Nesfréttir - 01.11.2023, Qupperneq 13
Nesfrétt ir 13
www.systrasamlagid.is
www.borgarblod.is
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
ALPACAULL
FYRIR VETURINN
KLAPPARSTÍG 29
Mig langar að minnast góðs félaga,
frumkvöðuls og vinar Kristjáns Jóhannssonar,
eiganda og útgefanda Nesfrétta.
Okkar kynni ná aftur til ársins 1984 þegar
ég starfaði sem sumarstarfsmaður í Sundlaug
Seltjarnarness. Um það leiti var Kristján
ásamt öðrum að hefja blómlega starfsemi
Trimmklúbbs Seltjarnarness sem enn starfar og
stækkar. Kristján var þar mikill hvatamaður og
átti með framtaki sínu stóran þátt í þeirri skokk
og hlaupabylgju sem hófst á þessum árum og
varð að sístækkandi almenningsíþrótt.
Trimmklúbburinn hitaði upp í garðinum fyrir
framan afgreiðslu sundlaugarinnar þar sem nú stendur húsnæði World
Class. Ég kynntist fólkinu í þessum öfluga hópi vel en Kristjáni þó alveg
sérstaklega. Það skein af honum krafturinn og hann var sífellt að hvetja aðra
áfram. Ég man satt að segja aldrei eftir að hafa spjallað við Kristján í gegnum
tíðina án þess að hann væri bjartsýnn og jákvæður. Einstakur eiginleiki sem
smitar út frá sér og gerir aðra betri.
Kristján var áberandi í bæjarlífinu ekki síst sem útgefandi Nesfrétta,
okkar fyrsta bæjarblaði sem átti 35 ára afmæli fyrr á þessu ári. Kristján
sem var prentari að mennt var lengst af með Prentsmiðjuna Nes heima
í kjallaranum í Hrólfsskálavör þar sem að m.a. Nesfréttir voru prentaðar
um langt skeið. Kristján var því mikill frumkvöðull og án efa hefur hlýtur
það oft að hafa verið krefjandi rekstur að gefa reglulega út bæjarblað með
staðbundnum fréttum sem dreift var frítt í öll hús í ekki stærra samfélagi
sem Seltjarnarnesið er. Það var hins vegar alltaf bjartsýni, kraftur og elja í
Kristjáni enda hefur blaðið komið út árum saman af metnaði og fært okkur
fréttir, upplýsingar og auglýsingar úr bæjarlífinu. Nesfréttir eru að mínu mati
afar stór hluti af bæjarbragnum okkar og ég vona sannarlega að blaðið haldi
áfram að koma út sem blað okkar Seltirninga.
Að leiðarlokum vil ég þakka Kristjáni á Nesfréttum samfylgdina og fyrir
öll hans góðu störf í gegnum tíðina. Það er sjónarsviptir af fráfalli þessa
atorkumikla manns og sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur til
fjölskyldunnar allrar.
Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri.
Kristján Jóhannsson.
Kveðja