Nesfréttir - 01.11.2023, Side 15
Nesfrétt ir 15
Á dögunum hélt Anna Steinsen frá KVAN fyrirlestur fyrir handboltaforeldra
sem bar yfirskriftina „Hvernig get ég stutt barnið mitt í handbolta?“
Hún fjallaði um menningu í hópum og hvernig við getum orðið jákvæðir
leiðtogar. Mikilvægi liðsheildar og að við látum okkur aðra varða, hugsum um
heildina. Hún talaði einnig um samskipti og með áherslu á samskipti milli
kynslóða og hvernig við getum stutt við okkar barn á uppbyggilegan hátt.
Virkilega áhugavert fræðsluerindi fyrir foreldra sem höfðu einmitt á orði
hversu gagnlegt þetta hefði verið.
Seltirningar takið
frá 27. janúar 2024
fyrir árlega Þorrablótið
sem haldið verður í
íþróttasal Gróttu.
Miðasala er nú þegar
hafin á tix.is
Magnús Örn Helgason, landsliðsþjálfari U15 kvenna,
hefur valið hóp sem tekur þátt í UEFA Development
Tournament. Gróttukonan Rebekka Sif Brynjarsdóttir
hefur verið valin í hópinn. Rebekka er 14 ára gömul og
gríðarlega efnileg knattspyrnukona.
Hún lék tvo leiki með meistaraflokki Gróttu í
Lengjudeildinni í sumar og skoraði í þeim eitt mark. Þá lék
hún einnig með 3. flokki kvenna og 4. flokki karla og kvenna
í sumar þar sem hún skoraði samtals 30 mörk. Mótið verður
haldið í Lissabon í Portúgal dagana 17.23. nóv., en liðið æfir í tvígang á Íslandi
fyrir brottför. Mynd: Eyjólfur Garðarsson
Fræðslufyrirlestur
fyrir foreldra
Rebekka til Portúgal með U15
Þórður Þórðarson landsliðsþjálfari U18 kvenna,
hefur valið hóp sem tekur þátt í æfingum og leikjum
við Svíþjóð. Hópurinn mun hittast til æfinga helgina
25.26. nóv. og þriðjudaginn 28. nóv.
Gróttukonan Arnfríður Auður Arnarsdóttir, betur þekkt
sem Aufí, er í hópnum. Þrátt fyrir ungan aldur lék Aufí
lykilhlutverk í liði Gróttu í Lengjudeildinni í sumar en hún
er einungis 15 ára gömul. Aufí lék 16 leiki í Lengjudeildinni
í sumar og skoraði í þeim sjö mörk.
Gaman er að segja frá því að Aufí er eini leikmaður hópsins sem fædd er 2008,
en aðrir leikmenn eru fæddir árið 2007. Knattspyrnudeild Gróttu er hreykin
af því að eiga svona flottan fulltrúa í hópnum. Leikirnir við Svíþjóð munu fara
fram á Íslandi 29. nóv. og 1. des. í Miðgarði Garðabæ. Mynd: Eyjólfur Garðarsson
Aufí valin í U18 ára landsliðið
Þorrablótið Seltirningar
27. janúar
Afgreiðslutími:
Mán: 10-16
Þri-fös: 10-17
Lau: 11-16
ÓÐINSGÖTU 1, REYKJAVÍK
systrasamlagid.is
@systrasamlagid
Sími: 511 6367
GEFÐU HLÝLEGAR
GJAFIR
Hugleiðslupúðar
Hönnun sem endurspeglar hefðir og venjur frá Indlandi.
Mynstur sem notuð eru til að skreyta stíga á
hindúhátíðum og við hjónavígslu.
Einstök hönnun. Kíktu á úrvalið.
Líkamsburstar og olíur
Ást er... að gefa þér og þínum líkamsbursta og -olíu
á aðventunni. Hydréa London er leiðandi í baðdekri.
Notaðu með lífrænar olíur af bestu gerð. Frá Fuschi og
Wild Grace hjá okkur.
Nærðu húðina með
Wild Grace
Mögnuð húðlína sem færir
húðinni aðeins það besta og
nákvæmasta sem náttúran
hefur upp á að bjóða. Kíktu
á úrvalið.
Lykillinn að jólunum!
Allra bestu ferðafélaganir í
skammdeginu, alla aðventuna
og öll jólin eru meltingar-
ensím, magasýra og
mjólkurþistill. Það er gott að
fara að undirbúa meltinguna.