Nesfréttir - 01.11.2023, Blaðsíða 12

Nesfréttir - 01.11.2023, Blaðsíða 12
12 Nesfrétt ir Árni Árnason Hafstað er upp alinn á Seltjarnarnesi og gekk í Mýrarhúsaskóla, skólann sem hann kenndi síðan við í tæplega 20 ár, eða þangað til hann setti „kennaraprikið á hilluna“ vegna aldurs. Lestur barna hefur löngum verið honum hugleikinn og hefur hann í gegnum tíðina samið og þýtt fjölmargar bækur, sem flestar eiga það sameiginlegt að höfða ekki síst til þeirra barna sem af einhverjum ástæðum glíma við lestrarerfiðleika en spilla síður en svo fyrir hinum fluglæsu, enda er efnið yfirleitt áhugavert. Árni hefur um langt árabil verið í hópi hinna svokölluðu fuglaljósmyndara og sendi hann fyrir skömmu frá sér bókina Lesum um fugla. Þar kynnir hann til leiks í stuttu máli og með vönduðum ljósmyndum um 70 tegundir algengra fugla. Við forvitnuðumst aðeins um þessa bók og sitthvað fleira. „Ég kynntist snemma því fjölskrúðuga fuglalífi sem er á Seltjarnarnesi. Æskuheimili mitt var rétt við þann stað sem Valhúsaskóli stendur núna á og þaðan var stutt niður í fjöru. Þar var gjarnan mergð fugla, sjófugla og vaðfugla í ætisleit. Og í „hæðinni“ og móunum var mikið af mófugli. Ég hafði gaman af því að fylgjast með þessum fuglum öllum.“ Eru einhverjar af fuglamyndunum teknar á Seltjarnarnesi? „Já, heldur betur. Tæplega helmingur myndanna í bókinni er tekinn af fuglum á Nesinu. Ég hef tekið mikið af myndum þar, enda fuglalífið með eindæmum fjölskrúðugt á þessu svæði. Nesið er í rauninni paradís fyrir fuglaáhugamenn. Bakkatjörn er í miklu uppáhaldi með sinn fjölda andategunda. Þar er oft mikið fjör og eins Suðurnes, bæði norðan og austan megin þar sem vaðfuglarnir eru fyrirferðarmestir. Og ekki má gleyma öllum æðarfuglunum og sjófuglinum.“ En þá að bók þinni, Lesum um fugla. Hvað geturðu sagt okkur um hana? „Jú, hún er hugsuð fyrir börn sem eru farin að lesa sér til gagns og nýtist þeim og öllum öðrum sem hafa áhuga á að kynnast algengum fuglum í íslenskri náttúru. Bókin er þannig uppbygg að fuglunum er raðað í stafrófsröð, sem gerir það að verkum að það er þægilegt að leita í henni, svo er lýsandi mynd af hverjum fugli fyrir sig og tvö til þrjú lykilorð um hvern þeirra, sem er svo svarað í stuttum texta þar á eftir.“ En hvernig geta foreldrar komið að bókinni og stutt við lestur barna sinna? „Það geta þeir gert með ýmsu móti. Þeir geta auðvitað hjálpað þeim við að lesa textann og rætt um þau atriði sem þar eru nefnd, svo sem hvað það merki hjá álftinni „að vera í sárum“, eða þá að hrafninn „sé alæta“. Svo er hægt að lesa í myndirnar og ræða um þær, en allt þetta – lestur, spjall um textann og myndirnar – hjálpar börnum að auka við orðaforða sinn og lesskilning og bætir svo vitaskuld sjálfan lesturinn hjá viðkomandi barni. Ég hvet foreldra eindregið til að sitja með börnum sínum þegar þegar þessi bók er lesin, nú eða ef aðrar bækur eru hafðar um hönd og sýna því áhuga sem þau eru að lesa og/ eða skoða. Það er sannkölluð gæðastund og skilar sér svo sannarlega þegar að fram líða stundir.“ Árni Árnason Hafstað Árni Árnason Hafstað með myndavélina. Starfsfólk og Þátttakendur í starfi eldri borgara á Seltjarnarnesi senda fjölskyldu Kristjáns Jóhannssonar hjá Nesfréttum innilegar samúðarkveðjur og þakka áratuga samleið og gott samstarf. Eldri borgarar frá Grindavík velkomnir Þess má geta hér að haft hefur verið samband við yfirvöld í Grindavík sem stýrt hafa félagsstarfi eldri bæjarbúa þar og þeim boðið að nýta sér aðstöðuna hjá okkur og einnig að taka þátt í öllu okkar starfi hér á Seltjarnarnesi á meðan á óvissunni stendur. Þátttaka Nokkuð góð þátttaka hefur verið í félagsstarfinu og viðburðum á undanförnum vikum. Heimsókn eldri borgara úr félagsstarfi Dómkirkjunnar heppnaðist mjög vel og var salur safnaðarheimilisins fullskipaður. Dr. Sigurður Árni Eyjólfsson héraðsprestur hélt erindi um sambúð Marteins Lúthers og Katarinu af Bora sem í senn var áhugavert og skemmtilegt. Boðið