Nesfréttir - 01.11.2023, Síða 9

Nesfréttir - 01.11.2023, Síða 9
Nesfrétt ir 9 Úr Hólavallagarði sem er sögusvið nýrrar skáldsögu Sólveigar. ekki slæm. En með áhuga á að hafa vit fyrir fólki. Guðgeir er öðruvísi en ljúfur maður sem getur þó beitt sér ef þess þarf. Konan hans er lögfræðingur og ég blanda alltaf svolitlu af heimilislíf með. Þessar persónur mínar hafa allar þroskast og þróast í gegnum bækurnar. Eins og við gerum sjálf í daglega lífinu.“ Fjölhæf á sviði lista Sólveig hefur búið á Seltjarnarnesi til fjölda ára og ætíð gefið mikið af sér til menningarmála í bæjarfélaginu. Hún var meðal annars formaður menningarnefndar í átta ár, á árunum 2002 til 2010 og kom á þeim tíma mörgum góðum menningartengdum verkefnum á koppinn. Sólveigu hefur enn fremur í gegnum tíðina verið trúað fyrir ýmsum störfum í nefndum og fagráðum er varða listir og menningu innan og utan Seltjarnarness. Ekki er ofsögum sagt að Sólveig er fjölhæf á sviði lista, skapandi greina og miðlunar. Hún er í menntuð í leiklist frá Leiklistarskóla Íslands og starfaði sem slík auk þess að vera dagskrárgerðarmaður hjá RÚV um árabil. En nú hefur hún snúið sér að skriftum af fullum krafti. En ætlar hún að halda áfram. „Ég er núna að kynna nýju bókina. Lesa upp úr henni sem tilheyrir útgáfunni. Ég býst við að fljótleg fari ég að huga að nýjum skrifum. Ég er þegar farinn að hugsa og eftir áramótin er ég viss með að opna tölvuna og setjast niður,“ segir Sólveig að lokum. STUÐ STUÐ 0 STUÐ 1 » Þarf stærri heimtaug? » Hvaða lausn hentar best? » Er kerfið búið álagasstýringu? » Sjálfvirkt greiðslu- og innheimtukerfi? Er hleðsla rafbíla hausverkur í húsfélaginu? Við aðstoðum við að leysa málið með hagsmuni húsfélagsins að leiðarljósi Hlutlaus úttekt og ráðgjöf fyrir húsfélög um fyrirkomulag rafbílahleðslu og framkvæmdaáætlun. Útvegum og berum saman tilboð og aðstoðum við styrkjaumsóknir. thjonusta@eignaumsjon.is | eignaumsjon.is Valgerður sýnir í Gallerí Gróttu Bragðarefur með snígla skeljum nefnist sýning sem nú stendur yfir í Gallerí Gróttu. Valgerður Ýr Walderhaug myndlistarmaður er höfundur sýningarinnar. Valgerður nam við Listaháskóla Íslands og síðar myndlistadeild Háskólans í Þrándheimi. Hún hefur tekið þátt í fjölda sýninga bæði hér heima og erlendis og hefur hlotið starfslaun í Noregi þar sem hún er búsett. Myndir á sýningunni Bragðarefur eru á mörkum málverks og skúlpturs. Valgerður vinnur með fjöldaframleidda og fundna hluti sem hún umbreytir með malískum aðferðum og úr verða flókar innsetningar þar sem litir gegna mikilvægu hlutverki. Valgerður Ýr Walderhaug myndlistarmaður. www.systrasamlagid.is

x

Nesfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.