frá 4. flokki í handboltanum. Hann fræddi þau um og sýndi mikilvægar teygjur sem koma þeim að gagni sem tilvonandi afreksfólk, bæði til þess að koma í veg fyrir meiðsli og einnig til að jafna sig eftir ákveðin meiðsli. Þessi fyrirlestur var að frumkvæði Aðalstjórnar og Elís sjálfs, sem er sammála okkur að í Gróttu sé mikilvægt að impra á þessum atriðum til að hindra langvarandi meiðsli barnanna og auka líkur á því að þau blómstri í íþróttinni og iðki hana sem lengst. Elís gaf þjál­ furum yngri flokkana góð ráð varðandi teygjurútínu sem hann mælir með því að börnin tileinki sér á hverri æfingu og vonast er til að þessi grunnur nýtist okkar fólki vel í framtíðinni. Vel var tekið í þessa fræðslu og mögulegt er að Elís komi aftur og tali við enn fleiri iðkendur, og gefi frekari ráð. 14 Nesfrétt ir G R Ó T T U S Í Ð A N www.grotta.is Matthías ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna og Melkorka framlengir 170 GETRAUNANÚMER GRÓTTU GETRAUNIR.IS Matthías Guðmundsson hefur verið ráðinn þjálfari meistara flokks kvenna knatt­ spyrnudeildar Gróttu. Matthías gerir þriggja ára samning við deildina en hann hefur síðustu tvö ár verið aðstoðarþjálfari meistara flokks kvenna Vals. Matthías á að baki glæstan fótboltaferil og 196 leiki í efstu deild á Íslandi en hann lék lengst af með Val. Matthías hlakkar til að að hefja störf hjá félaginu: „Ég er mjög spenntur fyrir því að fá tækifæri til að þjálfa svona flottan klúbb eins og Gróttu. Hópurinn er flottur með góðan kjarna af leikmönnum sem hafa spilað lengi saman og efnilegar stelpur að koma upp. Einnig er stefna félagsins mjög spennandi og umgjörðin alveg til fyrirmyndar. Ég hlakka mikið til að hitta hópinn og komast út á æfingasvæðið." Við sama tilefni skrifaði Melkorka Katrín Flygenring Pétursdóttir undir tveg­ gja ára samning sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna. Melkorka hefur síðasta árið verið aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna hjá Gróttu ásamt því að vera aðalþjálfari 5. flokks kvenna og heldur hún því góða starfi áfram hjá deildinni. Melkorka er á lokaári meistaranáms í sjúkraþjálfun og hefur lokið UEFA B þjálfararéttindum. Melkorka er spennt fyrir framhaldinu: „Ég er gríðarlega ánægð að hafa skrifað undir nýjan samning og hlakka til að vinna áfram í því frábæra umhverfi sem Grótta hefur upp á að bjóða. Ég hlakka mikið til að vinna áfram með leikmön­ num og fólkinu í kringum liðið. Einnig er frábært að hafa fengið Matta inn í þetta og ég hlakka til samstarfsins. Það eru spennandi tímar framundan á Nesinu!" Knattspyrnudeild Gróttu fagnar því að hafa samið við Matthías og Melkorku og hlakkar til komandi samstarfs við þau bæði. Harpa Frímannsdóttir: „Við í stjórn knattspyrnudeildar erum gríðarlega ánægð að hafa fengið Matthías sem þjálfara liðsins, hann mun koma með ferskan blæ og mikla reynslu inn í starfið. Einnig fögnum við endurráðningu Melkorku aðstoðarþjálfara sem þekkir liðið vel og ég tel víst að þau munu ná vel saman og ná því besta fram." Hákon Rafn Valdimarsson hefur verið valinn sem besti markvörður tímabilsins í efstu deild sænska boltans! Hákon Rafn var aðalmarkvörður Elfsborg á tímabilinu og fékk liðið aðeins 26 mörk á sig í 30 leikjum, en ekkert lið fékk færri mörk á sig. Hákon, sem er ekki nema 22 ára gamall, hefur verið að gera frábæra hluti í sænska boltanum síðan hann fór þangað frá Gróttu árið 2021. Hákon á að baki fjóra A­landsleiki fyrir Ísland og spilaði hann alla deildarleiki Elfsborg á tíma­ bilinu sem var að ljúka að einum undanskildum en þá var hann í leikbanni. Knattspyrnudeild Gróttu er gríðarlega hreykin af Hákoni og hans frábæru frammistöðu. Hákon er frábær fyrirmynd fyrir unga iðken­ dur hjá Gróttu sem líta svo sannarlega upp til hans. Hann á þennan titil svo sannarlega skilið og óskum við honum innilega til hamingju með þessa glæsilegu viðurkenningu! Hákon valinn markmaður ársins í Svíþjóð Teygjuþjálfun iðkenda handknattleiksdeildar Matthías, Harpa og Melkorka. Mynd: Eyjólfur Garðarsson Landsliðsþjálfarar U15 ára landsliðs kvenna, Sigríður Unnur Jónsdóttir og Hildur Þorgeirsdóttir völdu á dögunum U15 ára land­ sliðshóp sem mun æfa dagana 23. ­ 26. nóvember næstkomandi. Einn fulltrúi frá Gróttu er í land­ sliðshópnum en það er hún Edda Sigurðardóttir. Edda er leikmaður í 4. flokki kvenna hjá félaginu. Edda valin í U15 ára landslið kvenna Landsliðsþjálfarar U20 ára landsliðs kvenna, þeir Ágúst Jóhannsson og Árni Stefán Guðjónsson völdu á dögunum landsliðshóp U20 ára land­ sliðsins til æfingar dagana 23. – 26. nóvember. Gróttu á tvo fulltrúa í liðinu en það eru þær Anna Karólína Ingadóttir og Katrín Anna Ásmundsdóttir. Anna Karólína og Katrín Anna í U20 ára landsliðinu

x

Nesfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.