Vesturbæjarblaðið - maj 2023, Side 8

Vesturbæjarblaðið - maj 2023, Side 8
8 Vesturbæjarblaðið MAÍ 2023 Elín Sigrún Jónsdóttir, lögmaður | Tryggvagötu 11, 2. hæð Sími 783 8600 | elin@buumvel.is | www.buumvel.is Vantar þig þjónustu við dánarbússkipti, sölu og ráðstöfun eigna? SÉRHÆFÐ LÖGFRÆÐIÞJÓNUSTA VEGNA BÚSETUSKIPTA MEÐ ÁHERSLU Á 60+ Verið er að byggja allt að 7,6 þúsund fermetra íbúðarhúsnæðis á Steindórsreitnum auk atvinnu­ rýma í Vesturbænum, sem oft hefur verið kallað­ ur BYKO­reiturinn eftir að BYKO rak verslun í gömlu Steindórshúsunum um tíma. Um er að ræða byggingu þriggja húsa með 84 íbúðum og sameigin­ legum bílakjallara. Framkvæmdir hófst haustið 2021 og áætlað er að þeim ljúki á næsta ári. Fjárfestingarfélagið IREF, sem er í eigu Gunnars Sverris Harðarsonar og Þórarins Arnars Sævars­ sonar, tveimur af aðaleigendum Re/Max eignaðist helmings hlut í félaginu U22 ehf. á síðasta ári en helsta eign síðarnefnda félagsins er Steindórsreiturinn við Hringbraut Eignabyggð ehf., sem er í eigu Hannesar Þórs Baldurssonar og Brynjólfs Smára Þorkelssonar tók við eignarhaldi á U22 af fasteignafélaginu Kalda­ lóni haustið 2021 en eignin var hluti af endurgjaldi í kaupum Kaldalóns á atvinnuhúsnæði. IREF eignaðist svo helmings hlut í U22 á móti Eignabyggð í fyrra. Bókfært verð Steindórsreitsins við Sólvallagötu 79 var 3,4 milljarðar í lok síðasta árs. Þannig mun Steindórsreiturinn, sem er næst Hringbrautinni gegnt JL húsinu líta út að framkvæmdum loknum. Mynd: +Arkitektar. Framkvæmdum á að ljúka á næsta ári Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í. UM 90 vinnu rými í HafnarHaus Gamalt skrifstofur ými hefur fengið nýtt hlutverk í Hafnarhúsinu. Þar er nú unnið að því að byggja upp skapandi samfélag. Þetta rými nefnist HafnarHaus og hóf starfsemi síðla sumars á liðnu ári. Nú þegar er fólk sem ekki þekktist áður er farið að vinna að ýmsum verkefnum saman. Hugmyndina að þessu á Haraldur Þorleifsson athafnamaður sem meðal annars er þekktur fyrir að rampa Reykjavík upp. Hann hafði ásamt René Boonekamp verið að velta fyrir sér hvers vegna ekki væri staður á Íslandi þar sem skapandi fólk og fyrirtæki væru saman undir einu þaki. Og þér létu ekki þar við standa heldur gerðu hugmyndina að veruleika. Rýmið er um 3.000 fermetrar og um 90 vinnurými sem nýtast með ýmsum hætti. Nú hafa um sjötíu skapandi einstaklingar komið sér fyrir og reyni að skapa lifandi stemningu í húsinu og gæta þess að það sé hæfileg blanda allra greina. Hópurinn sem stendur að HafnarHaus leigir af Reykjavíkurborg og framleigir til notenda. Vinnurýmin í HafnarHaus nýtast með ýmsum hætti og skapa stemningu. Steindórsreitur Nýtt miðborgarfélag hefur verið stofnað. Þetta kom meðal annars fram í erindi sem Guðrún Jóhannesdóttir eigandi Kokku og Jakob E. Jakobsson veitingamaður á Jómfrúnni flutt á kynningarfundinum Athafnaborgin 2023. Þar sögðu þau frá nýju markaðsfélagi sem nýlega var stofnað á forsendum rekstraraðila. Miðborgin Reykjavík, eins og félagið heitir, hefur þann tilgang að vera markaðsfélag fyrir hagaðila miðborgarinnar til að skapa jákvæða upplifun og efla atvinnurekstur, verslun og þjónustu og störf á svæðinu Tilgangur félagsins er meðal annars að upplýsa um starfsemina í miðborginni. Veita upplýsingar um aðgengi og bílastæðahús. Sjá um kynningar­ og markaðsmál fyrir miðborgina og halda utan um markaðsviðburði. Félagið á að vera talsmaður um málefni miðborgarinnar. Sjá um öll helstu samskipti við og Reykjavíkurborg og vinna að bættu umhverfi og öryggi í miðborginni. Og að skipuleggja tengslastarf með félagsmönnum út frá þeirri staðreynd að yfir 200 verslanir eru í miðborginni. Yfir 70 verslanir eru að selja föt og skó. Þar eru einni fjölda gleraugnaverslana, skartgripa og úraverslana auk margskonar annarrar þjónustu. Auk þess ná nefna margvíslega menningarstarfsemi og listgallerí. Stjórn félagsins skipa Jakob Einar Jakobsson á Jómfrúnni, Kristjana Ósk Jónsdóttir frá Reitum Fasteignarfélagi, Róbert Aron Magnússon hjá Götubiti ehf/2Guys, Guðrún Jóhannesdóttir í Kokku og Karl Jóhann Jóhannsson í Aurum. Nýtt miðborgarfélag stofnað - tilgangur þess er að sinna markaðs- og kyningarmálum Jakob E. Jakobsson og Guðrún Jóhannesdóttir flytja erindi á kynningarfundinum Athafnaborginni. Netverslun: systrasamlagid.is

x

Vesturbæjarblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.