var upp á hádegisverð sem var steiktur fiskur og Royal búðingur á eftir. Allir saddir og sælir eftir skemmtilega samverustund í safnaðarheimili Seltjarnarneskirkju. Félag eldri borgara á Seltjarnarnesi hefur haldið tvo félagsfundi nú í haust. Á fyrri fundinum var rætt um húsnæðismál eldri borgara og hvað hafa þarf í huga við byggingu húsnæðis fyrir eldri fólk. Páll Líndal umhverfissálfræðingur hélt erindi. Einnig spunnust umræður um húsnæðismál eldri borgara á Seltjarnarnesi. Ýmsar hugmyndir komu fram og möguleikarnir I stöðunni ræddir. Á seinni fundinum hélt Pálmi Jónsson, sérfræðingur í öldrunarlækningum erindi varðandi heilsuna þegar aldurinn færist yfir. Hvað ber að varast og hverju ber að viðhalda til að minnka áhrif “ellikerlingar” á heilsuna. Einnig var komið inná strauma og stefnur í þróun öldrunarþjónustunnar, vonir og væntingar. Leikhúsferðirnar Þann 1. nóvember var fyrri leikhúsferð haustsins. Farið var á sýningu Þjóðleikhússins EX. Flott sýning og stórkostlegur leikur. Næsta leikhúsferð verður 23. nóvember og þá í Borgarleikhúsið á sýninguna Deleríum Búbónis. Uppselt er orðið á þá sýningu og komust færri að en vildu. Þar sem góður rómur er að leikhúsferðum okkar þá er stefnt á að velja tvær eða þrjár sýningar fram á vor. “Óvissuferð” var farin í Elliðaárdalinn fimmtudaginn 16. nóvember. Lítil þátttaka var í þá ferð sem reyndist frábær í alla staði og synd að ekki fleiri sáu sér fært að vera með. Eftir fróðlega leiðsögn og skemmtilega sýningu var farið í kaffi á nýjan veitingastað sem heitir Á Bístró. Skemmtilegur staður sem býður upp á fjölbreytni í veitingum. Ákveðið var á staðnum að heimsækja þennan stað næsta sumar, þess fullviss að fleiri njóti. Aðventan/jólamánuðurinn Fasta dagskráin heldur sér allan desember en 20. desember verður síðasti dagur í leir, gleri og handavinnu. Félagsvist verður í salnum á Skólabraut fimmtudaginn 7. desember kl. 13.30 og jólabingóið verður fimmtudaginn 14. desember. Jólaljós og út að borða Þriðjudaginn 12. desember ætlum við út að borða og njóta jólaljósa og jólastemningar. Farið frá Skólabraut kl. 18.00. Þá verður byrjað á að keyra um helstu jólaskreyttu staði í nágrenninu. Síðan verður farið á Veitingastaðinn Nauthól. Þar verður hægt að velja um rétti af matseðli eða sérstakan jólaseðil. Skráning er hafin. Nánari upplýsingar og skráning hjá Kristínu s. 8939800. Söngur og súkkulaði Þriðjudaginn 19. desember verður aðventusamvera í salnum á Skólabraut. Húsið opnar kl. 14.30. Heimsókn frá nemendum Tónlistarskóla Seltjarnarnes og þeirra kennurum og sönghópur eldri bæjarbúa tekur lagið undir stjórn Bjarma Hreinssonar. Jólahugvekja. Hvetjum fólk til að fjölmenna og eiga saman notalega stund. Boðið verður upp á heitt súkkulaði og annað góðgæti. Hvetjum fólk til að fylgjast með dagskrá félagsstarfsins og muna að starfið er fyrir alla eldri borgara sama hvar þeir búa. Meginhluti dagskrárinnar fer fram í aðstöðunni á Skólabraut 3­5 nema annað sé auglýst. Minnum á kaffikrókinn á Skólabraut alla daga frá kl. 9.30., jóga/leikfimina með Öldu alla mánudaga og fimmtudaga kl. 11.00, handavinnuna alla mánudaga og miðvikudaga kl. 13.00, sönginn alla þriðjudaga kl. 16.00, botsía miðvikudaga kl. 10.00, æfingar og pútt á Nesvöllum þriðjudaga kl. 10.30 og námskeiðin í gleri og leir. Einnig er vatnsleikfimi í sundlauginni sem er opin fyrir alla eldri borgara, karlakaffi í safnaðarheimili kirkjunnar og ýmislegt fleira. Á Skólabraut er boðið upp á hársnyrtingu einu sinni í viku og fótsnyrtingu á 5­6 vikna fresti. Einnig hvetjum við alla til að fylgjast vel með fjölbreyttri dagskrá bókasafnsins. Allar nánari upplýsingar varðandi starfið veitir forstöðumaður félagsstarfs eldri bæjarbúa Kristín Hannesdóttir. Kristin.hannesdottir@seltjarnarnes.is FÉLAGS- OG TÓMSTUNDASTARF ELDRI BÆJARBÚAKennari og fuglaljósmyndari af Seltjarnarnesi Þrastarungi í Hólavallagarði.

x

Nesfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.